Vísir - 30.09.1975, Qupperneq 6
6
Visir. Þriðjudagur 30. september 1975
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Frainkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 40 kr. cintakið. Blaðaprent nf.
Vinnufrí kvenna
Rikisstjórnin hefur státað af þvi og með nokkrum
rétti, að i stjórnartið hennar hafi ekki komið til við-
tækra verkfalla. Það er nánast orðinn hefðbundinn
hugsunarháttur að lita á verkföll einungis sem að-
ferð til þess að knýja fram kjarabætur. Verkföllum
hefur nær einvörðungu verið beitt til þess að velgja
atvinnurekendum og stjórnvöldum undir uggum,
þegar ástæða hefur þótt til.
Það er þvi ekki að undra, þó að menn telji sig
hólpna, þegar unnt er að halda þannig á spilunum,
að almenn verkföll lama ekki atvinnulif lands-
manna. En nú verða menn að horfast i augu við
vinnustöðvanir af öðru tagi. Islenzkar konur eru um
þessar mundir að taka höndum saman um viðtækt
vinnufri til þess að leggja áherzlu á kröfurnar um
jafnrétti karla og kvenna i reynd.
Þetta sérstæða verkfall verður ugglaust ekki tek-
ið með i reikninginn, þegar lagt verður mat á það,
hvort rikisstjórnin hafi staðið sig vel eða illa eða
hagsmunasamtökin sýnt sanngirni. En hvað sem
þvi liður, má vænta þess að þessi fyrirhugaða
vinnustöðvun kvenna eigi eftir að hafa mikil áhrif
og opna augu margra.
Það er fátitt, að verkföllum sé fagnað. í þessu til-
viki horfir þó öðru visi við. Þessi vinnustöðvun er
ekki aðeins réttlætanleg og þörf, hún er merkilegur
viðburður. Að þessu sinni geta menn þvi af heilum
hug hvatt til vinnustöðvunar. í raun réttri stendur
þessi aðgerð fyrir utan og ofan allt það, sem við
nefnum verkfall i daglegu tali. Hér er um jafnréttis-
kröfu að ræða.
Vinnufri af þessu tagi er ekki þvingunaraðgerð
eins og verkföll i hefðbundnum skilningi. Það er
hugsað sem þáttur i baráttu manna fyrir jafnrétti
kynjanna og til þess að vekja athygli á, að störf
kvenna eru jafn þýðingarmikil og mikilvæg og störf
karla, hvort sem þau eru unnin utan heimilis eða
innan. Sameinuðu þjóðirnar hafa helgað þetta ár
baráttunni fyrir jöfnum rétti kynjanna.
Þó að lagalegu jafnrétti sé náð viðast hvar, skort-
ir enn mikið á, að konur njóti sömu aðstöðu i þjóðfé-
laginu og karlar. Þetta kemur fram á flestum svið-
um og ekki sizt i hinum einföldu atriðum hins dag-
lega lifs — eins og formaður Kvenréttindafélagsins
lýsir réttilega i grein i Visi i dag. Hér i blaðinu hefur
einnig verið vakin athygli á þvi nýlega, að barn-
eignafri kennara eru sett i flokk með langvarandi
veikindum i sjúkraskýrslum þessarar starfsstétt-
ar! Þetta er aðeins eitt dæmi af mýmörgum.
Þannig er viða pottur brotinn i þessum efnum.
Það er þvi vel við hæfi, að islenzkar konur skuli nú
taka höndum saman á degi Sameinuðu þjóðanna til
þess að leggja áherzlu á gildi vinnuframlags
kvenna. Ef vel tekst til, mun þessi aðgerð hafa mikil
áhrif og vekja óskipta athygli.
Þess eru enn dæmi, að konur sitja ekki við sama
borð og karlar, þegar um atvinnu er að ræða. Opin-
berir aðilar, einkafyrirtæki og samvinnufélög hafa
á þessu ári kvenna sýnt, að i þessum efnum rikir
ekki fullt jafnrétti i raun, hvað sem allri löggjöf lið-
ur. Enginn þarf þvi að fara i grafgötur um, að enn
er verk að vinna á þessu sviði.
