Tíminn - 20.10.1966, Síða 8

Tíminn - 20.10.1966, Síða 8
8 TÍMINN Jón Sigtryggsson: Vinna barna - agi og uppeldi „Þau eru verst hin þöglu svik að' þegja við öllu röngu“. Ekkert verk er vandasamara en uppeldi barna og því ekki undra vert að það fer misjafnlega úr hendi. En jafnframt er ekkert verk virðulegra eða göfugra, fari það vel úr hendi. Senndega geta aiiir, sem alið hafa upp börn, fundið hjá sér einhver mistök í uppeldinu, sé vel að gáð, enda mun enginn vera þar fullkominn smiður í fyrsta sinni, frekar en í öðrum vandasömum verkum. Foreldrar hafa þar einkum orð- ið að læra af eigin reynslu allt frá fyrstu sögum og fram til þessa dags. Að vísu hefur uppeldisfræði verið kennd á síðari tímum, en misjafn hefur árangurinn orð- ið af þeirri kennslu. Vissulega hefur þar margt orðið til gagns, og góðs, en því miður hafa þar einnig orðið ægileg mistök, sem ef til vill kostar aldir að upp- ræta. Á fyrri hluta þessarar aldar var því haldið mjög að fólki, að „börn in ættu sjálf að ala sig upp“. Allur agi af hendi íoreldranna dragi úr sjálfræði barnanna, framtaki |þeirra og festu. Þessi rangsnúna kenning fór eins og eldur í sinu ium löndin, einnig um ísland. Þá hefur efnishyggjan afkristnað fólk ið hina síðustu mannsaldra. Ávext ir þessara tveggja ofangreindu, kenninga eru óðum að ná full- um þroska. Glæpafaraldur gengur nú eins og hávaxin holskefla yfir menn- ingarþjóðirnar hverjar af annarri og eirir engu. Rán, árásir, inn- brot, þjófnaðir, morð mánnrán, sjálfsmorð, nauðganir og fjöl- margt fleira hliðstætt, er nú dag* legur viðburður í stórum stíl, jafn vel hjá ‘fámennum þjóðum, sem þó eru taldar vera framarlega á menningarbrautinni. íslenzka þjóð in, ein fámennasta menningar- þjóð heimsins, á fjölda af þessu afvegaleidda fólki. Höfuðsökina á agaleysið og vöntun á góðu upp- eldi. Áður en lengra er haldið, er rétt að gera grein fyrir því, hvaða merking er lögð í orðið agi í þess- ari grein. Hér er ekki aðeins átt við að finna að við barnið og refsa því, fyrir endurteknar ávirð- ingar af ásettu ráði, heldur einnig að leiðbeina því af móðurást og föðurkærleika. benda því á, hvern ig það eigi að haga sér gagnvart félögum sínum og samferða- mönnum og einnig, hvað því beri að forðast í þeim efnum, í einu orði sagt, að kenna þvj guðsorð og góða siði. En þetta er mjög vanrækt víða. Foreldrar og eink- um mæðurnar látast oft ekki sjá slæmt framferði barna sinna, sem þó er framið fyrir augum þeirra, fyrr en þá að barnið er komið nokkuð til ára, en þá er oft orðið of seint að byrja að aga barnið til þess að ná góðum árangri. Afleiðingin getur orðið sí aukinn mótþrói barnsins og sundr ung innan fjölskyldunnar, eink- um, er foreldramir eru ekki sam- hentir í uppeldinu .