Tíminn - 31.08.1966, Page 14
14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 1966
í KILI SKAL KJÖRVIÐUR
IÐNlSÝWINQIN
w
IÐNSYNINGIN
1966
Opin fyrir kaupsýslumenn kl. 9—14 og almenning kl. 14—23
alla daga.
Kaupstefnan allan daginn. Veitingar á staðnum.
Aðgangseyrir 40 kr. fyrir fulorðna, 20 kr. fyrir börn. Silfur-
merki fylgir hverjum aðgöngumiða.
Banagæzla frá kl. 17—20.
Sérstakur strætisvagn allan daginn á heilum og hálfum tímum
frá Kalkofnsvegi.
KOMIÐ SKOÐIÐ KAUPIÐ
ÍSRAELSÞING
Framhald af hls. 1.
fyrír alla, án tillits til trúar-
bragða og ætternis, en framar
öðru er það tákn þeirrar ein-
ingar, sem rikir í hinu unga
Ísraelsríki. Vér skulum þess vegna
votta Gyðingaþjóðinni virð-
ingu vora og þakka það kraf taverk
að hún komst lífs af. Ein lög
fyrir alla eru frumskilyrði frið
ar og samheldni með hverri
þjóð hvort sem hún er stór eða
smá. Og þótt ísraelsbúar séu
mismunandi að trúarskoðunum
og uppruna, hafa þeir þegar
sannað þann ásetning sinn að
varðveita lög landsins óskipt
og þannig hafa þeir sýnt öðruin
þjóðum, að fólk úr ólíku um
hverfi og af ýmsum kynþátt-
um getur iifað í friði og ein-
drægni í litlu landi. Á sama
hátt vitum vér, að verði lög-
um og virðingu fyrir frelsi
beitt í sambandi við deilur þjóða
í milli getur friður ríkt
á stærri svæðum. Þetta er sá frið
arboðskapur, sem hefur borizt
frá hinu unga Ísraelsríki
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir til allra þeirra, er heiðruðu mig á
75 ára afmæli mínu þann 22. ágúst, með heimsóknum,
skeytum og gjöfum og gerðu mér daginn ánægjulegan.
Lifið heil.
Björn Sigurðsson,
Kirkjuferjuhjáleigu, Ölfusi
MóSir okkar
Guðbjörg Helga Elímundardóttir
1 ióstnóöir, Stöðvarfirði,
sem andaðist 24. ógúst, verður. jarðsett að Þingmúla í Skrlðdal mið-
vikudaginn 31. ágúst kl. 14.
Sigríður Runólfsdóttir,
Erlingur Runólfsson,
Eymundur Runólfsson.
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu vlð andlát og
jarðarför, eiglnmanns míns föður okkar og tengdaföður,
Kristjáns Jónssonar
Mimisvegi 2, Reykjavík.
Þorbjörg Kjartansdóttir,
dxtur og tengdasynir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Guðmundar Arasonar
frá Bíldudal
'Fyrir hönd vandamanna,
Rebekka Guðmundsdóttir.
Faðir okkar
Þorleifur Halldórsson
frá Árhrauni
lézt á sjúkrahúsi Selfoss 27. ágúst.
Börn hins látna.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Kristín E. Sigurðardóttir
Bólstaðarhlíð 42,
andaðist ( Landspítalanum 29. þ. m.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
þau undanfarin 18 ár, sem það
hefur aðhyllzt lýðræðisreglur og
þingræðisstjórn. Vér vonum, að sá
boðskapur, haldi áfram að breið
ast út, ekki einungis innan land
anna fyrir botni Miðjarðarhafs,
heldur um heim allan. Þessi skal
vera ósk vor á þessum dýrðar
degi, í sögu hins endurreista
ísraels," sagði Birgir Finnsson að
lokum, „og um leið skulum vér
minnast framlags Gyðinga í
þágu mannkynsins á liðnum tím-
um og baðskapar spámanna og
vitringa, sem endurómar í hæð
unum umhverfis okkur.“
Við athöfnina í dag afhentí
Kadish Luz, forseti þingsins í
ísrael, frú James de Rotschild
sérstakt þakkarávarp en hún og
maður hennar voru fulltrúar
þeirra fyrirtækja Rotsohildætt-
arinnar, sem gefið hafa megn-
ið af þeim sjö milljónum dala
sem nýja þinghúsið kostaði.
f fyrramálið verður hald-
inn sérstakur hátíðafundur
ísraelsika þingsins í nýja þinghús
inu. Síðdeigis hefur forseti lands-
ins boð inni fyrir hina erlendu
gesti og annað kvöld halda
þingforseti og kona hans veizlu.
Tilraun til
nauögunar
HZ-Reykjavík, þriðjudag.
Skömmu fyrir miðnætti sl.
Iaugardags var Iögreglunni til-
kynnt um Iíkamsárás í húsi
neðarlega við Hverfisgötu. Brá
hún skjótt við og fór á ódæðis
staðinn. Hittu þeir fyrir unga
stúlku og kærði hún yfir nauðg
unartilræði við sig.
Skýrði hún frá öllum mála
vöxtum í stuttu máfi. Hún
kvaðst hafa farið með kunningja
fólki sínu í „partí“ í áður-
greint hús, við Hverfisgötuna.
Hún kvað ungan mann, sem leig
ir í húsinu hafa boðið sér inn í
það. Datt henni ekkert ljótt í hug.
