Tíminn - 06.08.1966, Síða 8
LAUGARDAGUR 6. ágúst 1966
8
TÍMINN
Leifniþjónusta Bandaríkjanna
Hefur fá tækifæri til
að verja starfsemina
Áhættusöm, en oft nytsöm.
Sagt er, að einföldustu og
yfirlætislausustu þessara hættu
legu en oft nytsömu starfa C.
I.A. séu framkvæmdar í hin-
um vinveittu löndum Vestur-
Evrópu. Sagt er til dæmis, að
njósnarar C.I.A. í Bretlandi séu
í sambandi við brezku leyni-
þjónustuna, brezka sérfræðinga
um Sovétmálefni og aðra fræði
menn og sérfræðinga.
MI-6, leyniþjónustan í Lond
on og C.I.A. bera saman bækur
sínar og skiptast á upplýsingum
um sameiginleg hagsmunamál.
Leyniþjónustan, sem fyrir
nokkrum árum hafði gert hræði
leg mistök í Singapore, lætur
nú Bretlandi eftir njósnir í
Malaysíu, en veitir líklega í
staðinn gnótt upplýsinga frá
Indónesíu.
Einnig ríkir venjulega sam
starfsfyrirkomulag í löndum
eins og Kanada og Ítalíu og
að nokkrú leyti í Frakklandi. í
Vestur-Þýzkalandi, aðalbaráttu
velli kalda stríðsins,! ér C.I.A.
mun starfsamari.
C.I.A. hefur skrifstofu í
Berlín, sem stjórnar sérstakri
starfsemi eins og hinum frægu
símagöngum inn í Austur-Berl
ín, sem hleraði samtöl í sovézk
um herbækistöðvum og var
frábært tækniafrek. Göngin
fundust árið 1956, þegar verka
menn í Austur-Þýzkalandi, sem
voru við gröft í öðrum til-
gangi, hittu veikan stað í
göngunum, svo að þau hrundu.
Skrifstofa C.I.A. í Frankfurt
hefur umsjón með hluta af
njósnastarfsemi Bandaríkjanna
gegn Sovétríkjunum, nær tali
af svikurum og útbýr njósnara
til starfa í kommúnistalöndum.
f Miinehen styður C.I.A.
margs konar rannsóknarhópa og
áróðurstæki eins og útvarp
frjálsrar Evrópu (Radio Free
Europe), sem útvarpar til
Austur-Evrópu og frelsisútvarp
ið (Radio Liberty) ætlað Sov
étríkjunum.
Störf fyrir flóttamenn.
Auk þess að skemmta og
íræða milljónir hlustenda í
kommúnistalöndum veita þessi
„einkafyrirtæki“ vinnu mörg-
um gáfuðum og fróðum flótta
mönnum frá Rússlandi, Pól-
landi, Ungverjalandi og fleiri
löndum.
Þau óska eftir þjónustu upp
ljóstramanna í kommúnista-
löndum, fylgjast með kommún
istískum útvörpum, skrifa und
ir andkommúnistíska fyrir-
lestra og rit eftir menntamenn
og dreifa rannsóknaritum
þeirra meðal fræðimanna og
blaðamanna í öllum heimsálfum.
Sagt er, að tiltölulega litlar
njósnir C.I.A. séu I sambands-
löndum Bandarikjanna. Jafn-
vel í eins ólýðræðislegum lönd
um og Spáni og Portúgal, þar
sem búast mætti við sjálfstæð
ara starfi C.I.A. eru aðgerðir
sagðar hógværar.
Leyniþjónustan hefur til dæm
is sérstakan áhuga á að fylgj
ast með suður-amerískum flótta
mönnum á Spáni eins og Juan
Perón frá Argentínu. Samt
sem áður reiðir hún sig svo
mjög á upplýsingar spænsku
lögreglunnar, að oft er betra
fyrir embættismenn ameríska
sendiráðsins að fá upplýsingar
hjá amerískum blaðamönnum
en skrifstofu C.I.A.
Þrátt fyrir hve illræmd C.I.A.
er meðal stjórna margra Afríku
ríkja stendur hún að baki
leyniþjónustum Breta og Frakka
og einbeitir sér við söfnun upp
lýsinga varðandi sovézka, kín-
verska og kommúnistiska starf
semi þar. (Kongó hefur verið
aðalundantekningin). Leyni-
þjónustan gerir lista yfir
ferðamenn til Moskvu, Prag eða
Peking, reynir að hafa áhrif
í sendiráðum þeirra og hindr
ar vopnasendingar um afríska
flugvelli.
Hefur auga með hugsan-
legum uppreisnarmönnum.