Þess verður stundum vart, að kvörtunum vandalausra út af misgerðum barna er tekið illa af foreldrunum jafnvel í áheyrn barnanna, og má nærri geta, hver áhrif slíkt hefur á barnið. Fyrir nokkrum árum kom það í Ijós, við athugun á stálpuðum börnum í skóla í Reykjavík, að um helmingur þeirra kunni ekki Faðir vor. Þama hafa mæðurnar brugðizt herfilega heilagri móður- skyldu. Er ekki ástæða til að ótt- ast, að skyldurnar við uppeldi barnsins hafi gleymzt á fleiri svið- um? Því fer fjarri, að ég sýkni föður inn af þessari vanrækslu, en vissulega virðist það liggja nær verkasviði móðurinnar að leggja gmndvöllinn að trúarlífi barns- ins, því , að barnið er venjulega miklu meira með móður sinni fyrstu ár ævinnar og henni hand gengnara en föðurnum. Hún svæfir það á kvöldin, og klæðir það á morgnana og þá gefst oft bezta tækifærið að leggja þennan grundvöll farsælla ævidaga. Vel kristinn maður fremur ekki glæpi. En aginn og uppeldið verður að byrja í vöggunni, ef vel á"að tak- ast. Það álit kom fram á síðast- liðnum vetri, innan veggja Alþing is, að setja þyrfti lög er tryggðu það, að börnum yrði ekki ofboðið með vinnu. Vissulega ber að gæta þessa. En eins og högum er nú háttað hjá íslenzku þjóðínni, virðist mjög lítil hætta framundan í þessu efni. En það er önnur hætta á uppsiglingu og miklu geig vænlegri. einkum í Reykjavík og Fréttabréf frá HJ í Kuala Luinpur: iÍJÍÍÍli JöfJiiíI < Jfii vi( KROFUR UPPII SUÐUR- VIETNAM UM INNRÁS í NORÐUR- VIETNAM Kröfur uppi í Suður-Viet- nam um innrás í Norður-Viet- nam. Enn eru uppi kröfur í Suður Vietnam um innrás í Norður- Vietnam. Kröfur þessar vöktu fyrst alþjóðlega athygli, er birt var viðtal það, sem Ky for sætisráðherra Suður-Viet- nam átti við U.S. News and World Report í júlí 1966. í ýiðtali þessu fórust Ky orð á þessa leið, (að hermir í Eastern Sun 28. júlí 1966): Ég var spurður, hvernig sigur yrði unninn. Ég sagði, að með full- tingi kínverskra kommúnista, hefði Norður-Vietnam staðið að árás á Suður-Vietnam. Með an alþjóðlegir kommúnist- ar bollaleggja árásir, mun erfitt veitast að koma á friði þar sem landsvæðið norðan 17. breiddargráðunnar er notað sem stökkpaUur. Styrjöldinni linnir þá ekki, hvorki sem orr- ustum herfylkja né bardög um herdeilda, eða skæruhern- aði og skemmdarverkum. Við æskjum ekki að ráðast inn í Norður-Vietnam. Barátta okk ar er sjálfsvörn. En ræningj- um verður að hegna. Ef Norð- ur-Vietnam lætur ekki af árás- um sínum, þarf að gera gagn- ráðstafanir. GriðaStað þeirra verður að eyða. Hins vegar ef efnahagur og lýðræði Suð- ur-Vietnam verða treyst, hallast menn í Norður-Viet- nam að Suður-Vietnam og koll varpa kommúnistastjórninni. En til þess þarf bolinmæði og tíma. Um er að ræða tíu til fimmtán ára starf. Vandinn snýst um það, hvort við höfum þá þolinmæði. Ráða- menn í Norður-Vietnam hafa sagt sig reiðubúna að berjast í 20 ár. Við erum þolinmóð- ir, en verður það sagt um bandamenn okkar? Skilja þeir vandann, eru þeir reiðubúnir til að hjálpa okkur í fimm eða tíu ár? Ef svo er, er þessi leið fær. Ef svo er ekki, verðum við að eyða kommúnistum í griðlandi þeirra. Stefnumið okkar eru ekki skýr, og sakir þessa óskýrleika höfum við látið þeim þetta griðland eftir. Það skilja þeir mjög vel. Ef við tökum ekki eitthvað til bragðs, til að vega upp á móti þessu, lútum við í lægra haldi. Það er hryggðarefni, að stjórn andi Norður-Vietnam, Ho Chi Minh, sagðist vera reiðubúinn að berjast í 20 ár í Suður-Viet- nam. Og hann hefur sent þús- undir hermanna til Suður- Vietnma. Menn eru að gera sér ferð á hendur til hans til að tala um fyrir honum. En þeg- ar ég segi, að við eigum að ráðast inn í norðurhluta lands- ins, eru höfð um mig ókvæðis- orð og ég sagður blóðþyrstur. Valdamenn í Bandaríkjunum brugðu skjótt við, þegar þetta viðtal við Ky birtist. Einn tals- manna utanríkisráðuneytisins R. J. McGloskey, sagði: „Hvað eftir annað hefur verið endur- tekið, að afstaða okkar er sú. að vettvangur styrjaldarinn- ar skuli ekki færður út. Við ógnum engri ríkisstjórn.