Varla var hún komin inn úr
dyrunum þegar maðurinn, sem
var við skál læsti herberginu
og leitað,i á hana. Reyndi hún
að verjast eftir mætti og kall-
aði óspart á hjálp. Kona í
næsta herbergi rann á hljóðið,
bankaði að dyrum og opnaði mað
urinn þá dyrnar, enda orð-
inn hræddur. Stúlkan var þrút-
in um úlnliðina og einnig hafði
pils hennar rifnað. Kvað hún
manninn hafa haldið sér. Hon-
um tókst ekki að fá vilja sín-
um framgengt, en var hins vegar
fluttur í örugga geymslu.
Kjördæmisliing
í Húnaveri
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra verður háð í Húnaveri 4.
september kl. 1 e. h. Auk venju
legra aðalfundarstarfa flytja al-
þingismennirnir Björn Pálsson og
Skúli Guðmundsson erindi um
stjórnmálaviðhorfið. Fulltrúar eru
livattir til að mæta vel og stund-
víslega.
Stjórn Kjördæmissambandsins.
SKÓLAR
Framhald al bls ltj
málastjórnar skólanna og skóla
stjóra tvi- og þrísettra skóla
TÍMINN leitaði í dag fregna
af þessum fundi og náði tali af
Hirti Kristmundsisyni, sikóla-
stjóra. Hann sagði, að fundur-
inri hefði verið tiltölulega mjög
fjölsóttur og hefði þar ríkt ein
hugur og samstaða um að fá
málið leyst. Hefði menntamála
ráðuneytið nú skipað viðræðu
nefnd til að fjalla um máltð og
væri þess vænzt að fundurinn
yrði grundvöllur til samkomu
lags hið allra fyrsta.
— En hvernig til tekst, vil ég
engu spá um, sagði Hjörtur —
Þar verður að arka að auðnu.
Áður höfðu skólastjórar tví-
og þrísettra skóla lýst því yfir
að þeir mundu einungis láta
skólana sfarfa reglulega dagieg
an skólatíma, ef samkomulag
næðist ekkj um aukagreiðslur
vegna tví- og þrísetningar. Á
fundinum, sem haldinn var á
sunnudaginn, var ákveðið að
slá þessum aðgerðum á frest og
munu því tví- og þrísettir skól
ar starfa eins og fyrr, þar til
lausn hefur fengizt í málinu.
SMOKKVEIÐI
Framhald af bls. 16
—500 kg aflhonuim yfir kvöldið.
Hraðfrystihiúisið hér kaupir aflann
á 5 fcr. kílóið, frystír hann síðan
og selur til beitu. Veiðarnar standa
yfirleitt yfir í mánaðartiima eða
þar til nóg hefur veiðzt.
FÁ ENGA SÍLD
Framhald af bls. 16.
nauðsynlegt er að taka afstöðu til
og ræða, því að augljósf er, að
það nær engri átt að sfldarflutti-
ingaskipin hafi heimild til að taka
ótakmarkaða síld á meðan sðltun
arstöðvar fá enga síld tjl vinnslu.
SYNDIÐ 200 METRANA!
Mikil aukning í flutningum iATA-félaganna á árinu:
Farþegaaukning 19.2%
á N-A tlantshafsleiðinni
GÞE-Reykjavík, mánudag.
f fréttatilkynningu sem blað-
inu hefur borizt frá IATA, segir,
að á fyrstu 6 mánuðum þessa
árs hafi vélar flugfélaganna
sem í sambandinu eru, flutt 1.
761.122 farþega á Ieiðunum yfir
Norður-Atlantshaf. Mun hér vera
um að ræða 19,2% aukningu í
farþegaflutningi á þessum leiðum
frá því, sem var á fyrstu 6 mán-
uðum ársins 1965- Þá hefur farm
flutningur vélanna aukizt allveru-
lega frá því sem var á fyrstu 6
mánuðum fyrra árs, og nemur
sú aukning 27,5%.
Á síðustu árum hefur sam
bandinu vaxið mjög fiskur um
Framsóknarmenn,
Mvrasýslu
Framsóknarfélag Mýrasýslu hetd
ur aðalfund sinn í Borgarnesi n.
k. laugardag kl. 2 e. h. Venjuleg
aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa
á kjördæmisþing. Almennar um-
ræður um héraðs og landsmál-
hrygg, og til samanburðar má geta
þess, að fyrstu 6 mánuði ársins
1956 fluttu vélar IATA félag
anna aðeins 325.886 farþega, og
á sama tíma á árinu 1963 fluttu
þær 994,767 farþega.
Af þeim 1.761,122 farþegum,
sem ferðuðust með vélum sam
bandsins fyrstu mánuði þessa árs,
voru aðeins 146,957 á fyrsta
farrými, en 1.614.165 voru á öðru
farrými. Á umræddu tímabili
hafði sambandið yfir að ráða
3.230.584 sætum, 2.841.773 á öðru
farrými og 388,811 á fyrsta far
rými.
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugavegl 12
Simi 35135 og eftir lokun
slmar 34936 og 36217
Eftirtalin flugfélög eru aðilar
að IATA: Air Canada, Air France
Air India, Alitalia, BOAC, Cana
dian Pacific, E1 Al, Iberia, Irish
International, KLM, Lufthansa,
Olympic, Pan American, Qant-
as, Sabena SAS Seaboard World,
Swissair og TWA.
Landrover
- diesel
til sölu, árg. 1963 í góðu á-
sigkomulagi. Upplýsingar í
síma 34960 eftir kl. 7 á
kvöldin.