Vísir - 30.07.1975, Side 3
Vlsir. Miðvikudagur 30. júll 1975.
3
Kerfið sigraði glœsi-
lega í fyrstu umferð
Erling Aspelund og Jörgen Jensen meö nokkur af þeim plögg-
um, sem þeir öfluðu sér til aðreyna að ná maskinunni I gegn-
um kerfið. Mynd: ÓT.
Jensen og kerfið:
— Mér finnst ég orð-
inn að athlægi hjá þess-
um mönnum, sem ég
hafði ónáðað frá störf-
um sinum og boðað til
fundar við mig, sagði
Jörgen Jensen frá Dan-
mörku, eftir að hafa
gertapað fyrstu umferð
i baráttu sinni við
,,kerfið” hér á íslandi.
Hann kom hingað siðastliðinn
laugardag til að kynna lyfsölum
nýja vél til að skrifa út miða á
lyfjaumbúðir. Hann kom með
eina slíka með sér til að sýna
væntanlegum viðskiptavinum
og það var út af henni, sem hann
lenti i slagsmálum við kerfið.
— Það stóð aldrei til að selja
þessa vél, þetta er aðeins sýn-.
ingargripur,semég tek með mér
aftur, og mér datt aldrei I hug,
að það gæti verið svona erfitt.
— Það var byrjað að undir-
búa þetta fyrir löngu og starfs-
fólk mitt I Danmörku hafði stað-
ið I bréfaskriftum við ýmsa að-
ila til að tryggja, að þetta gengi
fljótt og snurðulaust fyrir sig.
— Ég hafði boðað mennina til
fundar við mig á þriðjudags-
morgun kl. 10, en kom sjálfur á
laugardag, meðal annars til að
skoða mig um á Islandi. Vélin
var ekki komin á Hótel Loftleið-
ir, eins og ég hafði vonað, en ég
hafði ekki neinar áhyggjur af
þvl, taldi, að nægur tlmi væri til
stefnu. Ég var búinn að ákveða
skoðuparferð á mánudeginum,
en Erling Aspelund, einn af
starfsmönnunum I gestamót-
tökunni, ætlaði að ganga frá
minum málum. Það er bezt, að
hann segi sjálfur sina sögu.
— Ég byrjaði á þvi að fara
niður i Eimskip, segir Erling. —
Þeir sögðu mér að fara upp I toll
og gera pappirana klára og
koma svo strax aftur. Ég fór i
tollinn, en þar vildu þeir fá
frumrit af pappirunum, svo ég
hringdi út á hótel til að spyrja
ráða. Þar töldu menn liklegast,
að frúmritið væri i kassanum,
svo ég fór út i vöruskála A hjá
Eimskip og var visað þar á milli
manna góða stund. Loks var
mér sagt, að þeir gætu ekkert
gert i málinu, þvi það væri svo
nýbúið að skipa upp úr Irafossi.
— Nú, ég rölti aftur á skrif-
stofu Eimskips og spurði, hvort
ég gæti ekki fengið þeirra
stimpil á afritið, sem ég var
með. Þeir sendu mig i Seðla-
bankann, og þar hitti ég konu,
sem sagði mér, að engan stimpil
þyrfti, þvi þetta væri bara sýn-
ingarvél, sem ekki yrði seld hér.
Hún ráðlagði mér að fara upp á
Laugaveg 77 i gjaldeyrisdeild
bankanna og ná i bréf, sem
heimilaði, að þetta færi i gegn
án stimplunar.
— Ég þangað. Þar var mér
tjáð, að ég yrði að koma með
skriflega beiðni. Ég hringdi nið-
ur i Seðlabanka til konunnar,
sem ég hafði talað við áður, og
tókst að pressa þetta i gegn.
— Harla glaður skokkaði ég
nú niður i toll og sagði þeim að
,nú væri sko allt i lagi. 0 ekki,
góurinn, sögðu þeir. Nú varð ég
að fara i fjármálaráðuneytið.
