Vísir - 21.04.1975, Qupperneq 10
10
Vísir. Mánudagur 21. april 1975.
G@rum
notalegt á
svölunum
Þó að sumarið sé
enn ekki komið eru
margir farnir að
hugsa til þess, enda er
nú kominn miður
april.
Þeir sem hafa svalir nota
þær liklega oft á sumrin til
þess að liggja þar og flatmaga
þegar sólin skín. Þá getur oft
veriö gott að hafa einhver
þægindi við höndina.
Margir hafa reynt að lifga
svolitið upp á svalirnar og
gera þær vistlegri, og á þess-
um myndum sjáum við ein-
mitt dæmi um slfkt.
Hér eru svalirnar gerðar lif-
legar og skemmtilegar á mjög
einfaldan hátt. Nóg af kössum
og púðum og það nægir.
Hér eru notaðir plastkassar,
en hvaða kassi sem er ætti að
koma i sömu þarfir. Kössun-
um er raðað saman og búinn
til eins konar sófi úr fjórum
púðum, stórum og þykkum.
Motta er breidd yfir
svalirnar.
Svo er vist ekkert verra að
koma fyrir blómum á svölun-
um. Hér hefur verið breytt til,
blómin eru ekki lengur i
venjulegum potti, heldur
tágakörfu, og það kemur
skemmtilega út.
SKÓU" FYRIR KONUR SEM
VILJA SNÚA ÚT Á VINNU-
MARKAÐINN Á NÝ
1 Paris er nú starfræktur eins-
konar „forskóli” fyrir hús-
mæður sem hyggjast snúa út á
vinnumarkaðinn á ný, eftir að
hafa verið heimavinnandi um
margra ára skeið.
Evelyne Sullerot, sem veitir
skóla þessum forstöðu, kom
honum á laggirnar i haust, eftir
að hafa gengið lengi með hug-
myndina i kollinum.
„Við viljum koma þessum
konum i skilning um, að það er
mögulegt að fara út á vinnu-
markaðinn aftur”, segir
Evelyne. „Margar þessara
kvenna hafa ákaflega litið
sjálfsálit og þarfnast virkilega
aðstoðar.
Á fyrsta námskeiðið, sem
við héldum, tókum við konur úr
öllum þjóðfélagsstéttum og á
öllum aldri. En við fórum þó
eftir þremur atriðum, og það
má segja að við höfum skipt
konunum niður i þrjá hópa.
Konur, sem af fjárhagsástæðum
þurftu nauðsynlega að snúa út á
vinnumarkaðinn. Konur á aldr-
inum 30-35 ára, sem snemma
gengu i hjónaband og áttu allar
iítil böm , og loks konur á
aldrinum 45-50 ár,sem þurftu að
leita út vegna sálrænna
orsaka.”
Skólinn veitir enga þjálfun á
neinu sérstöku sviði. Hlutverk
hans er að hjálpa konunum að
velja sér atvinnu, undirbúa sig
fyrir hana og umfram allt að
öðlast sjálfsálit.
„Það sem hjálpar mikið til, er
það, að við sem kennum höfum
sömu reynslu. Ég á til dæmis
fjögur börn og var lengi hús-
móðir, áður en ég sneri út á
vinnumarkaðinn.”
Hver dagur i skólanum hefst á
þvi að þátttakendur tala um
persónuleg vandamál nokkra
stund, hlusta hver á annan og
tjá sig. Margar kvennanna hafa
hingað til verið mjög einangr-
aðar og eru hreinlega óvanar
þvi að hafa samband við margt
fólk.
Skólinn, eða hvert námskeið,
stendur yfir i mánuð, og ekki er
annað að sjá en að hann hafi
gefið mjög góða raun Konurnar
láta ekki allar af húsmóður-
starfinu, en þær segja nám-
skeiðið hafa veitt þeim mikið og
hjálpað þeim heima fyrir.
Horníð innréttoð
ó skemmtlegan
hótt
Þetta skemmtilega
horn samanstendur af
tveimur dýnum með
fullt af púðum á. Við
þurfum ekki að eyða of
fjár i að kaupa ný hús-
gögn til þess að gera
notalegt i kringum okk-
ar. Það má gera mjög
mikið sjálfur, eins og
reyndar svo margir eru
farnir að gera nú í
þessari dýrtíð.
Dýnur eru lika mjög vinsælar
núna, og I stað þess að kaupa
rúm eöa smlöa, láta sér nú
margir nægja að nota frekar
þykkar dýnur.
En ef einhver er I vandræðum
með að innrétta eitthvert hornið
hjá sér, þá er þetta tilvalið. Það
er lika sérlega þægilegt að
breiða úr sér innan um marga
púða.
Ljósið verður að vera neðar-
lega svo það njóti sln og helzt
nokkuð stórt. Hillan I horninu
gefur skemmtilegan svip. Svona
má innrétta hvaða herbergi sem
er. Skemmtilegust eru þó þau
herbergi þar sem lágt er til
lofts, svo ekki sé talað um þau
sem eru undir súð.
-
„Stofrófspúði"
ó
stuttumfíma
Púða eins og þennan getur
næstum hver sem er saumað á
ekki iöngum tlma. Stafirnir eru
saumaðir með krosssaumi, og
eru einfaidir og fljötgerðir.
Þessi starfrófspúði sem við
sjáum hér á myndinni er hvitur
með rauðum stöfum. Það sem
til þarf eru tveir efnisbútar i
þeirri stærð sem púðinn á að
vera og svo efni fyrii pifuna Sú
efnislengja þarf að vera að
minnsta kosti 1 1/2 sinnum um-
mál púðans til þess að hægt sé
að rykkja hana.
Stafirnir eru saumaðir i
stramma. Ef ráðgert er svo að
hafa púðann hvi'tan, þá er eins
gott að athuga að hægt sé að þvo
hann, þvi að hvitt þoiir ekki
mikið og lætur fljótt á sjá.
ÁTTU
HUND?
Hundar eru ekki sérlega al-
gengir IReykjavík.en þeir eru
þó leyfðir á Seltjarnarnesi,
Garðahreppi o.g á fleiri
stöðum.
Við hér erum ekkert vön þvi
aðsjá hunda klædda, en sumir
hafa gaman af að skreyta þá
svolitið, og á meðfylgjandi
myndum sjáum við hvað hægt
er að gera.
Prjónuð er eins konar
„peysa” yfir bakið á hund-
inum og að sjálfsögðu i
skrautlegustu litum.
„Peysan” er fest með þvi að
prjóna band og binda það
undir kviðinn á þeim. Og það
er ekki annað að sjá en að
þessir taki sig hið bezta út!