Vísir - 30.09.1975, Blaðsíða 8
8
Visir. Þriðjudagur 30. september 1975
Staðq deildarstjóra
Sjúkratryggingadeildar laus
Umsóknir stilaðar á heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið, ásamt upplýsingum
y um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Tryggingastofnun rikisins fyrir 23. októ-
ber.
Staðan er laus frá 1. janúar n.k. Laun
samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Forstjóri gefur nánari upplýsing-
ar.
25. september 1975.
Tryggingastofnun ríkisins
Fró Hofi
Við eigum garn i öllum
Ijómandi litum regnbogans
og vœru þrœðirnir tengdir
saman nœðu þeir yfir lönd
og ólfur Komið og kaupið
Hof
Þingholtsstrœti
íbúðarhús
Tilboð óskast i að steypa upp og fullgera
starfsmannahús fyrir bútæknideild á
Hvanneyri i Borgarfirði. Húsinu skal skila
fullgerðu 1. okt. 1976.
írtboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri Borgartúni 7, Reykjavik gegn 5.000
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 17. október 1975 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Sjúkrahús í Keflavík
Tilboð óskast i að reisa og gera fokhelda
viðbyggingu við Sjúkrahúsið i Keflavik.
Auk þess skal fullgera húsið að utan og
ganga frá lóð.
Húsið skal vera fokhelt fyrir árslok 1976,
en verkinu ljúki að fullu fyrir 1. júli 1977.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 21. okt. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARIUN! 7 Slí-'.I 26344
zf
*c
„ÞJÓÐFÉLAGIÐ
— Hvernig verður kynningar-
starfsemi háttað?
— Sérstakur starfshópur,
sem sér um kynningar á þessum
degi, starfar ötullega. Nú þegar
hefur hann látið prenta dreifi-
bréf, sem sent verður á vinnu-
staði og heimili úti um allt land.
Einnig er fólk úr starfshópn-
um tilbúið að koma á vinnustaði
og i félög, til að kynna starfsem-
ina nánar, ef þess er óskað.
Fjáröflun
— Fjáröflunarmálin eru enn-
þá á frumstigi. Þó hafa ákveðin
félög lofað fjárstuðningi. Einnig
tökum við á móti frjálsum
framlögum. Við ætlum að hafa
merkjasölu og selja plaköt, sem
við látum gera i tilefni þessa
dags.
Ekki hefur enn verið rætt um
það, hvort við förum fram á
fjárframlög frá hinu opinbera.
LITILSVIRÐIR
VINNUFRAMLAG
KVENNA"
— rœtt við Gerði
Steinþórsdóttur,
sem ó sœti í
framkvœmda
nefnd um
kvennafrí
Gerður Steinþórsdóttir. — Ljósm: JIM
//Ef konur geta staðiö
saman um að leggja al-
mennt niður vinnu þann
24. október/ þá finna þær
hve samtakamáttur
þeirra er geysilegur. Slíkt
gæti þjappað þeim betur
saman um þau mál/ sem
eru brýnustu hagsmuna-
mál þeirra," sagði Gerð-
ur Steinþórsdóttir, sem
sæti á í framkvæmda-
nefnd kvennafrísins.
— Þvi miður virðist þjóðfé--
lagið litilsvirða vinnuframlag
kvenna og birtist þessi stað-
reynd i ýmsum myndum. M.a.
er mismunur á meðaltekjum
verkakvenna og verkakarla
30.000 á mánuði. — Vinnufram-
lag bændakvenna i búrekstri er
metið til kr. 175.000 á ári. —
Meðallaun kvenna við verzlun-
ar- og skrifstofustörf eru aðeins
73% af meðallaunum karla við
sömu störf. — Starfsreynsla
húsmóður er einskis metin á
vinnumarkaði. — Engin kona á
sæti i aðalsamninganefnd Al-
þýðusambands Islands og svona
mætti lengi telja.
— Telur þú, að kvennafrlið
geti valdið miklu fjárhagslegu
tjóni eða öðru tjóni?
— Nei, það tel ég ekki, sagði
Gerður. — Sá ávinningur, sem
konur geta haft af þessum að-
gerðum i framtiðinni, vegur á
móti þvi smátapi, sem getur
orðið, ef konur leggja almennt
niður vinnu.
