Vísir - 09.09.1975, Síða 13
Visir. Þriðjudagur 9. september 1975.
13
STARFS-
KYNNING
f SJÓN-
VARPINU
Danska sjónvarpið
hefur verið með
skemmtilegar starfs-
kynningamyndir á
dagskrá sinni. Það
hefur fylgt eftir fólki
úr ýmsum starfsgrein-
um og myndað það i
dagsins önn. í einum
þættinum tóku þeir
fyrir tízkuljósmyndar-
ann Britt Lindemann.
Britt fór með unga
fallega stúlku og gam-
alt járnrúm út í móa og
þar byrjaði hún að taka
tízkumyndir og sjón-
varpið að taka myndir
af henni að taka tízku-
myndir. íslenzka sjón-
varpið hefur stundum
tekið ágæta þætti upp
eftir það danska.
Kannski....
Þrjú þúsund dollarar á
viku nægðu ekki til að fá
Carl Rizzo til að halda
áfram sem staðgengill
við kvikmyndun hákarla-
myndarinnar hrikalegu,
„Jaws". Rizzo er nánast
dvergur, aðeins rúm
f jögur fet á hæð, og hann
var fenginn til að fara
niður í hákarlabúrið, til
að hægt væri að fá
nærmyndiraf hákörlum í
kringum það. Þeir áttu
eiginlega að ráðast á búr-
ið og þann leik átti að
mynda sem kafla í kvik-
myndinni.
Eizzo var einmitt valinn með
tilliti til stærðarinnar eða skorts
á henni. Vegna þess hve hann er
litill, myndu hákarlarnir sýnast
enn stærri. Allt gekk vel i fyrstu
og Rizzo fór niður i búrinu, að
4
Hákarl ræðst á búr Carls Rizzo
og reynir að mölva það til að
komast að honum.
virða fyrir sér hákarlana. En
svo syrti i álinn.
Risastór hvitur hákarl kom
syndandi á mikilli ferð að búr-
inu og einir tiu eða tólf aðrir
fylgdu honum eftir. Sá stóri
lamdi hausnum i búrið af miklu
afli og hinir hákarlarnir renndu
sér á það, hver af öðrum.
Búrið hentist til sitt á hvað.
Rizzo reyndi að reka hákarlana
burt með þvi að pota spjótinu
sinu i þá, en það þýddi ekki.
Hann varð skelfingu lostinn,
þegar allt útlit var fyrir, að
hákarlarnir mölbrytu búrið og^
hökkuðu hann i sig.
' — Þéir fiöfðu piskáð vátnið
upp, svo að ég sá þá varla. Ég
varð ofsalega hræddur. Sjór
byrjaði að leka inn i gleraugun
min og ég var of hræddur til að
hafa rænu á að hreinsa af þeim.
Ég rykkti æðislega i liflinuna og
strákarnir drógu mig upp eins
hratt og þeir gátu. Ég var með-
vitundarlaus, þegar ég kom upp
á yfirborðið og það var krafta-
verk, að ég skyldi lifa þetta af.
— Ég hef verið staðgengill
leikara i 12 ár, en aldrei komizt i
aðra eins hættu. Ég fékk 3000
dollara á viku fyrir þetta (um
480 þús. krónur) en það var ekki
nóg. Ég hætti eftir þetta.
Palme fékk sér
björgunarvesti
Olof Palme, forsætisráðherra
Sviþjóðar, bauð gjarnan hátt-
settum gestum sinum i smáferð
á árabát, þegar þeir heimsóttu
hann i sumarhús hans við Harp-
sund. Palme er góður ræöari, en
þó gagnrýndu ýmsir það, að
hann hafði aldrei björgunar-
vesti, hvorki handa sér né gest-
um sinum.
Ráðherrann var búinn að
bæta úr þvi, þegar Hubert
Humphrey, öldungadeildar-
þingmaöur frá Bandarikjunum,
sótti hann heim. Hann hafði tvö
mikil og litrik vesti við hendina,
eins og sjá má. Og hann hafði
meira að segja dagblað til að
breiöa á þóftuna, svo aö
Humphrey blotnaði ekki á botn-
inum. Liklega hefur það verið
stjórnarandstööublað, þótt það
fylgi ekki sögunni.
mzm
HREIHCERHINGAR I TAPAD — FUNDID
ATVINNA I BODI
KENNSLA
Forsjálir...
Þeir klippa þær jafnvel út og varðveita.
Þannig geta þeir valið milli margra aðila
þegar á þjónustu þarf að halda.
HUSNÆÐI OSKAST
OKUKENNSLA
BARNACÆZLA
Sérritin, leið sem milljónir les-
enda um allan heim hafa valið
Sérritin hafa sífellt náð meiri
vinsældum. Efni þeirra og útlit
er samkvæmt kröf um milljóna
lesenda um allan heim, sem
vilja vandaðar greinar í
aðgengilegu formi.
Sérritin,
sem þér getið valið eru:
Frjóls verzlun
Sjóvarfráttir
íþróttablaðið
Um léið og þér veljið sérritin þá eignist
þér verðmœti, sem eykst með hverju ári
ÓSKA EFTIR ASKRIFT AÐ:
| [ Frjálsri verzlun Q íþróttablaðinu
Sjávar-
fréttum
Nafn:
Heimilisfang:
Sími:
! Sendist til:
Frjálst fraintak h.f.. Laugavegi 178, Rvík.
Simar: 82300, 82302.
Forsjálir lesa þjónustuauglýsingar Visis.