Tíminn - 31.08.1966, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 1966
TÍMINN
MINNING
LuÐVIG GUÐMUNDSSON
fyrrverandí skólastjóri
Sökum fjarvistar get ég ekki kom
ið því við að flytja kveðjuorð við
jarðarför Lúðvigs Guðmundssonar
skólastjóra. Þess vegna langar mig
til að minnast hans með nokkrum
orðum í blaðagrein. Og þó finn ég
mig vanmáttugan slíks, þegar allt
kemur til alls.
Lúðvig var sérkennilegur maður,
og ógleymanlegur mun hann verða
hverjum þeim, sem öðlazt hefir
vináttu hans. Sá þáttur, sem hann
hefir átt í menningarlífi þjóðar-
innar, verður ekki skilinn til fulls,
nema menn geri sér grein fyrir
persónuleika hans sjálfs, — og
varla er hægt að minnast hans,
þegar hann er genginn, nema með
því að verða persónulegri en við-
eigandi þykir.
Ég kynntist Lúðvig fyrst á
þeim árum, er hugur minn var
sem óðast að kynnast umheiminum,
opinn upp á gátt fyrir straumum
og stefnum samtíðarinnar, eins
og ungum mönnum er eðlilegt.
Hann var stúdent í guðfræðideild-
inni, þegar ég kom þangað haust-
ið 1924. Höfðum við sézt aðeins
einu sinni þá um sumarið, þegar
Lúðvig var á hringferð með strand
ferðaskipinu og kom meðal annars
á Djúpavog. Þá var hann með
mesta eldmóði að selja happdrætt
ismiða í þágu stúdentagarðsins,
og útvega umboðsmenn. Svo fast
höfðu þessir fyrstu samfundir mót
azt í húga minn, að ég man logn
blikið utan við borðstokkinn. En
það var síður en svo lognmolla
kringum Lúðvig sjálfan. —
í guðfræðideildinni var Lúðvig
elztur að árum og reynslu. Hann
hafði lagt stund á náttúrufræði
við erlendan háskóla, en þá rann
það allt í einu upp fyrir honum,
að maðurinn væri merkilegra við-
fangsefni heldur en dýrin, og sneri
sér að læknisfræði. Þegar hann
hafði stundað læknisfræði um hríð
varð enn þá breyting í huga hans.
Honum fannst læknisfræðin orðin
fullmikið háð efnishyggjunni og
meira hugsað um líkamann en
sálina, en þegar allt kæmi til alls
væri ódauðleg mannssál meira virði
en líkami, sem aðeins dygði i
nokkur ár, — og nú sneri Lúðvig
sér að guðfræði, því að þar taldi
hann að mest yrði um það nugsað
að göfga og betra mannssál'.na.
Lúðvig lýsti þessum námsferii
með glettni í augum, en sannleik-
urinn var sá, að honum var full-
komin alvara í þessari fjölbreyttu
leit að verkefnum, sém stóð í sam
bandi við breytingar á innra lífi
hans sjálfs. Stefnuhvörf frá efnis-
hyggju til andlegrar lífsskoðunar
og trúar.
í þá daga var guðfræðideildin
fjölmenn og mikið fjör í starf-
semi hennar. Við stúdentarnir tók
um okkur ýmislegt fyrir hendur,
utan við fasta nán^áætlun. Auð-
vitað er erfitt að muna það eftir
marga áratugi, frá hverjum tillög
ur og uppástungur höfðu komið,
en einhvern veginn finnst mér eft
ir á , að þó að við hefðum mörgum
vöskum drengjum á að skipa, hafi
Lúðvig Guðmundsson verið sá, sem
bezt gekk fram í að taka upp
nýjungar og óvenjulega hluti. Einu
sinni var rætt um það, að við
stúdentarnir hefðum ágæta upp-
fræðslu í guðfræðilegum vísindum
en legðum of litla stund á að
efla trúarlíf okkar sjálfra sam
eiginlega. Því gerðum við það að
fastri reglu um langt skeið að
koma saman hálfa klukkustund
á hverju laugardagskvöldi til bæna
og hugleiðingar. — Þangað feng-
um við stundum presta og aðra
til að vera með á þessum helgi-
stundum, og af ásettu ráði völdum
við þessa menn án tillits til guð-
fræðilegrar stefnu. í þá daga var
barizt um það, hvort gamal — guð
fræðin eða frjálslynda guðfræðin
ætti að verða ofan á í kirkjunni.
