Vísir


Vísir - 03.05.1975, Qupperneq 7

Vísir - 03.05.1975, Qupperneq 7
Kínalífselexír Með bros á vör: klnverskur traktor á graffksýningunni á Kjarvalsstöðum. í mannkynssögunni er þess oft getið að kin- verjar hafi fundið upp púðrið, áttavitann og orðið fyrstir til að gefa út dagblöð. í sambandi við hið siðastnefnda gleymist oft að geta þess að kinverjar þrýstu ekki aðeins út- skornum táknum á pappír, heldur lika tré- skurðarmyndum og það á áttundu öld eftir Krists burð. Þaðan bárust bæði tréskurð- armyndir og málara- list til Japan og viðar um Asiu og framlag kinverja til listþróunar i austri erþvi svipað og framlag grikkja til vestrænna lista. Klnversk list, bæði i tréskurði og málaralist, einkenndist jafn- an af skáldlegri innlifun I og lof- gjörðum náttúruna og samband mannsins við hana. Þeir töldu það vera fyrir neð- an sinn heiður að llkja nákvæm- lega eftir náttúrunni, heldur reyndu þeir að tjá hringiðu og hrynjandi hennar með llnunni einni, en fíngerðir litflekkir fylgdu svo á eftir sem fylling. Landslagsmyndir þeirra eru þvl stemmningar eða hugmyndir um náttúruna, gerðar af af- burða drátthögum mönnum. Það var ekki aðeins I listsköpun serii kínverjar stóðu framar- lega, heldur einnig I gerð eftir- prentana, en sú grein naut allt að því eins mikillar virðingar og sjálfstæð myndgerð. Á seinni hluta 19. aldar fór nokkur hnignun að gera vart við sig I klnverskri myndlist sökum erlendra áhrifa og eftirspurnar, sem svo skapaði mikinn eftiröp- unariðnað í klnverskum hafnar- borgum. Og allt keyptu evrópu- búar sem voru þá að uppgötva kínverska list. Það er ekki fyrr en Nýja Klna er stofnað að nýtt llf kemur I myndlist þeirra, — en á bak við þá grósku eru allt aðrar hug- sjónir og mat. Það er graflist frá Nýja Kina sem við sjáum þessa dagana að Kjarvalsstöð- um, 127 eintök alls. Fyrsta spurning sem læðist að manni á þessari sýningu er hvernig I ósköpunum margmilljóna þjóð fari að þvl að skapa sér svo keimllkan stll, og I öðru lagi, hvort slikur stlll, innrættur eins oghann er af stjórnvöldum, geti verið heilbrigður og þroskandi fyrir listamanninn. Það er eng- inn vafi að lögð hefur verið mik- il rækt við tréskurðarmyndina I Klna á undanförnum áratugum og tæknilega séð eru vinnubrögð fyrsta flokks og gleðilegt að sjá hve snjallir klnverjar eru enn við eftirllkingar. Á ég þar við þær sjö myndir sem hér eru eftir eldri listamenn (18-24) og ég hefði getað svarið fyrir að væru ósviknar vatnslitamyndir. Ópium fyrir fólkið Þessar gömlu myndir hafa einnig á sér yfirbragð margra listrænna persónuleika, en af- gangurinn af sýningunni gæti nær allur verið eftir sama lista- manninn. Myndefni þessa lista- manns er alþýðan við vinnu á ökrum, i skógum, I verksmiðj- um, skipum og skólum. Er ekki nema gott eitt um það að segja þvi landið heitir nú einu sinni „alþýðulýðveldi”. En eitt er það sem slær mann strax, og það eru brosin. Allt fólk á mynd- unum brosir eða hlær, hvort sem það er að kenna rafmagns- verkfræði eða sligast pungsveitt undir byrðum á ökrum. í verk- smiðjunni, innan um hávaðann og eldglæringar logsuðutækja, brosa menn út undir bæði eyru eins og I óplumvimu. Hvar eru hinar hliðarnar á mannlegu lifi? Þær hljóta að vera til einnig I Klna. Og þá rennur upp fyrir manni ljós. Þessi verk eru gerð til að fá fólk til að sætta sig við strit sitt, eins og trúarbrögð gerðu fyrr á öldum. Myndirnar eru ekki gerðar af fólkinu I verksmiðjunum, heldur af list- vinnustofum sem skapa list sem verkafólki er skömmtuð. Hún verður að vera, eins og segir i sýningarskránni „einföld, skýr, tjáningarrlk og skrautleg”. Og listamaðurinn er orðinn geld- ingur sem gerir eingöngu það sem hann er skikkaður til að gera. Þvl er vart hægt að nefna þessi verk „alþýðulist” fremur en hina fordæmdu gömlu kln- versku list. En það er lærdómsrikt að skoða list sem er kirfilega undir handleiðslu stjórnvalda, og einkar viðeigandi að hún skuli vera sýnd að Kjarvalsstöðum. Verst hvað hún er illa hengd, — myndirnar eru á pappa- spjöldum sem mörg eru orpin og utan á er limt gróft plast með klúðurslegu glæru