“ (Fra sögn Eastern Sun 28. júlí 1966, sem og verður fylgt í framhaldi þessarar málsgreinar.) Dult var hins vegar ekki farið með, að ríkisstjórnin hygðiét taka mjúklega á ágreiningnum við Ky um styrjaldarmarkmið. — Viðtal Kys varð tilefni orða- hnippinga í öldungadeild Bandaríkjanna 27. júlí 1966. Leiðtogi meirihlutans í öld- ungadeildinni fór þess á leit, að ríkisstjórnin lýsti sig and- víga stefnumiðum Kys. Undir tilmæli Mansfields tóku öld- ungadeildarmennirnir Jacob K. Javits frá New York, George D. Aiken frá Vermont, og Lev erett Saltonstall frá Massachus setts. Mansfield mælti meðal annars á þessa leið: „Játað er, að Ky hefur rétt , til að tala eins og honum sýnist. Jafn ótví rætt verður því neitað, að rétt hefur hann ekki til að skuld- binda Bandaríkin“. Mansfield rifjaði síðan upp, að heimkynni Kys væru i Norður-Vietnam. „Það sæmir ekki, að Banda- ríkin láti Ky marskálk koma sér, ekki aðeins til að beita afli til verndar bráðábirgða- ríkisstjórn hans í Suður-Viet- nam, heldur einnig til að bera hann aftur heim til Norður- Vietnam á ferðum landgöngu- liða okkar og fótgönguliða.“ í Far Eastern Economic Re- view 1. september 1966, er vikið að kröfugerðum í Saigon um innrás í Norður-Vietnam. I tímaritinu segir: „Allt síð- astliðið þx hefur Nguyen Cao Ky . . . hvað eftir annað sagt, að leysa verði nofðurhluta landsins úr ánauð. Síðust og skeleggust þessarar ummæla viðhafði hann við bandarísxt tímarit, og birting þeirra vakrj mótmælaöldu í bandaríska þinginu, einkum frá Mike Mans field öldungadeildarmanni . . Síðan hefur Ky reynt að leggja nýjan skilning í viðtalið með því að setja þann fyrirvara, að innrás í Norður-Vietnam væri aðeins eitt úrræðanna til að leiða styrjöldina til lykta.“ „En hér í Saigon bera fáir brigður á, að Ky hershöfðingi sagði einmitt það, sem honum var í huga. Þegar stefnuyfir- lýsingar eru annars vegar, er afstaðan milli Kys hershöfð- ingja og Cabot Lodge sendi- herra og Vyestmoreland hers- höfðingja sú hin sama og var forðum milli frú Nhu og Ngo Dinh Nhu og Seim forseta í átökunum við Búddhista 1963, — þ.e. að segja, opinskátt það sem hinir tveir géta ekki sagt. En fáir efast um, að í orðum Kys endurspeglist hugsanir (ýmissa) Bandaríkjamanna. í kunningjahópi ‘ hrista banda- rískir embættismenn höfuðið — ekki vegna þess, sem Ky sagði, heldur vegna hins, með hvaða hætti og við hvaða að- stæður hann lét orð sín falla.