Virtist okkur það þvi nauðsyn-
legt að láta rödd hinnar frjáls-
lyndu trúarstefnu heyrast betur
með þjóðinni, og stofnuðum mán
aðarritið “Strauma“; Því héldum
við úti í nokkur ár. í hvorutveggja
þessu var Lúðvig með af Iífi og
sál.
Lúðvig Guðmundsson var einn
þeirra manna, sem aldrei spurði,
um það, hvað væri honum sjálf-
um þægilegast, hvað borgaf^, sig
bezt. Hann lét sig einu gilda, hver
var með eða móti, ef hann hafði
sjálfur orðið sannfærður um, að
hann ætti að taka til máls. Hann
átti það til að halda eins konar
predikun á rússagildi og hann
flutti einu sinni tvo fyrir-
lestra gegn þáverandi biskupi
landsins vegna hins svonefnda
vígsluneitunarmáls. Eignaðist Lúð
vig þá bæði meðhaldsmenn og
harða andstæðinga.
Annars var Lúðvig í þá daga
þekktastur fyrir afskipti sín af
félagsmálum stúdenta. Þar stóð
hann að sjálfsögðu ekki einn
uppi, en enginn var betur hæfur
til forystunnar eða spámann-
legs eldmóðs, þegar tala þurfti
eða rita úm málið. Sjálfur minn
ist ég þess stundum, þegar Lúðvig
mætti mér seint um kvöld í norð
angarra og grimmdarfrosti, og
knúði mig til að skrifa mína
fyrstu blaðagrein, sem prentuð
var daginn eftir. Því drep ég á
þetta, að ég hygg, að fáir hafi
haft jafnörfandi og hvetjandi áhrif
á unga menn sem Lúðvig. — Þá
var aldrei talað um „kjaramál''
stúdenta. Okkur hefði klígjað
við slíkum orðum. Lúðvig
leit á þetta sem hugsjónamál,
menningarmál. Meðan stúdenta-
garðurinn var ekki kominn, beitti
Lúðvig sér fyrir Mensa Academica,
stúdentamötuneyti. í félagslegu
tilliti var Mensa eins konar and
leg miðstöð. Við drukkum þar
kvöldkaffi stundum, ræddum
hugðarefnin, héldum fundi og fyr
irlestra. Sönglistarmenn og hljóð
færaleikarar litu þar inn. Þetta
var eins og fjölmennt menningar
heimili. Og þannig hugsaði Lúðvig
sér stúdentagarð fyrst og fremst,
nema stærri í s.^iðum og full-
komnari að ytri gerð.
Ekki lr«k Lúðvig Guðmunds-
son við guðfræðinámið. Hon-
um barst köllun til að taka að
sér Hvítárbakkaskólann. Þar eygði
Lúðvig á svipstundu fram-
tíðarmöguleika, sem sannarlega
voru ekki lítils virði fyrir
mann með hans hugsunarhætti.
Og ekki ýkja löngu siðar tók
hann að sér gagnfræðaskólann
Smbjörn Haukur Helguson
Kveðja frá systkinum, foreldrum
og eiginkonu.
Hrærð þig.kveðjum bróðir bezti
blessun drottins fylgi þér,
dásöm var þín dyggðafesti,
dagur starfsins ljóma ber.
Þér við hjartans þakkir færum,
þú varst okkar fyrirmynd,
mynd, sem geymd í minnum
kærum
mildar okkar táralind.
Elsku sonur, sár er stundin,
sjónum okkar horfinn ert,
við þig stærsta von var bundin,
vonarfylling sú er skert,
þegar virtist árdagsyndi
aftansól til viðar rann,
þegar sérhvað lék í lyndi
lífsins þráður sundur brann.
Látni sonur, þér við þökkum þína miklu tryggð og ást. Hljóð við biðjum huga klökkum hæstan guð, sem engum brást, þó að okkur þjaki tregi, þungt og ervitt sé um mál, leiði nýja lífsins vegi ljóssins englar þína sál.