limbandi. Ahrifin eru oft keimllk þvl að vera I speglasalnum I Tívoll og er þetta ekki likt þeirri snyrti- mennsku sem jafnan einkennir hvað eina sem kinverjar gera. Væntanlega fáum við ein- hverntímann að skoða hina ,,úr- kynjuöu” og yfirstéttarlegu eldri list frá Klna, sem þó sýnir allar hliðar mannlegra tilfinn- inga eins og heilbrigð list ávallt gerir. MYNDLIST eftir Aðaistein Ingólfsson USTIÐN Hvenær skyldi það hafa myndast, þetta óyfirstiganlega bil, sem talið hefur verið aðskilja ,,list” og „listiðn”? Á miðöldum voru þessar greinar i sama handverksbátn- um og var þeim þá skipað i virðingarstöð- ur eftir þvi hve hrein- legar þær voru. Góðir húsgagnasmiðir hafa vart verið minna metn- ir en málarar, og myndhöggvararar þóttu lægstir allra vegna þess að þeir voru þaktir ryki og skit við vinnu sina. Mynd- höggvarar og múrarar unnu hlið við hlið i kirkjubyggingum og þótti sjaldan taka þvi að nefna þá með nafni i heimildum. Sennilega er það á 16. öld sem hinar svokölluöu „fögru listir” ná yfirhöndinni, þ.e. málaralist og höggmyndalist, óbeint á kostnað annarra listgreina. Þar með er ekki sagt að húsgagna- smiöir, vefarar, postullnsgerð- armenn og gullsmiðir drægju sig I hlé, og nokkrar „súper- stjörnur” á þeim sviðum getum við nafngreint og vitum að þeir nutu mik'llar hylli. Skrifborð eftir Pétur Lúthersson. Myndir á vegg eftir Baldvin Björnsson. C5 1 Það er ekki fyrr en með William Morris og preraafaelit- unum að bein tilraun er gerð til að færa hinar mörgu vanmetnu listiðngreinar upp á hærra svið, eða allavega vekja á þeim at- hygli. Slðan tekur Bauhaus við og takmark þeirrar stofnunar var nú ekki aðeins að stuðla að listrænni hönnun á nytjahlutum heldur einnig að vinna gegn fjöldaframleiðslu ómerkilegra hluta sem ekki voru gerðir með neinni tilfinningu fyrir formi eða lit. Iðja og not Hér á Islandi hefur innflutt drasl tröllriðið húsum manna, bæði að utan og innan I áraraðir og svo sannarlega tlmi til kom- inn að stofna til samtaka sem legðu áherslu á listræna hönnun á öllu þvi sem I kringum okkur er innanhúss. Þessi samtök hafa nú veriö stofnuð og nefnast List- iðn og sýna nokkrir félagsmenn um þessar mundir I húsakynn- um Heimilisiðnaðar, Hafnar- stræti 3. Nefna þeir þessa fyrstu Skart eftir Jens Guöjónsson. sýningu slna „Islensk nytjalist l” og munu aörar eiga að fylgja innan skamms. En hvers vegna „nytjalist”? Mér finnst aö það orð sé „tautologia”, þvi sé verk gert af list, þá hlýtur það að koma að notum, ef ekki höndun- um þá auganu. Það er litill munur á þeim notum sem við getum haft af góðu málverki og góðu veggteppi og reginmis- skilningur að miða „not” aðeins við beina handfjötlun eða ágang. „Listiðn” er stórum betra orö. Asa ólafsdóttir vefari sýnir nokkur veggteppi þar sem amerlsk indjánateppi virðast að einhverju leyti vera kveikjan og eru þau ofin með litnæmu augu og tilfinningu fyrir dramatisku bili milli lita. Baldvin Björnsson sýnir snyrtilegar auglýsinga- teikningar og Jens Guðjónsson á hér snilldarlega gerða og fjöl- breytilega skartgripi sem nálgast það að vera hreinn skúlptúr og er Jens laginn við að nýta hrjúft yfirborð I „express- Ifum” tilgangi. Pétur B. Lút- hersson sýnir skrifborð sem hljóta að jafnast á við það besta sem gert er af þessu tagi I Evrópu, — skrifborð sem eru bæði I hæsta máta hagnýt og eru samt ekki „kaldar” mublur, sökum mjúkrar áferðar. Astæð- an fyrir þvl að Sigrún Guðjóns- dóttir skipar sér I flokk Listiðn- ar, en ekki myndlistarmanna, er llklega sú að hún málar og brennir fllsar, og sýnir það hvað stutt er á milli listiðnaðar og listar. Sigrún er lipur og „ele- gant” teiknari, eins og vel kom I ljós á Kvennasýningunni og eru skálar hennar og fllsar mikiö augnayndi. Verst er að allir þessir hönn- uðir skuli ekki hafa komið saman sýningarskrá til minn- ingar um þessa fyrstu samsýn- ingu. Vonandi bæta þeir um betur næst, og verði heildar- svipurinn eins góður þá og nú, er enginn efi á að félagsskapur- inn Listiðn á eftir að verða já- kvætt afl I Islenskri listsköpun.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.