Ef friið væri til dæmis eina
viku, þá mundu málin horfa
öðruvisi við. En það er hægt að
fresta ýmsum hlutum i einn
dag, án þess að nokkur skaði
hljótist þar af.
Karlmenn geta leyft sér að
standa i verkfalli i einn eða tvo
mánuði, er togaraverkfallið i
vor dær.ii um það. Hvað skapað-
ist mikið tjón af þvi?
— Geta allar starfstéttir tekið
þátt i verkfallinu?
— Ýmsir starfshópar, þar á
meðal hjúkrunarkonur og ljós-
mæður, verða sjálfar að vega og
meta, hvað þær ætla að gera i
þessu sambandi. Og mæður með
stóran barnahóp á unga aldri
verða auðvitað að ihuga allar
aðstæður vel. En eiga þessi börn
lika feður? Ég tel, að feðurnir
verði að leggja niður vinnu
þennan dag og taka við hlut-
verki húsmóðurinnar. Þeir gætu
gert ýmislegt til að létta sér
þennan dag, til dæmis gætu þeir
hagað þvi þannig, að nokkrir
karlmenn tækju að sér hóp
barna, o.s.frv. — En er það ekki
grátbroslegt, að starfstétt eins
og hjúkrunarkonur, sem geta
ekki tekið sér fri i einn dag allar
saman án þess að allt sjiikra-
húskerfið fari úr skorðum að
meira eða minna leyti skuli fá
láglaunabætur?
— Er það ekki skortur á sam-
stöðu þessara kvenna, sem
veldur lágum launum þeirra?
— Hvernig hyggist þið skipu-
leggja dagskrána 24. október?
— Hér i Reykjavik verðum
við með fund niðri I miðbæÞar
verða flutt stutt ávörp. Einnig
verður söngur og önnur
skemmtiatriði tengd þessu mál-
efni.
Annars eru hugmyndir um
dagskrá fundarins ennþá á
byrjunarstigi.
Við hyggjumst einnig hafa
„opið hús”. í þvi skyni munum
við leigja sali hérna i borginni,
þar sem konur geta komið eftir
fundinn og fengið sér kaffisopa
og ræðzt við um þessi mál og
önnur.
— Hvernig þessum málum
verður hagað úti á landi, hefur
ekki ennþá verið ákveðið, sagði
Gerður.
Mikil samstaða hefur náðst nú
þegar.
Fulltrúar frá u.þ.b. 50 félög-
um i Reykjavik og nágrennii
standa að samstarfsnefnd um
framkvæmd kvennafrisins 24.
• október.
Aðild að nefndinni eiga stétt-
arfélög, stjórnmálafélög, kven-
félög og aðrir áhuga- og hags-
munahópar.
Kannanir hafa verið gerðar á
ýmsum vinnustöðum, eins og i
rikisbönkunum, deildum innan
Sambands Islenskra samvinnu-
félaga og annarra stórra fyrir-
tækja.
Niðurstaða þessara kannana
varð sú, að 80—100% kvennanna
styðja nú þegar þessar aðgerð-
ir.
Viija fá konur til að vinna i
starfshópum um þessi mál.
— Að undirbúningi þessa
dags vinna fimm starfshópar að
mismunandi verkefnum.
Einn starfshópurinn sér um
að kynna fridaginn á vinnustöð-
um og almenningi yfirleitt.
Annar sér um að fóöra fjöl-
miðla á upplýsingum um
kvennafriið og auglýsa það á
annan hátt.
Þriðji sér um að ná til fólksins
úti á landsbyggðinni. Sá fjórði
sér sérstaklega um fundinn.
Fimmti starfshópurinn vinnur
að fjáröflun, sagði Gerður.
Þær konur, sem hafa áhuga á
að starfa i einhverjum þessara
starfshópa, geta hringt i sima
18156.
1 dreifibréfi, sem fram-
kvæmdanefnd um kvennafri lét
frá sér fara á dögunum, segir:
Sameinumst um að gera 24.
október að eftirminnilegum
baráttu- og sameiningardegi
undir kjörorðum kvennaárs
Sameinuðu þjóðanna:
JAFNRÉTTI — FRAMÞRÓUN
- FRIÐUR.
HE.