Vísir


Vísir - 23.07.1975, Qupperneq 1

Vísir - 23.07.1975, Qupperneq 1
65. árg. — Miðvikudagur 23. júlí 1975 —164. tbl. HITINN FÓR LÆGST NIÐUR í 0 STIG Á LANDINU — siglingaleið ógreiðfœr vegna íss fyrir Horni Hitastigið fór niður I 0 i Sand- búðum i nótt, og á fleiri stöðum var það mjög lágt. A Hornbjargs- vita fór hiti niður f 1 stig þegar kaldast var, og þaðan barst skeyti til Veðurstofunnar i morgun klukkan 9. Þar sagði að heiman frá séð, það er af hlaðinu, væri haffs frá landi á stórum hluta þess hafsvæðis, sem sést yfir. Siglingaieiðin er ógreiðfær en skyggnið nokkuð gott, eða 15-20 km. Það er því sannarlega ekki sumarlegt á landinu þessa dagana. A Hveravöllum fór hiti niður f 1 stig, á Galtarvita niður i 3 stig, á Grfmsstöðum niöur í 3 stig og á Akureyri niður i 5 stig. Hér i Reykjavik varð hitinn lægstur 6 stig i nótt, en I morgun um klukkan 9 var hitinn 7 stig. í norðanstrekkingi eins og nú er getur þetta skeð, og veöur- fræðingar sjá ekki fyrir endann á norðanáttinni. —EA Brezki fiskiðnaðurinn: Hvetur stjórnina til samninga um 200 mílna fiskveiðilögsögu Eiga íslend- ingar að eiga meiri- hluta í fyrir- tœkjunum? — baksíða Hundarnir sigruðu í mannréttinda- nefndinni — baksíða Lóðir á markaði í Mosfellssveit — bls. 3 Fró Skotlandi til Noregs — um ísland — baksíða Hamstrið mest í stóru raftœkjunum — baksíða íbúðaverðið hœkkar eftir því sem nœr dregur miðbœnum — bls. 4 — tck þrjó og hólfan tíma fró landi Fór á kajak til Eyja! Hann tók sér nokkuð óvenju- lega ferð fyrír hendur Þjóðverj- inn Ernst Mayer. Hann fór á 12- feta löngum kajak innan úr -Þórsmörk til sjávar og tók svo stefnuna á Vestmannaeyjar. Ferðin tók þrjá og hálfan tíma og gekk vel. Ernst kom til Islands 1. júli. Sjálfur kom hann með flugi, en sendi farkostinn sjóleiðis. Hann hefur ferðazt talsvert um Suðurlandið. Byrjaði á þvi að ganga á Heklu, sigldi siðan nið- ur Rangá og Hólsá og niður að sjó. Þar pakkaöi hann bátnum sinum saman og ferðaðist á puttanum inn i Þórsmörk. Er hann hafði skoöað Þórsmörk- ina, var bátnum komið i siglingafært form, og viðleguút- búnaðinum komið fyrir. Siðan var siglt niður Krossá og að Stóra-Dimon. Við Krossársand var tjaldað og beðið i 3 daga vegna veðurs. Siðan var rennt niður Markarfijót 22. júli og út i sjó um miöjan dag og stefnan tekin á Eyjar. Ferðin gekk vel og nú dvelur ‘Ernst i Eyjum. Heim heldur hann aftur siðast i júli, en hygg- ur kannski á aðra heimsókn næsta ár. — GS/EA. Ernst Mayer með kajakinn sinn, sem hann fór á um árnar á Suöurlandi og loks úr Þórsmörk út til Vest- mannaeyja. Ljósm. Guðm. Sigfússon. A lokuöum fundi fulltrúa brezka fiskiðnaðarins í gær var rætt ítarlega um hugsanlega útfærslu fisk- veiðilögsögu Bretlands í 200 mílur. Megn óánægja var með stefnu Efnahags- bandalags Evrópu i fisk- veiðimálum. Fred Pearth, sjávarútvegsráðh. Bret- lands/ sagði enda á fundi í Brússel/ að með tilliti til gerbreyttra aðstæðna væri tímabært að endurskoða þessa stefnu. A fundi fiskiðnaðarins voru meðal annars fulltrúar togara- manna, bátasmiða, fiskbúða, fiskiðjuvera, fiskkaupmanna, Is- verksmiðja, flutningafyrirtækja, neytenda, bolfiskveiðinefndar- innar og sildveiðinefndarinnar. Meðal fundarmanna var Paul Tapscott framkvæmdastjóri Associated Fisheries, sem er stærsta togaraútgerðarfélag i Vestur-Evrópu. Visir hafði sam- band við hann i morgun. — Það var rætt almennt um erfiðleika fiskiðnaðarins og i þvi sambandi talað mikið um 200 milna fiskveiðilögsögu og stefnu Efnahagsbandalagsins, sem allir eru óánægðir með. Rikisstjórnin var hvött til að hefja viðeigandi samninga um útfærslu, til þess meðal annars að reka á eftir haf- réttarráðstefnunni. Menn eru óánægðir vegna seinagangs henn- ar. Fred Pearth, sjávarútvegsráö- herra, var á fundi i Brussel i morgun, en Visir náði sambandi við talsmenn hans. — Ráðherrann sagði i Brussel að stefna Efnahagsbandalagsins þyrfti endurskoðunar við vegna breyttra aðstæðna. Spurninguna um 200 milna efnahagslögsögu EBE verður að skoða i ljós þess, að á Hafréttarráðstefnunni var Bretland hlynnt hugtakinu um 200 milna lögsögu. Aðeins þó með þvi að það yrði gert með alþjóðlegum sáttmála. — Hvaða áhrif þetta kann að 'hafa á útfærslu íslendinga i 200 milur er ekki hægt að segja. Það verður að biða samningavið- ræðna við islenzk yfirvöld. — Ó.T.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.