Vísir - 12.09.1975, Side 5
Visir. Fösludagur 12. september 1975.
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND umsjón GP
Fékk ekki að „ónáða
ráðherrann til að
vara við styrjöld
Var ráöherrann
ef til vill i
veizlu, þar sem
ekki mátti
ónáöa hann meö
„striösviövör-
Bandariskir þing-
menn linna ekki látum
gegn bandarisku leyni-
þjónustunni CIA og
ætla i dag að taka til
meðferðar, hvort
njósnarar CIA hafi
verið nógu vel upplýst-
ir um innrás Tyrkja á
Kýpur.
Sérstök nefnd fulltrúadeildar-
innar, sem kannað hefur starfs-
hætti CIA, lagði i gær fram
leyniskjöl, sem sýna, að'CIA og
sérfræðingar Bandarikjastjórn-
ar hafi látið Yom Kippur-striðið
koma flatt upp á sig.
Nefndin mun i dag fjalla um,
hvernig njósnanet CIA stóð sig
vikurnar áður en Tyrkir réðust
inn á Kýpur i fyrrasumar.
Meðal þess sem kom i ljós,
þegar leyniskjölin voru gerð
opinber i gær, var algert van-
mat njósnaráðgjafa Nixons þá-
verandi forseta á þvi, sem var
að gerast daginn, sem skrið-
drekar háðu stórorustur i Sinai-
eyðimörkinni og meðfram Gol-
anhæðum. Sérfræðingar CIA
sögðu forsetanum, að það væru
„minniháttar skærur”.
t skýrslu frá þeim örlagarika
degi, 6. október 1973 stendur:
„Við sjáum engin merki þess,
að þama sé um að ræða sameig-
irúega skipulagða árás Egypta
og Sýrlendinga yfir Súezskurð
og Gólanhæðir.”
Leyniskjölin virðast skjóta
stoðum undir álit þeirra, sem
gagnrýnt hafa leyniþjónustuna
hvaðharðastog segja hana hafa
klúðrað upplýsingaöflun á
stundum, þar sem mest hefur
reynt á.
Dr. Ray Cline, fyrrum deild-
arstjóri i leyniþjónustunni, hef-
ur sagt þingnefndinni að hann
hafiárangurslaustreyntað vara
Henry Kissinger utanrikisráð-
herra við þvi þann 5. október
1973, að styrjöld vofði yfir. —
Hann heldur þvi fram, að einka-
ritarar Kissingers hafi neitað að
ónáða ráðherrann á timanum
milli kl. 8 og 9 að kvöldi þess 5.
október — en það var sem sé
daginn áður en Yom Kippur-
striðið brauzt út.
Utanrikisráðuneytið ber á
móti þessari frásögn Cline
deildarstjóra og ber hann sjálf-
an sökum um að hafa ekki i
staðinn snúið sér til annarra
ráðamanna.
Cline sagði siðar af sér deild-
arstjóraembættinu, leiður orð-
inn á þvi, hve erfitt var að ná
eyrum æðstu manna.
XII
Njósnarar CIA sögöu, aö skriödrekaorrusturnar, sem voru hinar
grimmilegustu strax fyrsta daginn, væru „smáskærur einar”.
Þingnefnd kannar „ódugnað'* n/osnara
CIA, sem töldu byrjun Yom Kippur-
stríðsins aðeins vera smáskœrur
Minnkandi atvinna hjá
stáliðnaðarmönnum
Jofntefli
Þriöja einvigisskák þeirra
Karpovs og Portisch varð
jafntefli i gær, og hefur þá
Karpov forystu, þvi að hann
vann 2. skákina, eftir aö hún
fór i bið.
Karpov, sem hafði svart i 3.
skákinni i gær, þótti fá upp
betri stöðu úr drottningar ind-
verskri vörn, ,,en ég sá enga
leið til að knýja fram vinn-
ing,” sagöi hann sjálfur og
bauð jafntefli eftir 30 leiki. —
Hann þarf heldur ekki annað
en jafntefli úr 3 sföustu skák-
unum til þess að tryggja sér
12.000 dollara verölaunin.
