Vísir - 22.09.1975, Page 3
Visir. Mánudagur 22. september 1975.
Forsœtisráðherra í Noregi
t _ 3
Ljósmyndir og texti: Bragi Guðmundsson
Fjögurra daga opinberri heim-
sókn Geirs Hallgrimssonar og frú
Ernu Finnsdóttur til Noregs lauk
á laugardag, er þau kvöddu for-
sætisráðherra Noregs Trygve
Bratteii og konu hans frú Randy
Bratteli á Fornebu flugvelli I
Osló.
Þann dag höfðu forsætisráð-
herrahjónin byrjað með þvi að
skoða Sunnaas sjúkrahúsið fyrir
utan Osló, en það er mjög glæsi-
legt sjúkrahús sem aðallega tek-
ur við fólki, sem hefur orðið fyrir
alvarlegum slysum og þarf mikla
endurhæfingu.
Þaðan var siðan haldið i sigl-
ingu um Oslóarfjörð en að henni
lokinni borðuðu forsætisráð-
herrahjónin hádegisverð á
Fornebu flugvelli með forsætis-
ráðherrahjónum Noregs. Geir
Hallgrimsson sagði við blaða-
menn að lokinni heimsókninni að
hann væri mjög ánægður með
ferðina og þær viðræður sem
hann átti við norska ráöherra.
Á þeim fundum var aðallega
rætt um landhelgismálið og
hugsanleg kaup Islendinga á oliu i
Noregi, en það gæti orðið eftir
næstu áramót ef það yrði hag-
stæðara en frá Sovétrikjunum.
Þá var lika rætt um, að ef ts-
lendingar færu að leita að oliu
myndu Norðmenn veita tækni-
lega aðstoð i þeim efnum.
Meðal annars, sem forsætis-
ráðherra skoðaði, var oliubor-
paliur, sem var i smiðum i
Nylands skipasmiðastöðinni i
Osló, og sagði Geir Hailgrimsson,
að 'það væri athyglisvert hvað
Norðmenn hefðu náð langt i þess-
ari tækni.
Að lokinni heimsókninni héldu
forsætisráðherrahjónin til Kaup-
mannahafnar ásamt Guðmundi
Benediktssyni og frú þar sem þau
verða í nokkurra daga frii.
Hér lýsir einn af forráðamönnum
Nylands skipasmiðastöðvarinnar
fyrir Geir Haligrimssyni oliubor-
palli sem þar er i smiðum, en meö
þeim á myndinni er sendiherrann
Agnar Klemens Jónsson.
Geir Hallgrimsson og frú Erna Finnsdóttir kveðja börn úr skólahljóm-
sveit sem tók á móti gestum fyrir framan Sunnaas sjúkrahúsið með
lúðrablæstri. Ljósm.: Visis Bragi.
Siðasta dag heimsóknarinnar var Sunnaas sjúkrahúsið fyrir utan Osló
skoðað og hér sjást forsætisráðherrarnir Tryggve Bratteli og Geir
Hallgrimsson ásamt föruneyti sinu við komuna þangað.
Geir Hallgrimsson ræðir við einn af sjuklingum á Sunnaas sjúkrahús-
inu, sem er þarna I vinnustofu sjúkrahússins aö gera sjálfsmynd úr
leir.
Vetraráœtlun SVR
tekur gildi í dag
Vetraráætlun SVR tekur gildi i
dag. Smávægilegar breytingar
verða gerðar frá sumaráætlun.
Þær snerta einkum leiðir 2 og 12
og smá lagfæringar verða gerðar
á nokkrum öðrum leiðum.
— Á leið 2 tekur gildi ný timatafla
á virkum dögum, það er
mánudaga til föstudaga til
klukkan 19. Á þessum leiðum
verða framvegis 12 minútur á
milli ferða. Með breytingu á þess-
um leiðum er reynt að koma i veg
fyrir, að áætlun fari úr böndum á
mestu anna- og umferðartimum.
— Á leið 12 verður sú breyting, að
ekið verður um Breiðholtsbraut i
Seljahverfi i stað þess að aka um
Breiðholt I. Liggur leiðin nú um
Miðskóga, Seljabraut, upp i
Norðurfell, og sömu leið til baka.
— Prentuð hefur verið ný leiða-
bók, og verður hún seld á
Hlemmi, Lækjartorgi og skrif-
stofu SVR að Hverfisgötu 115.
„Sogið boðskapinn
í gegnum rðr"
rasasæsEKEffl
sn.fi.
skólnbl n ðiA
SICOUBLUID
SkoUbloft
menntaskólans
við
11(1
SkÓLA
BLAÐIi)
f-Iknl ah ! n A M. R.
ðhúxmam
SlfnT.AllI.ABII)
Komið er út fyrsta tölublað 51.
árgangs Skólablaðs Mennta-
skólans i Reykjavik. t blaðinu
eru fjálglegar greinar og ljóð
nemenda, sem runnið hafa úr
pennastautum þeirra.
— 1 frétt um blaðið segir, að
óðir og uppvægir safnarar geti
sogað boðskapinn i gegnum
tviskipt rör og orðið bleikir i
framan af þeim boðskap, sem
blaðið hafi að færa.
Skólablaðið verður til sölu i
bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar, og segja útgef-
endur, að þar geti gamlir
nemendur fengið sér eintak af
blaðinu og látið sig svifa inn i
draumaheim minninganna.
íþróttafélag
kvenna
Leikfimin hefst mánudaginn
22. sept kl. 8 i Miðbæjar-
skólanum. Frúarflokkur kl. 9
siðdegis. Stúlknaflokkur 12-
17 ára kl. 8.45.
Kennari verður Sigrún Sig-
geirs.
Innritun og upplýsingar i
simum 42356 og 14087.
PHILIPS
PhilipsArgenta’
SuperLux
Muperan med
óvióiafnanlega birtuglugganum