Vísir - 06.09.1975, Blaðsíða 1
VISIR
65. árg. — Laugardagur 6. september 1975 — 202. tbl.
„Flugrán
um miðjan
dag'7
Sjá umsagnir um flugfreyju-
verkfalliö á bls. 3.
Straurn- Bakhliðin á
hvörf í al- bridge-
þfóða- heilrœði
málum bb.4 Reese g"9
Hvað er í töskunni?
Blaöamenn Visis röltu um
miöbæinn og fengu að gægjast
i virðulegar skjalatöskur veg-
farenda. — Sjá bls. 7.
•
Forsœtisráðherra
til Noregs
Geir Hallgrimsson, forsæt-
isráðherra, og Erna Finns-
dóttir, kona hans, fara i opin-
bera heimsókn til Noregs 17.
þessa mánaðar. Heimsóknin
stendur til 20. — Tryggve
Bratteli, forsætisráðherra
Noregs, bauð islenzka forsæt-
isráðherranum i opinbera
heimsókn i júni en ekki varð af
þeirri heimsókn sökum anna
Geirs Hallgrimssonar.
indi byssu að Ford
Kona, sem var fjölskyldu-
meðlimur „Mansons-morðfjöl-
skyldunnar”, beindi hlaðinni
skammbyssu sinni að Gerald
Fordj Bandarikjaforsetaj I gær
og gerði sig liklega til að hleypa
af.
Lifvörður forsetans fékk grip-
iö I hönd konunnar á elleftu
stundu, fellt hana til jarðar og
afvopnað án þess að nokkru
skoti væri hleypt af.
Ford, sem er á ferðalagi um
riki vesturstrandarinnar, sak-
aði ekki en honum virtist hins
vegar veröa mikið um þennan
atburð.
Lögreglan hefur borið kennsl
á konuna. Er þarna á ferð
Lynne Alice Fromme, 26 ára
stúlka, félagi úr hippahópi
þeim, sem fylgdi Charles Man-
son. Manson þessi situr I fang-
elsi og afplánar lifstiöardóm
fyrir morðið á leikkonunni
Sharon Tate. — Er mönnum
ekki enn liðinn úr minni hryll-
ingurinn frá þvi voðaverki sem
vakti athygli um heim allan
1969.
Ford forseti var á leið gang-
andi frá gistihúsi sinu i átt til
þinghallar Kaliforniufylkis i
borginni Sacramento þar sem
hann ætlaði aö flytja ræðu um
glæpii Bandarikjunum. Nokkur
mannsafnaður var á leið hans
og nálgaöist forsetinn fólkið
hrööum skrefum til að kasta á
það kveðju þegar ein kona i
hópnum brá skyndilega upp
silfursleginni skammbyssu,
Sjónarvottur sagði að forset-
anum heföi brugðið mjög. Hann
beygði sig og brá fyrir sig hendi
en konan hrópaði: „Fólkið fær
ekki það sem það leitast við að
fá!”
Lifvörður forsetans brá viö
svo skjótt að hann fékk afvopn-
að konuna áöur en alvarlegt slys
hlauzt af. Fékk hann sár á hend-
ina þegar hann klemmdist á
milli um leið og hamarinn small
i byssubóginn.
Kona var siðan flutt á lög-
reglustöðina en llfverðir forset-
ans flýttu sér að forða honum á
óhultan stað.
Lynne Alice Fromme gekk
undir nafninu „Squeaky” þegar
hún var i hippaflokki Mansons.
Hún tók þátt I mótmælaaögerð-
um fjölskyldunnar þegar mála-
ferlin stóðu yfir gegn Manson og
þremur stúlkna hans. Stóð hún
við dómhúsið ásamt „systrum”
sinum með nauðrakaö höfuð og
„X” skorið á enni sér.
Heitt vatn
með skipum
mijli hafna
á íslandi?
Ákveðið hefur verið að gera sérstaka athugun á
þvi hvort hagkvæmt sé að flytja heitt vatn með
skipum frá höfnum nærri jarðhitasvæðum hér á
landi til þéttbýlisstaða meðfram ströndum þar sem
ekki er jarðvarmi. — Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra, hefur skipað nefnd til að kanna málið og i
henni eru: Þóroddur Th. Sigurðsson, vélaverkfræð-
ingur, dr. Guðmundur Magnússon, prófessor og
Pétur Stefánsson, byggingaverkfræðingur. —
Nefndin er skipuð i framhaldi af athugunum sem
gerðar hafa verið á þeim kostum sem fyrir hendi
eru úm húshitun með rafmagni og heitu vatni.
Bridge gegn skók
Bridgespilarar og skákmenn
hafa ákveðið að láta ekki sitja
við stóryröin ein. Akveöið hefur
verið að tólf kappar úr hvorri
fylkingunni heyi eins konar
bændaglimu i skák og bridge I
lok næstu viku.
Fulltrúar frá B.ridgefélagi
Reykjavikur og Skákfélagi
Reykjavikur hittust I gær og þar
var ákveðið að hólmgangan
skuli fara fram föstudaginn 12.
sept., laugardaginn og ljúka á
mánudeginum.
Hvor um sig sendir tólf menn
fram á völlinn og tefla allir
bridgemennirnir tvisvar sinn-
um 5 minútna skákir við alla
skákmennina. Siöan verður
skipt I þrjár 4ra manna sveitir
og spila þær allar hver við aðra
(nema ekki innbyrðis). Verða
það sextán spila leikir.
Ekki hefur enn verið tilkynnt
um liðsskipan en vlst er að þar
verður vandað til valsins, þvi
hvorugur vill láta sinn hlut fyrir
hinum. GP
Blundað í verzlunargötu
í ys og þys verzlunargötu á borð við Skólavörðustiginn nær enginn
að festa svefn nema þeir allra réttlátustu. Tvlburarnir hérna á
myndinni tilheyra greinilega þeim hópi. Þegar móðirin dvaldi inni I
verzluninni hvernig gátu þeir þá betur stytt sér biðtimann nema
með þvi að fá sér hænublund I góða veðrinu I gær? —Ljósm.: BG