Enn varö jafntefli milli
þeirra Petrosjans og Ljuboje-
vics I gær, en Petrosjan hefur
nú 2 vinninga á móti 1.
mmmrnmmmmmmm^mmmmm^
Metframleiösla á járni
og stáli hefur ekki nægt tii
aö auka atvinnu hjá stál-
iðnaðarmönnum í sumum
stálf ramleiðslulöndum,
eftir þvi sem Alþjóða-
vinnumálastofnunin (ILO)
upplýsti í morgun.
Vestur-Þýzkaland, Bandaríkin
og Lorraine-héraðið i Frakklandi
hafa öll aukið stálframleiðslu
sina milli áranna 1968 og 1973.
Mest vegna aukinnar tækni. En
fjöldi starfsfólks i þessum iðnaði
hefur minnkað, segir ILO.
Járn- og stálnefnd ILO kemur
saman til fundar i Genf dagana
16. til 26. september til að hug-
leiða möguleg ráð til að sjá fyrir,
hver þörfin verður fyrir vinnuafl i
þessum iðnaði, þegar fram liða
stundir. — 1 nefndinni eiga sæti
fulltrúar 24 þjóða.
Árið 1963 tók það 21,3 vinnu-
stundir að framleiða eina smálest
af stáli i Lorraine. Árið 1972 tók
það 12,7 vinnustundir. — En
starísliðinu, sem um leið vinnur
orðið styttri vinnuviku, hefur
fækkað á þessum tima úr 97.137 i
85.815, samkvæmt upplýsingum
ILO.
Stálframleiðsla Bandarikjanna
jókst úr 118,9 milljónir smálesta i
136,5 milljónir smálesta á árun-
um 1968 til 1973. En á sama tima
fækkaði iðnaðarmönnum i járn-
og stálframleiðslunni úr 633.000 i
606.000.
1 Vestur-Þýzkalandi jókst hrá-
stálsframleiðslan úr 41,2 milljón-
um smálesta i 49,5 milljónir smá-
lesta. Starfsfólkinu fækkaði á
meðan úr 222.519 i 219.870.
ILO upplýsir, að heimsfram-
leiðslan á hrástáli hafi aukizt um
31% á árunum 1968 til 1973. Eða úr
528 milljónum smálesta i 693
milljónir smálesta.
Herínn
Herflokkar í Líbanon
hafa tekið sér stöðu í bæj-
unum Tripoli og Zgharta
til að fyrirbyggja, að
átökin, sem þar hafa átt
sér stað að undanförnu,
nái að breiðast út á land.
En vinstrimenn, sem mjög
eru andvigir afskiptum hersins
af blóðugum erjum kristinna
manna og múhammeðstrúar-
manna undanfarinna daga, hafa
boðað allsherjarverkfall á
mánudaginn i mótmælaskyni.
Stjórnin sá sig knúna til að
send herinn á vettvang á mið-
vikudagskvöld, þegar ekkert
lát virtist ætla að verða á bar-
dögum múhammeðstrúar-
manna i Tripoli og kristinna
manna i Zgharta. Auk þess var
Algeng sjón á götum Beirut,
höfuöborgar Líbanon. Allir hafa
yfir vopnum að ráða, og i átök-
unum að undanförnu kemur i
Ijós, aö barizt er jafnvel lika
með failbyssum og eldflaugum.
varð að
herliö sent til Beit Milla, þar
sem flestir ibúarnir eru kristnir.
Það hafði komið til skotbardaga
milli þeirra og ibúa nærliggj-
andi þorps múhammeðstrúar-
manna.