Eiginmaður elskuríkur örugg stóð ég þér við hlið. — Óvænt dauðans stormur strýkur stundum burtu traustan við. þú ert fallinn fyrr en skyldi. finn ég minna barna smæð en ég treysti Alvalds mildi. Æðstur drottinn sárin græð.
Magnús frá Skógi.
á ísafirði og var skólastjóri hans
í allmörg ár, en fluttist þaðan til
Reykjavíkur að nýju, og stofn
aði þar Handíðaskólann, sem
var alger nýjung í okkar menn-
ingu. „Ég veit það vel“, sagði Lúð-
vig einu sinni við mig, „að
sumir bregða mér um hringl
andahátt. En í raun og veru hef
ég alltaf verið sjálfum mér sam-
kvæmur." Og það sagði hann satt.
Hann naut þess að vera stjórn-
andi ungs skóla, sem var í mótun,
og þurfa að striða við ýmiss konar
örðugleika frumbýlingsins. En þeg
ar stofnunin var komin á það stig,
að ekki þurfti lengur að bera
neinn kvíðboga fyrir framtíðinni
í höndum annars manns, þá vildi
Lúðvig gjarnan taka saman
pjönkur sínar og fara. Og Lúð-
vig var einn þeirra, sem aldrei
var í vandræðum með að finna
ný verkefni. Hann gerði Hand-
íðaskólann að mikils virtri stofn
un, og að lokum lét hann einnig
af störfum þar, enda var hann
á síðari árum mjög heilsutæpur.
Oft ræddum við um það okkar
á milli, hvort Lúðvig ætti ekki
að ljúka guðfræðinni, þó að hann
væri orðinn miðaldra, og sækja
um prestakall. Því miður varð
ekki úr því annað en ráðagerð
in ein. En stundum hef ég verið
að velta því fyrir mér, hvernig
prestur Lúðvig hefði orðið. Helzt
hugsa ég mér, að hann hefði tekið
við einhverju „niðurníddu" presta
kalli, með steinsofandi söfnuð
um. Þar hefði hann brugðið upp
töfrasprota heilags orðs og kveikt
líf og fjör. Og þegar allt var kom
ið í gang, hefði Lúðvig kvatt sókn
arbörn sín og hugsað á þessa leið:
„Nú getur þetta allt gengið slétt
og rólega með guðs hjálp og
góðra manna.“
Oft naut ég þeirrar gleði að
vera samvistum við Lúðvig, þeg
ar hann var brennandi í andan-
um og barðist fyrir áhugamál
um sínum með mikilli gleði.
Ég veitti því athygli að hann
hafði til að bera þann eiginleika
sem er aðall hvers góðs
skólamanns, en það er skiln
ingur á einstaklingseðli nem-
endanna. Hann vildi hvetja
hvern ungan mann til að vinna
samkvæmt því sem eigin sam-
vizka, eigin skynsemi, og sjálf-
stæður smekkur segði fyrir um.
Þó að Lúðvig væri í eðli
sínu baráttumaður, hafði hann,
meðfram fyrir áhrif guðfræði-
deildarinnar, tamið sér að líta
svo á, að andstæðingurinn hefði
einnig sinn rétt. Af þessu leiddi,
að Lúðvig vildi aldrei láta líta á
það sem fjandskap við nokkurn
mann, þótt hann réðist á skoðan-
ir hans. Þessu er ég vel kunnugur.
Við Lúðvig vorum svo víða
skoðanabræður en andstæðingar
í opinberu máli.
Baráttan breytti í engu skoð
un minni á Lúðvig né tilfinning-
um mínum í hans garð — en ekki
heldur skoðunum mínum á bygg-
ingu Hallgrímskirkju.
Þegar litið er til baka, hygg
ég, að það sem lengst heldur
minningu Lúðvigs Guðmundsson
ar á lofti, sé skólastarf hans. Braút
ryðjandastarf í þágu listfræðslu,
í landinu var átak. sem meira
en meðalmann þurfti til.
