Vísir - 16.08.1975, Síða 1
ÖRYGGISRÁÐSTEFNAN ÁRANGURSRÍK,—
bÓTT EKKI FENGJU ALLIR FRAM
ÞAÐ SEM ÞEIR VILDU - VÍSIR RÆÐIR
VIÐ KEKKONEN, FORSETA FINNLANDS
BAKSIÐA
SJÓNVARPIÐ:
Þarf að
skipta
um topp-
ana á
átta ára
fresti?
Þegar gerð er 25 minútna
kvikmynd, kostar hún um 2
milljónir með ýtrustu spar-
semi, en það, sem Sjónvarpið
hefur viljað borga fyrir sýn-
ingarrétt á slikri kvikmynd i
tvö skipti eru 80-90 þúsund
krónur. Ef myndin er unnin
hér, til dæmis i Sjónvarpinu,
þá kostar aðstaðan þar 200
þúsu. krónur, svo að i raun-
inni þjrfa kvikmyndatöku-
menn að borga með myndinni,
þegar þeir leigja Sjónvarpinu
hana, sagði Gisli Gestsson,
formaður Félags kvikmynda-
tökumanna.
Einnig finnst okkur kvik-
myndatökumönnum við fá lit-
ið að gera hiá Sjónvarpinu, til
dæmis hefði kvikmyndin, sem
ég gerði um Reykjavik, aldrei
verið sýnd, nema vegna góð-
vildar Reykjavikurborgar.
„Að minuáliti þarf að skipta
um yfirstjórn sjónvarpsmála
á a.m.k. 8 ára fresti, sama hve
góðuryfirmaðurinn er, til þess
að fyrirbyggja stöðnun,”
sagði Gisli.
— HE
Sjá nánar um þetta mál i út-
varps- og sjónvarpsdag-
skránni bls. 16.
•
BAÐA SIG í
GRJÓTAGJA, Á
EIGIN ÁBYRGÐ
—. BLS. 3
Hornsteinn Sigöldu- m m gf J £ jy JT
rí— Nu raöumst vio i
Hrauneyjafossvirkjun
— og nú verður meira lagt upp úr alíslenzkum vinnukrafti en áður
CX'é'-ú í''
Kristján Eldjárn fékk góða aðstoð hjá Júgóslavanum Kovacevic við múrverkiö inni viö Sigöldu f gær-
dag. Kovacevic er yfirmaður júgóslavneska verktakafyrirtækisins á staðnum. — Ljósm. Jón B.
Hornsteinn að
stöðvarhúsinu við Sig-
öldu var lagður i gær af
forseta tslands. í þvi til-
efni var efnt til athafnar
við stöðvarhúsið i gær-
dag, er nákvæmlega 8
daga vantaði á, að tvö ár
væru liðin frá undirritun
verksamninga um virkj-
unina.
Við athöfnina lét Jóhannes
Nordal, formaður stjórnar
Landsvirkjunar, þess getið, að
áður en verulega færi að draga úr
verkefnum, yrði ráðizt i enn eina
stórvirkjunina, Hráuneyjarfoss-
virkjun. Verður hin nýja virkjun
210 megavött, en til samanburðar
má geta þess, að Búrfellsvirkjun
er 210 megavött en Sigalda mun
framleiða 150 megavött.
t ræðu Jóhannesar kom jafn-
framtf ljós, að hlutur Islendinga i
'hinni nýju virkjun muni stór-
aukast frá þvi sem verið hefur.
Hafi ætið verið að þvi stefnt, að
hlutur Islendinga i byggingu
nýrra virkjana ykist með hverri
stórvirkjuninni, sem ráðist yrði i.
Þegar hornsteinn nýju
virkjunarinnar var lagður i gær-
dag, voru framkvæmdir við hina
nýju virkjun orðnar fjóra til fimm
mánuði á eftir áætlun. t stað þess,
sem ráð var fyrir gert i upphafi,
að hægt yrði að vigja virkjunina
og taka fyrstu vélasamstæðuna i
notkun þann 15. júni á næsta ári,
er ljóst, að af þvi getur ekki orðið
fyrr en seint i október. Vélasam-
stæður hinnar nýju virkjunar eru
samtals þrjár — og er áætlað, að
önnur og þriðja samstæðan kom-
ist ekki i gagnið fyrr en á fyrsta
ársfjórðungi ársins 1977.
Nánar er sagt frá athöfninni við
Sigöldu á bls. 3 i dag.
—JB
Hœkkun veitinga
húsanna ólögleg
„Höfum heimild", segja veitingamenn
— Ég álit þessa hækkun veit-
ingahúsanna ólöglega, sagði
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
við Visi i gær, þegar hann var
spurður um þá ákvörðun
veitingahúsanna að hækka að-
gangseyri um 100 til 200 prósent.
Aðgangseyrir að vinveitinga-
stöðum hefur um nokkurt skeið
verið 100 krónur, en veitinga-
húsin hækkuðu hann upp i 200
krónurogsum upp i 300, nýlega.
— Ég hef rætt þetta mál við
fulltrúa veitingamanna og á von
á þvi, að þetta verði lækkað en
svo send formleg beiðni um
verðhækkun, sem við tökum til
athugunar, sagði Georg.
— Ég býst ekki við, að verðið
lækki um helgina, þvi að við
teljum okkur þegar hafa heim-
ild til þessarar hækkunár, sagði
Hafsteinn Baldvinsson, lög-
fræðingur Samtaka veitinga- og
gistihúsaeigenda. Ég mun hins
vegar senda verðlagsyfirvöld-
um forsendurnar fyrir þvi, að
ákveðið var að hækka miða-
verðið nú.
— Þegar við höfum sent inn
hækkunarbeiðnir, hafa þær
fjallað um þjónustu húsanna i
heild. Við höfum fengið nokkur
leyfi til hækkunar á undanföm-
um árum, en þótt við höfum tal-
ið, að miðaverðið væri þar inni-
falið, hefur það ekki verið hækk-
að fyrr en nú. Verðið hefur verið
óbreytt siðan 1973. Af þessum
200 krónum, sem miðarnir hafa
nú hækkað upp i, renna 82 til
rikisins og i prentkostnað, 40
fara til fatageymslu en húsin fá
78 krónur. Ýmislegt annað hefur
hækkað til samræmis við þetta
—■ og sumt hefur hækkað marg-
falt. Við teljum þvi þessa hækk--
un timabæra og leyfilega—OT.
AÐ NA MYNDINNI
ÞAÐ TÓK FIMM ÁR
— baksíða