Atökin i Tripoli hófust fyrir tiu
dögum og spruttu af bifreiöa-
slysi. Mannrán og hefndardráp
voru hafin og áður en vika var
liðin höfðu 100 manns látið lifið,
enda beita báðir aðilar stórvirk-
um vigvélum, eins og fallbyss-
um, sprengjuvörpum, eldflaug-
um og vélbyssum.
ganga á
Ford í skot-
heldu vesti
Ford forseti er nú á feröa-
lagi milli fimm stórborga i
Bandarikjunum, þar sem
hann kemur opinberlega fram
og flytur ræður. Ein þessara
borga: er Dallas.
1 gær var hann i New
Hampshire og þóttust menn
þá taka eftir þvi, að hann bæri
skothelt vesti innan klæða. —
En vika er liðin, siðan honum
var sýnt banatilræði I Sacra-
mento i Kaliforniu.
Kosningar til öldungadeild-
ar Bandarikjaþings standa nú
fyrir dyrum i New Hampshire,
og kom Ford forseti þangað I
gær til að styðja framboð
flokksbróður sins, Lewis
Wyman.
Lögregla og öryggisverðir
höfðu mikinn viðbúnað til að
vernda forsetann. Naumast
verður dregið úr öryggisgæzl-
unni, þegar Ford kemur til
Dallas, þar sem John F.
Kennedy forseti var myrtur
fyrir 12 árum.
Lynette leidd úr
réttarsalnum
Lynette Fromm sú, sem
sýndi Ford forseta banatil-
ræðið I Sacramento, sagöi viö
dómarann, þegar hún var
leidd fyrir rétt i gær, aö hann
bæri ábyrgð á ofbeldisaðgerð-
um, sem hljótast mundu af, ef
hann ekki bjargaði rauöviöar-
skógum Kaliforniu.
„Byssunni hefur verið
brugðið á loft, yðar æruverð-
ugheit, en hvort hleypt verður
af henni, er undir yður kom-
ið”, sagði hún við Thomas
MacBride, dómara. Hún sagði
dómaranum að fyrirskipa
skógarhöggsaðilum að hætta
að fella tré I Rauðu skógum.
Dómarinn greip fram I fyrir
Lynette viö handtöku eftir til-
ræöiö viö Ford.
henni nokkrum sinnum og
kvaðst ekki mundu liða póli-
tiskan áróður af neinu tagi,
meðan rétthöldin stæðu yfir.
En Lynette kom þvi á fram-
færi, að meðlimir Mansonfjöl-
skyldunnar svonefndu hygðust
fara með ófriði á hendur fyrir-
tækjum, sem menga umhverfi
mannsins eða spilla náttúr-
unni.
Dómarinn lét leiða hana út
úr réttarsalnum, þegar
Lynette vildi ekki leggja niöur
þetta tal.
Veltu kletti ofan
á bíl á ferð
Saksóknari Mönchenglad-
bach I V-Þýzkalandi hefur
krafizt 3 tii 6 ára fangelsis-
dóma yfir þrem unglingspilt-
um, sem játaö hafa, að þeir
hafi velt kletti ofan á bifreiö,
sem ekiö var um hraöbraut á
þessum slóöum.
Kletturinn hrapaði ofan af
umferðarbrú, braut framrúð-
una i bilnum og varð 41 árs
konu að bana, sem var farþegi
I framsæti.
Piltarnir eru 15 og 17 ára
gamlir og segir verjandi
þeirra, að krafa saksóknarans
sé hrein fyrra. Piltarnir hafi
gert þetta af stráksskap, og
það hafi verið óheppni, að
hrekkjabragðið haföi þessar
afleiðingar.
Saksóknarinn heldur þvi
fram, að þiltunum hafi vel
mátt vera ljóst, hvað kynni aö
hljótast af þessum hrekk, þeg-
ar þeir ætluðu að hrinda þess-
um lika litla hnullung fyrir
bifreiðir, sem þjóta á ofsa-
hraða eftir hraðbrautum, eins
og þeirri, þar sem slysið varð.