Þar átti ég að fá skriflega heim-
ild um, að vélin mætti inn i land-
ið án tolla. — Ég þangað. Þar
hitti ég fulltrúa Björns Harðar-
sonar, sem sýndi málinu skiln-
ing, en hafði ekki tima til að af-
greiða það. Sagði mér að koma
aftur kl. 9 daginn eftir.
— Nú, klukkan 9 daginn eftir
fór ég þangað ásamt Jensen og
við hittum Björn, sem skrifaði
út fyrrnefnt plagg. Hann sagði
svo, að við þyrftum að fara i
tollinn og ganga frá banka-
tryggingu fyrir andvirði vélar-
innar.
— Við þangað. Þar hittum við
mann, sem leit á þetta og sagði,
að við yrðum að fara i ábyrgða-
deild bankanna i Landsbanka-
húsinu I Austurstræti.
— Við þangað. Þar var okkur
sagt, að við værum ekki i réttri
deild og yrðum að fára i Hafnar-
hvol, — við þangað.
Þar hittum við mann, sem
visaði á konu, sem visaði á
mann. Jensen spurði þennan
mann, hvort hann gæti hringt i
bankann sinn i Danmörku til að
ganga frá tryggingunni. Hann
skyldi að sjálfsögðu greiða sim-
talið. Nei, nei, það var útilokað.
Það yrði að skrifa beiðni og svar
yrði að koma á telex.
— Þegar þannig var komið,
var klukkan orðin 10.30 og
mennirnir, sem Jensen hafði
boðað til fundar við sig, búnir að
biða I hálftlma, svo við fórum
aftur heim á hótel. Þá var enda
ekkert annað, að gera en biða
eftir tryggingu upp á rúmar 564
þúsund krónur, fyrir að fá að
hafa þennan sýningargrip á
landinu i nokkra daga.
— Þetta var sem sagt alveg
einstakt ævintýri. Okkur var
ekki aðeins visað á milli stofn-
ana, heldur og á milli manna I
þessum stofnunum. Enginn
virtist geta tekið ákvörðun um
nokkurn skapaðan hlut. Og i
tollinum t.d. voru tvær stúlkur
við afgreiðslu, þegar við
komum I eitt skiptið. Þá var
þó ekkert hægt að gera,
þvi það var einhver maður
i kaffi og við urðum að biða
i hálftima, ásamt fjórum
öðrum, eftir þvi að hann kæmi
aftur. Maðurinn er greinilega ó-
missandi. Það lamast öll starf-
semin, þegar hann bregður sér
frá. En alla vega fór fundur
Jensens út um þúfur, þannig að
kerfið vann fyrstu umferö.
Og Jensen dæsir mæðulega. —
Ég hef aldrei lent i öðru eins.
Eini ljósi punkturinn i þessu öllu
saman er sú frábæra þjónusta
og aðstoð, sem ég hef fengið hér
á Loftleiðum. — ÓT
Nœrri
492
milli.
lagðar
W W
a i
Eyjum
Heildartala þeirra gjalda, sem
innheimta skal I Vestmannaeyj-
um á þessu ári, er 491.960.992. Þar
af er hlutur bæjarsjóðs
215.764.500,-.
Skattskráin I Vestmannaeyjum
var lögð fram i gær með þessum
niðurstöðutölum. Hæstu gjald-
endur af einstaklingum eru: Jón
Hjaltason, hæstaréttarlögmaður,
kr. 2.793.991,-, Þórarinn Sigurös-
son, rafvirki, kr. 2.540.934,- og
Finnbogi Friðfinnsson, kr.
2.067.342,-.
Þessi félög eru hæst: Fiski-
mjölsverksm iðjan hf., kr.
12.790.985,-, Vinnslustöðin kr.
8.705.449,- og isfélag Vestmanna-
eyja með kr. 7.777.320,-.
—SHH
Sigfús Jónsson,
fyrrum fram-
kvœmdastjóri
Morgunblaðsins
lótinn
Sigfiis Jónsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Morgunblaösins,
lézt I Landakotsspitala aðfaranótt
sunnudagsins, 77 ára að aldri.
Meðan hann naut heilsu og starfs-
krafta lét Sigfús mjög til sln taka
öll mál, er varða prentiönað og
biaðaútgáfu.