Haldið er, að Leyniþjónust
an hafi reynt að hafa áhrif á
öryggisþjónustu sumra Afr-
íkuríkja, en með mismunandi
árangri. Hún safnar sérstökum
upplýsingum um starfsemi ým-
issa frelsishreyfinga og þjóð-
ernissinna og vingast við leið
Nasser
toga stjórnarandstöðunnar í
löndum eins og Alsír og Sam-
bandslýðveldi Araba í von um
að geta sagt fyrir um óeirðir
eða í það minnsta vera kunnug
hinum nýju stjórnendum, ef
vonir þeirra um völd rætast.
C.I.A. hafði löngu fyrir-
fram upplýsingar um ráðagerð
herforingja í Alsír að fella Ah
med Ben Bella s. 1. júní, en
þeir vissu ekki í hvaða mánuði
embættismennirnir mundu
framkvæma það, og hún átti
engan þátt í samsærinu eða
framkvæmd verksins.
Vegna sambands við Gamai
Abdel Nasser áður en hann
náði völdum í Egyptalandi
hafði C.I.A. náin samskipti við
stjórn Nassers, áður en Banda
ríkin vöktu reiði hans með
því að neita um þá hjálp, sem
þeir höfðu lofað honum við
byggingu Aswan stíflunnar.
Sum þessara vináttubanda hald
ast enn, þótt sambandið hafi
verið þvingað síðustu árin.
Sagt er í Arababandalaginu, að
C.I.A. hafi fengið nákvæmap
upplýsingar hjá frægum heim
ildarmönnum eins og Mustafa
Amin, sem er þekktur ritstjóri
í Karió um vopnaskipti Sovét
ríkjanna og Egyptalands árið
1964 og aðrar svipaðar upplýs
ingar. Þegar Amin var hand-
tekin s. 1. haust er líklegt að
mikilvæg sambönd hafi slitnað
og það gaf Sambandslýðveldi
Araba tækifæri til að krefjast
meiri hjálpar frá Bandaríkjun
um fyrir að bera ekki vitni
gegn starfsemi C.I.A. í Kairó.
Vitað er, að hæfileiki C.I.A.
til leynilegra hernaðaraðgerða
hafi komið tvisvar fram í Suð
ur-Ameríku. Hún stjórnaði vei
heppnaðri „frelsisbaráttu" gegn
vinstrisinnaðri stjórn Jacoba
Arbenz Guzman ofursta í Guate
malá árið 1954. Sjö árum síðar
stökk her, semXM.A. bar á-
byrgð á burtu frá leynilegum
herstöðvum í Guatemala og
Nicaragua til að taka þátt í
hinni misheppnuðu Svínaflóa-
innrás á Kúbu.
Tillöguaðili um vígstöðvar.
C.I.A. rekur fjöldan allan af
öðrum stofnunum víða um
heim. Hún veitir „tæknilega
hjálp“ flestum þjóðum Suð-
ur-Ameríku með því að
hjálpa þeim að stofna and
kommúnistískar lögreglusveitir.
Hún styður andkommúnistísk
félagasamtök námsmanna, verka
manna, embættismanna, kaup
sýslumanna, — bænda og
stjórnmálaflokka. Hún sér um
sambönd milli þessara flokka
og ameríska verkamannasam-
taka og stofnana.
Hún hefur eytt miklu fé í
suður-amerískar kosningabarátt
ur til að styðja hógværa fram
bjóðendur og á móti vinstrisinn
uðum leiðtogum eins og Cheddi
Jagan í Brezku-Guiana.
Hún njósnar um sovézka,
kínverska og aðra kommúnist-
íska undiróðursmenn og sendi-
ráðsmenn og reynir að eyði-
leggja áform þeirra. Þegar C.
I.A. fékk vitneskju um það
s. 1. ár, að ungur maður frá
Brazilíu hafði verið drepinn ár
ið 1963, að talið var í bílslysi,
þegar hann var styrkþegi við
Lumumba háskólann í Moskvu,
var gert mikið veður út af þessu
til að draga kjark úr öðrum
fjölskyldum í Suður-Ameríku
að senda syni sína til Sovét-
ríkjanna.
Leyniþjónustan hefur verið
svo framkvæmdasöm í Suðaust
ur-Asíu síðasta áratuginn, að
hún hefur verið fastur liður í
J. F. Kennedy
stefnu Bandaríkjanna þar.
Það er til dæmis sagt, að
C.I.A. hafi tekizt svo vel að
hafa áhrif á ráðamenn Indónes
íustjórnar og hersins, að Banda
ríkin voru ófús að stöðva ieyni
lega starfsemi C.I.A. með því
að hætta fjárhagslegum stuðn
ingi og upplýsingaáætlunum á
árunum 1964 og 1965. Það, sem
var tilkynnt opinberlega í Was
híngt. sem umburðarlyndi gagn
vart móðgun Sukarno forseta
var miklu frekar ósk að starf
semi C.I.A. gæti haldið þar
áfram. >
Þótt ekki sé haldið, að C.I.A.
hafi tekið þátt í þeim brögðum,
sem hefur haldið stjórn Suk
arno forseta í skefjum síðustu
mánuðina, þá var Leyniþjónust
6. GREIN
an vel fær un að fylgjast með
atburðum og spá fyrir um upp
komu andkommúnistískra afla.