En við, sem vorum honum
samtíða, teljum hann góðan
fulltrúa hinnar bjartsýnu og
bjarttrúuðu aldar, sem við
þekktum í æsku. Aldar, sem hafði
persónulega reynslu af heims
styrjöld og kreppu. en glat
aði aldrei þeirri bjartsýni,
og þeirri trú á sigur hins
góða, sem sprottin var af is-
lenzku trúaruppeldi liðinna kyn
slóða. Þegar ég hugsa um suma
af mínum nánustu félögum.
í æsku, sé ég fyrir mér hinar ólík
ustu myndir mannlegrar skap
gerðar, en trúajátning beirra
var mannúð og virðing fyrir
valdi hins góða í tilverunni.
Lúðvig Guðmundssson átti sér
náinn félaga, þar sem var kona
hans, Sigríður Hallgrímsdcttir.
Heimili __ þeirra var fallegt og
hlýlegt. Ég lýsi ekki nánari
atvikum, en eigi ég að telja
upp þau heimili, sem eia
hvern tíma hafa verið opis
mér og mínum, þegar mikið lá
við, myndi ég ekki draga það und
an. — Þau hjón voru mjög sam
hent og skildu hvort annað
vel. Þau hafa notið þeirrar gleði
að sjá börnin sín, þau er upp
komust, brjóta sér braut með
sæmd. Einn sonur þeirra, Hall
grímur, átti við heilsuleysi - að
stríða frá barnsaldri, og hva’rf
úr hópi lifenda hér á jörð á bezta
aldri. Það var þung raun, sem
vafalaust gekk nærri þeim hjón
um báðum. En það er „áhætta
kærleikans", sem próf. Harald
ur, frændi Sigríðar, talaði um af
mikilli snilld — að taka á sig þján
ingu annarra vegna.
Liiðvig Guðmundssson var oft
á sjúkrahúsum á seinni árum.
Ég minnist því samveru hans við
morgunguðsþjónustur á Landsspít-
alanum — og á því sjúkrahúsi
bar fundum okkar saman í síðasta
sinn, nú fyrir fáum dögum. Ég
ræði auðvitað ekkert um það sam
tal okkar hér — en því trúi ég,
að hann hafi nú tekið með ein-
hverjum hætti þá vígslu, sem hann
sá fyrir sér i djúpi vitundar sinn
ar. Guð styrki ástvini hans, og gefi
honum sjálfum „raun lofi betri“
Jakob Jónsson.
(ÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
ust í úrslitakeppnina, 7,42 metra.
I 400 metra hlaupi náði Pðl
verjinn Gredzinski beztum ár-
angri, 46,6 sek., en límir riðlarn
ir unnust á 46.7 sek, 46.9 sek
47,0 sek. og 47,1 sek.
Auk þess var keppt í tveim
ur hlaupagreinum kvenna, 100
og 400 metpa. Mótinu verður hald
ið áfram í dag, og þá keppa m.a.
íslenzku keppendurnir, Jón Þ.
Olafsson, hástökki, Valbjörn Þor
láksson, tugþraut og Sigrún Sæ-
mundsdóttir í langstökki eða
fimmtarþraut.
IÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
aði 17,22 metra. I öðru sæti
varð Margitta Gaummel, Aust-
ur-Þýzkalandi, 17,05 metra. Þriðja
varð Marita Lange, Austur-
Þýzkalandi, 16,96 metra. Fjórða
varð Galina Zybina Sovét-
ríkjunum, 16,65 metra, — og
fimmta Maria Tsjobova, BúlSariu,
15,97 metra.
IÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
og verði enn jafnt eftir fram
lengingu, þurfa Iiðin að
leika nýjan Ieik sem fram
færi á hlutlausum velli.
Ef símasamband verður
gott við Liege í kvöld mun
frásögn af leiknum birtast
í blaðinu á morgun.
Á VÍÐAVANGI
Framhald at bls. 3
inn þeim launagreiðslum, sem
algengastar eru á vinnumarkað
•num.
Sýnikennsla.
Ferill núverandi ríkisstjórn
ar er fullkomnasta sýnikennsla,
sem völ er á, í því livernig á
að ala verðbólgu. Framsoknar
flokkurinn hefur hins vegar
sýnt það hvað eftir annað, bæði
í fyrrverandi ríkisstjórn og
núverandi stjórnarandstöðu,
hvaða viðbrögð eru undirstaða
viðnámsins gegn verðbólgunni.