Vísir - 09.09.1975, Qupperneq 1
..Tel gfareiðslu-
bann rétt"
— segir
Einar
Ágústsson
„Ég held það sé rétt
að setja afgreiðslubann
á eftirlitsskipin, ” sagði
Einar Ágústsson utan-
rikisráðherra i viðtali
við Visi i morgun.
Hann sagðist ekki
vita hug samráðherra
sinna til þess að af-
greiða ekki vestur--
þýzku eftirlitsskipin i
islenzkum höfnum.
,,Ég býst við að þetta
mál verði tekið fyrir á
rikisstjórnarfundi i
dag,” sagði Einar.
-ÓH.
„Erlendar skuldir
300 þús. á mann
,,í dag má ætla, að erlendar
skuldir tslands nemi um 300 þús-
und krónum á hvert mannsbarn,
eða helmingi hærri en í Dan-
mörku. Væri ekki rétt að stuðla að
aukinni söiu inniends iðnvarnings
á kostnað innflutnings, og draga
þannig úr skuidasöfnun er-
lendis”. — Þetta sagði Kristinn
Guðjónsson, varaformaður Fé-
lags islenzkra iðnrekenda, er
hann setti Kaupstefnuna Islenzk-
ur fatnaður.
Kristinn sagði, að stjórnvöld
þessa lands hefðu fyrr og siðar
sýnt ótrúlegt skilningsleysi á
þjóðhagslegu gildi framleiðslu-
iðnaðar. Iðnaði væri iþyngt
meira, en gerist meðal þeirra
þjóða, sem tslendingar ættu i
samkeppni við. Honum væri
iþyngt meira en landbúnaði og
fiskveiðum.
Kristinn bætti við:
„Vinnsluvirði framleiðsluiðnað-
ar var samkvæmt áætlun Þjóð-
hagsstofnunar 12 -milljarðar 1974
og geta menn spreytt sig á að
áætla vinnuvirðið 1975 með hlið-
sjón af hækkandi verðlagi. Óhag-
stæður verzlunarjöfnuður nam 14
milljörðum 1974, en hefði senni-
lega numið 30 milljörðum, ef
framleiðsluiðnaður væri ekki til
staðar”.
Kristinn sagði, að uppræta yrði
þann hugsunarhátt, að erlendar
vörur væru betri, einungis vegna
þess að þær væru innfluttar.
—AG
Ringul-
reið í
kvöld!
Þetta er World premier á
nýrri óperu, sagði Flosi ólafs-
son, annar höfunda óperunnar
Ringulreiðar, sem verður frum-
sýnd í kvöld.
Við Magnús Ingimarsson,
sem semur tónlistina, eins og
öllum er kunnugt, höfum unnið
saman i 15 ár, hann hefur búið
til mörg tónlistarverk við leik-
list, sem ég hef sett saman,
sagði Flosi.
Með aðalhlutverk fara Sig-
riður Þorvaldsdóttir, Árni
Tryggvason, Randver Þorláks-
son, Ingunn Jensdóttir og Guð-
rún Stephensen. Sigriður er
jafnframt aðstoðarleikstjóri.
Elin Edda Arnadóttir samdi
dansana — og dansar hún ásamt
Björgu Jónsdóttur. Leiktjöld
gerði Björn Björnsson.
Fjögurra manna hljómsveit
leikur undir og spilar einn hljóð-
færaleikarinn á 24 hljóðfæri.
Fyrsta sýning á Coppeliu, þar
. sem Helgi Tómasson og Auður
Bjarnadóttir dansa saman,
Verður þann 12. september — en
siðastasýningin verður þann 15.
september.
HE.
Ingimar
Eydal lék
fyrir Önnu
Maríu og
Constantín
— sjó baksíðu
Þörungavinnslan byrjar
útflutning í nœstu viku
Þörungavinnslan hf. á
Reykhólum sendir sinn
fyrsta farm af þangmjöli
til Skotlands í næstu viku.
Það verða líklega 200 tonn
— og þar sem 40 þúsund
krónur fást fyrir tonnið,
er heildarverðmætið 8
milljónir.
Gert er ráð fyrir, að verk-
smiðjan framleiði 6700 tonn á
ári af þurru mjöli, þegar hún er
komin i fullan gang, en það
gerir 268 milljónir króna.
Verksmiðjan verður formlega
tekin i notkun næsta föstudag,
en tilraunavinnslan hófst um
miðjan júli siðastliðinn.
Vilhjálmur Lúðviksson, hjá
Iðnþróunarnefnd, sagði Visi, að
gallar hefðu komið fram i
tækjabúnaði og hefði það valdið
töfum.
Ekkiværuþeir lausir við alla
byrjunarörðugleika, þótt
gallarnir hafi verið lagfærðir,
en þeir yrðu lagfærðir smátt og
smátt eftir þvi sem reynsla
fengist af rekstrinum. Áætlað
er, að stofnkostnaðar verði 425
milljónir og búið er að ráðstafa
380 milljónum þar af. Tuttugu
manns starfa nú við verk-
smiðjuna, en ættu að verða 40
eða fleiri, þegar mest er að
gera.
-ÓT.