“ H. J. (Haraldur Jóhannsson) Kuala Lumpur 12. október, 1966. FIMMTUDAGUR 20. október 196« stærri bæjum landsins, en þáð er iðjuleysi stálpaðra krakka og ungl inga yfir sumartímann. Um þetta er minna rætt opinberlega, en hjá framsýnum foreldrum veld- ur þetta þungum áhyggjum og ekki að ástæðulausu. í Reykja- vík einni ganga þúsundir stálp- aðra krakka og unglinga i íðju- leysi að sumrinu. Hér er beinn voði fyrir dyrum, verði haldið svo fram sem horfir. Þessu Gretris- taki lyftir einstakhngurinn ekki. Það er því hvoru tveggja, brýn nauðsyn og bein skylda hins op- inbera að ganga hér fram fyrir skjöldu og gera þær ráðstafanir, þegar á næsta vetri, er tryggja öllum stálpuðum börnum og ungl- ingum bæjanna vinnu að sumrinu, að minnsta kosti í einn til tvo mánuði. Þetta er hægt að gera, ef áhugi og atorka haldast í hend- ur og væri þá engin fjarstæða að hafa á bak við eyrað hina gömlu svokölluðu „þegnskylduvinnu" að hún kæmi til greina einhvern hluta af vinnutímanum, og þá f þyrjun vinnutíma hvers einStaklings. Þetta yrði undir frjálsu vali hvers og eins en sá, sem ekki vill byrja á þegnskylduvinnu stuttan tíma (t. d. 2 vikur), fær þá ekki vinnu fyr ir kaup hjá þessari vinnutrygg ingu hins opinbera. Hófleg vinna stálpaðra krakka og unglinga er einn styrkasti þátt ur í góðu uppeldi þeirra. Skóla- ganga unglinga er talin þeim nauð syn og því neitar enginn, en vinnan er þó nauðsynlegri, til að koma unglingunum vel til manns. Uppeldið er ákaflega fjölþætt, og þar þarf einnig að gæta vel smáatriðanna. Oft má sjá það í litlu, hvort fullorðið fólk hefur hlotið gott uppeldi og sanna menntun. Það mun t.d. enginn, sem hlotið hefur fágað uppeldi, og sama menntun láta mynda slg með sígarettu, vindil eða pípu í munninum og enn síður, að hann láti mynda sig veifandi glasi með áfengi, að minnsta kosti ekki á meðan hann er allsgáður. En það er hverjum manni til minnk unar að drekka svo, að hann verði ekki allsgáður. Sunnudaginn 4. septembér stöð grein í Tímanum með yfirskrift- inni: Helgidómar, skrifuð af séra Áreliusi Nielssyni. Greinin er prýðilega rituð, en hún er líka annað og meira, hún er að hugs- un til listaverk. Miklu meira lista verk en sumt það, sem ríkið verð- launar. Þegar ég las hana, komu mér í hug sumar beztu greinar ritstjóra Einingar, Péturs Sigurðs sonar, um siðferðis- og uppeldis- mál. Þessi stutta grein dregur ein mitt dásamlega fram í dagsljósið þýðingu smáatriða í uppeldinu. Hún bendir á að barni, sem er innrætt það á fyrstu árum ævinn- ar, að „ganga ekki á grasinu“ muni lærast það að bera síðar virð- ingu fyrir því sem meira er. Þeim mönnum, sem ekki bera virðingu fyrir neinu, og sem ekk- ert er heilagt, er trúandi til alls. Þeir geta rænt grafreiti og guðshús. Þeir geta misþyrmt mönnum og skepnum og myrt, ef þeim býður svo við að horfa. Þeir geta nauðgað konum og svívirt stúlkubörn Sé börnum kennt að virða þið smáa ,þá munu þau síðar bera lotningu fyrir þvi, sem stórt er, virða rétt einstaklingsins og bera lotningu fyrir mannhelgi. Helgir dómar verða þeim heilagir, en það er hverjum nianni nauðsyn, hverju sem hann annars JÚir Þess vegna mega foreldra hvorki láta tómlæti hindra sig í pvi að ieið- beina börnum sínum, né kæruleysj koma í veg fyrir það. að þeir agi þau. — „Þau eru verst hin þögiu svik að þegja við öllu röngu.“ 17., október 1966. Jón Sigtryggsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.