Umsjón: GP
BaaBBSIBHBDDBaBBHOaBBBUBBCCaaa*UClBBU«BBOBaaBBBaaOBBai
BaaaaSBaaaaaaaaaaaaaaaiaBaaaaaaaaaaaaBBaBaaaaaaaaBai
aaaaaBDBBaoaaaBBBBDi
iBaaBaaaai
iDuaaaaaai
laaaaaBaBaaaaBBaaaaBaBaBBaBBaBBaBBBuaBBBaaaaaaBBaaaaaaaaaaaai
-----IBBBBBBBOBaOBBaBBBBBBBaHÐBBaaaDaBUaHaaBBliaBBOHBBBBOUaciy
Japanskeisari til
USA í fyrsta sinn
— Eldri japanskættuöum
Amerikönum jafngildir þaö þvi,
að þeir fái aö lita augum sjálfan
guð.
Hinum yngri veröur þó
heimsókn Hirothitos keisara til
Bandarikjanna núna i vikunni
fremur prófsteinn á, hversu
mikið þeir sjálfir eru orönir
amcrikanseraðir.
Þannig skrifar Lars-Erik
Nelson, fréttamaður Reuters i
Washington, um opinbera
heimsókn Japanskeisara til
Bandarikjanna og speglar,
hverjum tvennum augum
kynslóðarinnar lita son sólar-
innar.
1 heimsókn sinni mun Hirohito
keisari hitta japanska borgara
og Bandarikjamenn af japönsk-
um ættum i sex stórborgum,
Washington, New York,
s Chicago, Los Angeles, San
| Francisco og Honolulu.
Samkvæmt bandarisku
manntalsskrifstofunni eru um 1
1/2 milljón japanskættaðra
Bandarikjamanna og 100
þúsund Japanir búandi i Banda-
rikjunum. Aðallega i ofantöld-
| um borgum.
I Eins og meðal annarra
• innflytjenda, eða afkomenda '
' innflytjenda, hafa japanskir
Amerikanar með sér samtök,
sem jafnframt gegnir hlutverki
japansks-amerisks vinafélags
við að halda góðum kynnum
milli nýja föðurlandsins og
gömlu ættjarðarinnar.
Japansk-ameriska félagið
hefur mikinn viðbúnað vegna
komu keisarans, enda er þetta i
fyrsta skipti, sem þjóðhöfðingi
Japans kemur til Banda-
rikjanna.
„Við höfum orðið varir við
mikla eftirvæntingu meðal eldri
kynslóðarinnar,” sagði for-
maður þessa félags, Wayne
Horiuchi, i samtali við frétta-
mann Reuters um helgina.
Simahringingum hefur ekki
linnt frá fólki á aldrinum 80 til 90
ára alls staðar úr Bandarikjun-
um, en þvi leikur mikill hugur á
að ná tali af keisaranum,”
sagði formaðurinn.
Það er ekki langt siðan, að
japanska þjóðin leit á Hirothito
eins og fyrirrennara hans og
forfeður sem guð. Það var ekki
ætlazt til þess, að dauðlegir
menn vanhelguðu hann með þvi
að lita á hann beinum augum.
Þetta breyttist ekki fyrr en i lok
siðari heimsstyrjaldarinnar.
Við stjórnarskrárbreytingu,
sem samfara var hernámi
Bandarikjanna á Japan, breytt-
ist staða keisarans i það að
verða „einungis einingartákn
japönsku þjóðarinnar.” En
gamla fólkið hefur ekki allt
getað vanizt þeirri breytingu,
enda ekki auðvelt — jafn rika
áherzlu sem lagt hafði verið á
virðinguna fyrir keisaranum i
uppeldi þeirra. Þykir eima enn
nokkuð eftir af lotningunni fyrir
hans hágöfgi, og það meira að
segja meðal þess fólks, sem
flutti frá Japan fyrir strið.
