Tíminn - 20.10.1966, Side 9

Tíminn - 20.10.1966, Side 9
 FTMMTUDAGUR 20. október 1966 Sláturhússbyggingin nýja i Borgarnesi, mikið hús og veglegt. Á sL ári misstu íslendingar sinn bezta marka® fyrir stórgripakjöt vegna þess, að ekkert sláturhús á landinu var þá í nógu góðu ásig- komulagi að dómi fulltrúa amer íska Iandbúnaðarráðuneytisins, sem hingað kom þá til að skoða sláturhús. f ár er þess hins vegar fastlega vænzt, að hægt verði að selja kjöt á þennan markað aftur, og er það eingöngu vegna þess, að nú hefur hið nýja sláturhús Kaup félags Borgfirðinga í Borgar- nesi verið tekið til fullrar notk- unar, og bauð kaupfélagsstjórn af því tilefni blaðamönnum, land- búnaðarráðherra og framámönn- um í landbúnaði að skoða þessa miklu byggingu er stendur á Brák arey í Borgamesi. Þórðui- Pálmason kaupfélags- stjóri rakti í fáum orðum bygg- ingasögu hússins á meðan gestir nutu góðs beina í Hótel Borgar- nesi í boði kaupfélagsins, og sagði hann, að byrjað hefði verið -á því árið 1964 að sprengja klappir og fylla upp vík í eynni til að fá at- hafnapláss og rými fyrir bygging una. Húsið hefði verið teiknað á Teiknistofu SÍS undir yfirum- sjón Gunnars Þorsteinssonar og miðað við að hægt yrði að slátra þar þrjú þúsund kindum á dag. í þeim áfanga, sem nú er lokið í kjallara, er saltgeymsla, gæru- söltun, gæruflokkun, gærubind- ing, ketilhús, háspennpkerfi, kaffistofa og snyriiherbergi. Á fyrstu hæð er anddyri, fjárrétt, tilraunasláturhús, slátursala, garna stroka, herbergi fyrir innyfla- aðskilnað o.fl. Á annarri hæð er fjárrétt, slátursalur með tvö til þrjú gengi hringslátrunar, skrif- stofur verkstjóra og dýralæknis, kjötsalur, þar sem fer fram mat, pokun og merking alls kjöts sem til fellur í húsinu. Þessi áfangi, sem nú hefur ver- ið tekinn í notkun er 2700 fer- metrar eða 12100 rúmmetrar að stærð, en 2. áfangi er áætlaður 1296 fermetrar, og á hann að koma þar sem gamla sláturhúsið stendur og er notað í sambandi við hið nýja, fyrir innyflapökk- un til útflutnings, kælingu á mör og garnasöltun. Auk þess er gamla frystihúsið notað, en í 2. áfanga nýja sláturhússins er gert ráð fyr ir kælirúmi og frystigeymslum. Er enn óráðið, hvenær hafizt verður handa um byggingu hans. Sláturhúsið að Görðum var lagt niður i haust með tilkomu nýja hússins, en slátrað er á tveim öðr- um stöðum á vegum KB, að Hurð- arbaki og Vegamótum, og í þess- að á bak við bygginguna á slátur- húsinu stæðu 2458 íbúar í 16 hreppum í Mýra- Borgarfjarðar og Hnappadalssýslu, og væri þetta vissulega stórt átak hjá ekki fleirum, en við munum keppa við lélegu sláturhúsin, sem ekkert kosta, og framleiða í okkar húsi betri vöru til útflutnings og ekki síz) ' -'r innanlandsmarkaðinn, sem ifu á því að sem bezt sé vai.uað til framleiðslunnnar, sagði kaupfélagsstjórinn. Yfirsmiður við húsið var Gunn- laugur Jónsson, raflagnir annaðist Reynir Ásbjörn Nielsen, pípu- lagningar Jón Kr. Guðmundsson og málarameistari var Einar Ingi- mundarson. Sláturhússtjóri er um þrem húsum fer fram 10. hluti Grétar Ingimundarson og hafa í allrar sauðfjárslátrunar í landinu. kringum 125 manns unnið í slátur Þórður kaupfélagsstjóri sagði, I húsinu í haust undir hans stjórji. Nýja sláturhúsið stendur eins og áður segir í Brákarey, niður við sjóinn, og þegar gestirnir skoð- uðu það um daginn, var verið að leggja síðustu hönd á að mála það utan, í bláum og ljósum lit. Öll umgengni í húsinu er til mikillar fyrirmyndar, enda er fyrsta boð- orð þar hreinlæti og aftur hrein- læti. T. d. voru allir gestirnir færðir í hvíta sloppa áðuf en þeir fengu að fara um húsið, og var haft á orði, að mikil væri sú englahjörð, sem um húsið færi. Áður hefur hér í blaðinu allítar- lega verið skýrt frá tilraunaslátur- húsinu, en það er á fyrstu hæð í nýja húsinu. Varð gestunum að vonum starsýnast á þau vinnu- brögð er þar fóru fram, og svo hefur einnig orðið öllum þeim Framhald á bls. 12 Þórður Pálmason kaupfélagsstjóri (í dökka frakkanum), Sverrir í Hvammi o. fl. litast um í tilraunasláturhúsinu ;..........................s __________________ _________________________________________________ Nokkrir gestir og heimamenn vlð nýja sláturhúsið. Frá vinstri Guðbrandur Magnússon kjötmatsmaður, Sœmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri, jón Einarsson fulltrúi, Ingimundur Ásgeirsson bóndi, Hæli, Friðjón Sveinbjörnsson sparisjóðsstjóri, Björn Jakobsson kennari, Jónmundur Ólafsson yfirkjötmatsmaður, Daníel Kristjánsson formaður stlórnar K. B. Sverr. ir Gíslason bóndi Hvammi, Einar Ólafsson bóndi, Halldór E. Sigurðsson alþingismaður, Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra, Þórður Páimason kaupfélagsstjóri, Agnar Tryggvason, framkvæmdastjóri, Grétar Ingimundarson sláturhússtjóri og Sveinn Tryggvason framkvæmdastjóri. (Tímamyndlr K.J.) i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.