Vísir - 30.09.1975, Blaðsíða 10
10
Visir. Þriðjudagur 30. september 1975
Thor Wilhjálmsson er
aðgerðamikill listamað-
ur. Hann skrifar að
meðaltali eina bók á ári,
hann er forseti Banda-
lags listamanna, hann
ferðast mikið, og hann
lætur sér fátt óviðkom-
andi sem gerist í þjóð-
félaginu.
Visir ræddi við Thor fyrir
stuttu, um störf hans sem for-
seti BtL, um væntanlega bók
hans, og fyrirhugaða Listahátið
á næsta ári.
„ Listdreifingarmiðstöð
stærsta áhugamálið"
„Hvað hefur Bandalag is-
lenzkra listamanna haft fyrir
stafni þann tima sem þú hefur
verið formaður”?
,,Ég hef verið formaður frá
þvi i vor. Þótt sumarið sé ekki
allra bezti timinn til að koma
máium áfram, hafa margir
fundir verið haldnir, og margt
er i bigerð.
Listdreifingarmiðstöð er mik-
ið áhugamál okkar. Við höfum
kannað vænlegar leiðir til fram-
kvæmda vegna hennar.”
„Hvernig er þessi List-
dreifingarmiðstöð hugsuð?”
„Hún er hugsuð sem fyrir-
greiðslustofnun, þar sem reynt
verður að koma á beinu sam-
bandi milli listamanna og list-
njótenda. T.d. ætti miðstöðin að
geta bætt aðstöðu fólks i dreif-
býli, svo að það fengi listamenn
til sin. Tilgangur miðstöðvar-
innar er að koma listaverkum-
og listamönnum á framfæri.
Listdreifingarmiðstöðin á að
vera til ráðuneytis, og fólk á að
fá þar hvers konar fyrirgreiðslu
varðandi list. Á fundi með sam-
bandi sveitarstjórnarmanna um
menningarmál sl. vor, sem við
sóttum tveir frá bandalaginu,
var mikill áhugi á hugmyndum
um miðstöðina, sem við viðruð-
um þar”.
„ Lágmarkskröfur
óhjákvæmilegar"
„Hvaða kröfur verða gerðar
til listaverka hjá Listaverka-
miðstöðinni?”
„Fólk á að geta treyst þvi að
viss gæði séu i þeirri vöru, sem
Listdreifingarmiðstöðin býður
upp á. óhjákvæmiiegT~ér að
gera vissar lágmarkskröfur.
En það á siður en svo að rikja
einstrengingsháttur i viður-
kenningu miðstöðvarinnar á
verkum, sem fram koma. Þar á
að rikja viðsýni”.
„Öttast þú ekki deilur um
upptöku listaverka til mið-
stöðvarinnar, samanber Kjar-
valsstaðamálið?”
„Sitthvað er að vera lista-
maður eða föndrari. Og jafnvel
þótt maður eigi vini á mörgum
vettvöngum, eða geti aflað sér
fylgis i samkvæmislifinu, þá á
slikt ekki að hafa áhrif á viður-
kenningu listaverkanna. Það er
ekki hægt að losna við lág-
markskröfur á þessu sviði, en
hér er spurningin hvort eigi að
halda sig fyrir neðan lágmarkið
eðá' ofan. t list verða menn að
fullnægja vissum kröfum. Ekki
þýðir að bjóða upp á loddara-
skap. Samtök okkar eiga að
greiða fyrir og hlúa að listrænni
viðleitni”.
„Vona a< Listahál glœsile; með tímanum g iíð orðið meira er flugeldasýning" eti
— Vísir rœðir við Thor Vilhjálmsson rithöfund og formann Bandalags íslenskra listamanna um listahátíð, listdreifingarmiðstöð, nýju bókina og ferðalög — Texti: ÓH, Ljósm.: Jim
,, Einokunar-
listdreifingarmiðstöð?"
„Verður Listdreifingarmið-
stöðin þá ekki einokunarstofnun
á listmenningarsviðinu?”
„Við erum ekki að setja upp
einokun. Við erum ekki að taka
okkur alræðisvald. Ég hef á
ferðalögum úti um land orðið
var við það viða, að þar er sann-
ur áhugi á listum. Okkur langar
til að koma til móts við þann
áhuga, glæða hann og hjálpa
þeim sem eru að reyna að lyfta
plássi sinu menningarlega. Ég
vona að Listdrefingarmiðstöðin
geti orðið þýöingarmikil stofn-
un, og komið að verulegu
gagni”.
„Ekki hægt að reka
Kjarvalsstaði í and-
stöðu við listamenn"
„Hvað liður deilunni vegna
Kjarvalsstaða?”
„Kjarvalsstaðir eru' enn i
banni hjá listamönnum, og i þvi
máli rikir einhugur. Ég held að
allir góðir menn óski eftir að sú
deila leysist. Það er ömurlegt að
staðurinn risi ekki undir nafni
og gegni ekki sinu hlutverki.
Augljóst er, að ekki er hægt að
reka staðinn i andstöðu við
listamenn”.
„Hvernig gengur starfsemi
Bandalags islenzkra lista-
manna?”
„Aðstaða bandalagsins er
gerbreytt frá þvi að við bjugg-
um i pósthólfi 1251. Við höfum
nýlega fengið skrifstofu á Skóla-
vörðustig 12, i samvinnu við Rit-
höfundasambandið. Við skrif-
stofugluggunum blasir við tugt-
húsgarðurinn. Það er dapurlegt
að sjá hann tóman, fullan af
drasli. Liklega vilja fangar ekki
fara út i garðinn, þvi að þá blasa
þeir við augum fólks úr háu
húsunum, sem eru allt i kring.
Við viljum gera margt en þá
þarf afl þeirra hluta sem gera
skal, það er fjármagn. En við
höfum ekki ennþá fjárhagslegt
bolmagn til stórra hluta”.
Listahátiðin
„Listahátiðin næsta ár?”
„Já, mér finnst fagnaðarefni
að ákveðið hefur verið að halda
hana. Mikilvægt er að festa riki
við framkvæmd hátiðarinnar,
og ekki sé verið að hringla með
hana.
Islendingum ætti að vera mik-
ið metnaðarmál að halda Lista-
hátiðina. Það var mikill skaði
„Listdreifingarmiðstöð ætti að
geta bætt aðstöðu fólks í dreifbýli,
svo að það fái listamenn til sin”.
,,t list verða menn aö fullnægja „Það er augljóst, að ekki er hægt -Kikmyndin Lénharður fógeti
vissum kröfum. Ekki þýöir að aö reka Kjarvalsstaði i andstööu er einhver samfelldustu mistök
bjóða upp á loddaraskap.” við listamenn.” sem okkur hefur verið boðið að
lita augum”.
„Hrefnukjöt er alveg herra-
mannsmatur, á hvaða hátt sem
það er matreitt”.
wmmmmmmmmm
SifflPWiiií'i i'ií'M 'HfiBSð |