MiUigöngumenn.
Eftir að hafa aðstoðað við
að Ramón Magsaysay var kjör
inn forseti Filippseyja árið
1953, stutt fjölskyldustjórn Ngo
Dinh Diem og Ngo Dinh Nhu
í Suður-Vietnam árið 1954 og
komið á stjórn Phoumi Nosa-
van i Laos árið 1960. urðu
njósnarar C.I.A., sem bersýni
lega voru ábyrgir, nánari ráð
gjafar og áhrifameiri milli-
göngumenn milli stjórna þess
ara landa og ráðamanna í Was
hington heldur en bandarísku
sendiráðin í þessum löndum.
Þegar stjórn Kennedys 'com
til valda árið 1961 komst for-
setinn að þeirri niðurstöðu, að
C.I.A. hafið bundið þannig
hagsmunamál Bandaríkjanna
við Fhoumi Nosavan, að í fyrstu
gátu þeir ekki skipt við hann.
Ennfremur varð sá hæfileiki
C.I.A. til að aðhafast fljótt og
með skynsamlegri leynd til
þess, að hún fékk mörg verk
efni í Suðaustur-Asíu, sem
venjulega mundi falla undir
varnarmálaráðuneytið. Hún
var til dæmis fær um að fljúga
með birgðir til manna af Meo
kynflokknum í Laos tii að
hjálpa þeim að berjast gegn
kommúnistanum Pathet Lao á
þeim tíma, er samningsbönd
leyfðu ekki íhlutun ameriskra
hernaðarmálaráðgjafa.
C.I.A. hefur í Suður-Viet-
nam unga menn með stjórn-
málahæfileika og málakunnáttu
sem hafa verið mun sigursælli
en hinir sérstöku herir Penta
gon að vinna frá kommúnist-
um fjalla- og skógaþorp.
C.I.A. var einnig flækt í
málefni Ngo bræðranna og
ginntu þeir hana til að styðja
einkalögreglusveitir sínar. Þær
voru reyndar notaðar gegn
Búddatrúarmönnum í stjórnar-
andstöðu og æstu þannig hern
aðarleiðtoga til „coup d‘état“
árið 4963, sem felldi Ngobræð-
ur.
C.I.A. hefur núna hafið á-
ætlun í Thailandi, sem á að
verja sveitahéruð gegn komm-
únisma. Hún vinnur í gegnum
erlendar hjálparskrifstofur og
viss flugfélög og njósnarar
vinna með fjallaþjóðíflokkum
meðfram landamærum og eru
að koma á fót lögreglusveitum
meðfram landamærum Laos og
Cambodiu.
Heimulegar aðgerðii-.
Fáir Bandaríkjamenn gera
sér ljóst hvernig aðgerðir sem
þessar geti haft áhrif á frið-
samlegt þjóðlíf hvernig einn
flugvélafarmur af rís í leigu
vél Air America í Laos veldur
heimulegum aðgerðum C.I.A.
innan Bandaríkjanna.
Þegar Air America eða önn
ur félög, sem starfa undir fölsku
flaggi hafa komizt í fjárhags-
vandræði hefur C.I.A. notað
áhrif sín í Washington og í öll
um Bandaríkjunum til að finna
einhverjar lagalegar tekjulind
ir. __
Án þess að forstjórar og hlut
hafar einhvers flugfélags vitx
getur C.I.A. komizt í samband
við aðalembættismenn félags
ins og útskýrt fyrir þeim vanda
mál sín og farið í burtu með
samning um einhverja gróða-
vænlega flugfarma.
Leynileg yfirfærsla á pening
um C.I.A. til utanríkismálaráðu
neytisins og Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna eru til dæmis
notaðir til styrktar fræði-
mennsku eða útgáfustarfsemi.
Einnig veitir Leyniþjónustan
peninga til rannsókna og áróð
urs gegnum stofnanir — laga
legar eða leynilegar.
Sagt er, að C.I.A. standi að
baki starfsemi nokkurra stofn
ana, sem bera ábyrgð á ferðum
þjóðfélagsfræðinga til austurs
ins. Hinn mikli meirihluti sjálf
stæðra stofnana hefur varað
við, að þessi starfsemi varpi
grunsemd á alla fræðimenn, sem
ferðast þangað og sagt er á
síðustu árum.að C.I.A. hafi
minnkað þessa starfsemi.
400.00 dollarar til rannsókna-
starfa.
Rannsókn þjóðþingsins árið
1964 á stofnunum, sem voru
undanþegnar skatti leiddi f