Börn þessa fólk, sem settist að
i Bandarikjunum, státa sig af
þvi að hafa amerikanserað sig,
og þriðja kynslóðin er naumast
mælandi á japönsku. — Þessir
japanskættuðu borgarar i
Bandarikjunum fá ekki einu
sinni fyllilega skilið lotningar-
skraf afa og ömmu.
Japanskir embættismenn
hafa lagt á það rika áherzlu i
tilkynningum um væntanlega
heimsókn keisarans, að hann
gegni engu hlutverki i stjórn-
málum Japans. För hans sé að-
eins táknrænnar þýðingar.
Hirohito keisari verður tvær
vikur i Bandarikjunum. Heim-
sókn hans hefst i Alaska en
þaðan fer hann til Washington,
f þar sem hann mun njóta gest-
risni Bandarikjaforseta. Þaðan
■ími
Hirohito, keisari Japans, og Gerald Ford, Bandarikjaforseti, I
opinberri heimsókn þess siöarnefnda I Tokyo, sem Hirohito er nú aö
endurgjalda.
liggur leiðin til Þorskhöfða, þvi
að keisaranum mun leika mikill
hugur á að skoða sjóminja- og
sædýrasöfn Bandarikjamanna,
sem eiga einhver ágætustu söfn
heims á þvi sviði. — Hirothio er
sjálfur meðal virtustu haf-
fræðinga heims.
Frá Þorskhöfða fer keisarinn
til New York, Chicago og svo
áfram á milli borga. — Hann er
væntanlegur aftur til Tokyo úr
þessari heimsókn 14. október.
Mikill öryggisviðbúnaður er i
þessum borgum af ótta við, að
keisaranum verði sýnt tilræði.
Rauði herinn i Japan, samtök
hryðjuverkamanna, sem urðu
26 manns að bana á flugvellin-
um i Tel Aviv, eins og frægt er,
hafa hótað að vega að keisaran-
um. Þessi skæruliðasamtök
hafa þó aldrei látið að sér kveða
i Bandarikjunum.
Hirohito sem er 74 ára orðinn,
kom til valda 1926. Hann varð
fyrstur þjóðhöfðingja Japans til
að takast á hendur ferðalög til
útlanda. Heimsótti hann ýmis
Evrópulönd sem prins, og 1971
lagði hann aftur land undir fót
með Nagako keisaraynju og
heimsótti sjö Evrópuríki.
Margir litu á það sem undir-
búning þessarar ferðar, þegar
Hirohito á dögunum útskýrði
fyrir bandariskum blaðamönn-
um, sem hann hafði veitt
áheyrn, að hann hefði ekki haft
nein áhrif á gang mála i siðari
heimsstyrjöldinni. Viðurkenndi
hann að hafa verið kunnugt um
striðsundirbúninginn 1941
(þegar ráðizt var á Pearl
Harbour).
Bandariskir embættismenn
hafa staðfest af skjölum
sögunnar, að i rauninni hefði
Hirohito keisari litlu getað
umbreytt, eins og tiðarandinn
hafi verið i Japan fyrir siðasta
strið. Þykir reyndar fyrir löngu
ljóst, að eina stjórnmála-
akvörðunin, sem Hirohito hafi
tekið á 49 ára rikisferli sinum,
hafi verið að skera úr, þegar
herforingjar Japans voru ekki á
eitt sáttir um, hvort lúta ætti
uppgjafarskilmálum Banda-
rikjamanna. Þrátt fyrir megna
andstöðu margra her-
foringjanna, flutti hann yfir-
lýsingu i útvarpi um, að Japan
hefði beðið ósigur.
B■■■■“■■■■•■■■■■■“■■■■■‘‘■■■■■■■■■■■aaBHHBBBHHHBHHBBHHBHBHHBBHBHHHHHHBBHHHBBBHBBBBBBBHBBBBBHBBBHHI
- ÍIlBIBBBBHBBÍilUBBHHHBBHHIHBBBBBaHHBBBBBaBBaBBBBIBaBBaBBHHIBBaBBaBBaBBaiBIBBBBBaiHHBBaHBHaHBBHI
IBBBB ■■■■■■■■!
mhbbbbbbbbhhI