Hann var I stjórn félags prent-
smiðjueigenda um margra ára
skeið, i st jórn Sambands bókaiðn-
aðarins frá stofnun þess 1965 og i
stjórn Lifeyrissjóðs blaðamanna
frá stofnun hans 1959 til ársins
1970.
Sigfús var fæddur á Hofsstöð-
um I Miklaholtshreppi, sonur
hjónanna Jóns Þórðarsonar,
bónda, og Kristinar Hannesdótt-
ur. Hann starfaði við Morgun-
blaðið frá 1923, fyrst sem gjald-
keri og siðan sem framkvæmda-
stjóri frá 1942 til 1968, þegar hann
lét af störfum sökum heilsu-
brests.
Spánska ferðamálaráðuneytið:
800 þúsund peseta fjárveiting
til að heimsœkja Club Mallorca
— Dansflokkur í
fylgd með
embœttismönnunum
— Það er búið að
samþykkja 800 þúsund
peseta fjárveitingu
fyrir ferðinni til íslands
og auk borgarstjórans i
Palma og fulltrúa frá
ferðamálaráðuneytinu
fáum við hingað heilan
dansflokk, sagði Axel
Retana, formaður Club
Mallorca, við Visi i
gær.
— Það hefur dregizt, að þetta
fólk kæmi og þvi þykir eins mik-
ið fyrir þvi og okkur. Astæöan er
miklir erfiðleikar i hótelmálum
á Mallorca og viðar á Spáni.
Hótelin hafa yfirbókað svo, að
sums staðar horfir til vandræða
og embættismenn ferðamála-
ráðuneytisins hafa þvi I mörg
horn að lita.
\ — Okkar hótelmál eru þó i
Kristileg ráðstefna í Reykjavík:
1150 norrœnir gestir
— Orð Guðs til þin, eru ein-
tunnarorð 1350 manna ráðstefnu,
sem haldin verður i Reykjavik
iagana 6,—12. ágúst næstkom-
andi. Það eru félög kristilegra
stúdenta á Norðurlöndum, sem
mæta til ráðstefnuhalds, þar af
um 1150fráhinum Norðurlöndun-
Laugardalshöllin verður notuð
sem ráðstefnusalur, en erlendum
gestum verður komið fyrir i skól-
um i grennd við hana, eftir þvi
sem kostur er.
Að vonum verða fluttir fyrir-
lestrar um margvisleg efni kristi-
leg og bibliulestrar- og umræðu-
hópar munu fjalla um ýmsa þætti
trúarinngr. Ráðstefnugestir fara
i heimsókn til Skálholts, þar sem
biskupinn yfir Islandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, messar.
Að ráðstefnunni lokinni munu
ýmsir þátttakendanna frá hinum
Norðurlöndunum vera hér áfram
i nokkra daga og ferðast um land-
ið. — óT
góðum höndum, þvi það er
ráðuneytið sjálft, sem hefur þar
milligöngu, og það verður allt
tilbúið, þegar við leggjum upp I
fyrstu ferðina I september.
— Ég talaði við einn af að-
stoðarmönnum ferðamálaráð-
herrans á laugardag, og það var
hann, sem sagði mér, að 800
þúsund peseta fjárveiting hefði
verið samþykkt. Hann lofaði, að
á næstu dögum fengjum viö bréf
með nánari upplýsingum og
meðal annars yröi heimsóknar-
dagurinn ákveðinn.
— Erfiðasta vandamálið,
sem við eigum nú við aö striða,
er húsnæðisleysi. Við höfum
verið að leita eftir einhverri
kompu, þar sem viö gætum sett
upp skrifstofu fyrir klúbbinn
og haft simaþjónustu. En verðið
er svo óheyrilegt, að við höfum
ekkert getað fest okkur ennþá.
Ég verð þvi bara að bjóða fólki
að hringja heim til min, ef það
vill leita upplýsinga. Það eru
þegar um 50 manns búnir að
skrá sig i septemberferðina, en
væru sjálfsagt fleiri, ef við hefð-
um einhverja aðstöðu. —ÓT
—ÓT