Vísir - 01.10.1975, Qupperneq 5
Visir. Miðvikudagur 1. október 1975
REUTER
AP NTB
ÚTLÖNDÍ morgun ÚtlÖnd í morgun ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
Boða lög og reglu í Portógal
Stjórnarsinnar héldu útifund í Lissabon í gœr til stuðnings aðgerðum
stjórnarinnar gegn uppvöðslu kommúnista
Jose Pinheiro de
Azevedo, forsætis-
ráðherra Portúgals,
gekk um milli manna,
sem safnast höfðu til
útifundar við stjórnar-
ráðið i Lissabon, stýrði
kallkór -þeirra, sem
heimtaði „aga”,
„aga”, og aftur „aga”.
Það er talið, að um 12.000
manns hafi safnast þarna
saman til að lýsa stuðningi við
aðgerðir stjórnarinnar, sem
hefur nú hafist handa gegn
byltingarkenndustu uppátækj-
um róttækra vinstrimanna.
Meðal þessara aðgerða var
frelsun útvarpsstöðvar
kaþólskra, sem kommúnistar
höfðu hertekið, og ögun þeirra
herdeilfla, sem neituðu að
hlýðnast fyrirmælum, þau
beindust gegn kommúnistum.
Jafnaðarmenn og
alþýðudemókratar gengu fylktu
liöi um götur Lissabon i gær
með dr. Mario Soares i broddi
fylkingar. Var siðan numið
staðar við stjórnarráðið en
Soares sótti de Azevedo inn og
leiddi hann út á svalir, þar sem
þeim var fagnað.
Dr. Soares ávarpaði
mannfjöldann, og sagði, að
þjóðin styddi þá stjórn, sem nú
væri komin til valda i Portúgal.
Tók mannsafnaðurinn undir
það. örfáir kommúnistar i
hópnum reyndu að gripa
frammf fyrir Soares, sem sagði
þá: „Við viljum ekki einangra
eða varpa rýrð á félaga okkar,
kommúnista. En við getum ekki
heldur liðið það, að litill
minnihlutiráði lögum og lofum i
Mario Soares, leiðtogi jafnaðarmanna, og de Azevedo, forsætisráðherra, sjást hér innan um stuðningsmenn stjórnarinnar á útifundinum I
Lissabon i gærkvöldi.
þessu landi gegn vilja yfirgnæf-
andi meirihluta portúgölsku
þjóðarinnar.”
Var þessum orðum Soares
tekið með miklum fagnaðarlát-
um.
Þegar de Azevedo forsætis-
ráðherra ætlaði að taka til máls,
bilaði hátalarakerfið. Hann
greip þá til þess ráðs að blanda
sér i mannþröngina og hrópa or
orð sin til mannfjöldans, sem
tók undir i einum kór.
„Það er knýjandi nauðsyn að
koma aftur á lögum og reglu og
aga, til að brjöta á bak aftur það
stjómleysi, sem landið hefur
búið við,” sagði forsætis-
ráðherra, og samstundið var
tekið undir af 12.000 manna kór:
„Aga, aga, aga.”
Azevedo kvaðst hafa gert sér
grein fyrir þvi, að hann hefði
hætt á að baka sér óvinsældir
með þeim aðgerðum.sem hann
lét stjórnina gripa til. En þær
hefðu verið nauðsynlegar, ef
landið hefði ekki átt að verða
fasisma að bráð.
„Lengi lifi Pinheiro,” hrópaði
mannfjöldinn á móti, svo að
kviði forsætisráðherrans virðist
ástæðulitill.
Kölluðu vindl-
ingana eftir
Apollo-Soyuz
Áður en hið sögulega stefnumót
geimtaranna, Apollo og Soyuz,
átti sér stað úti i geimnum, gerðu
sovétmenn* og bandarikjamenn
með sér margþætt samkomulag
um dreifingu upplýsinga, beinar
sjónvarpssendingar og fleira og
fleira.
Einn liður samvinnunnar, öllu
jarðbundnari en geimflugið, laut
að framleiðslu vindlingategund-
ar, sem kölluð er „Apollo Soyuz”.
Tóku þar höndum saman kapital-
istar austan tjalds og vestan.
Mynduðu Philip Morris og
Glavtabak með sér félag um
framleiðslu á þessum nýju
vindlingum, sem eru með filter,
en þær eru framleiddar i Java-
verksmiðjunni i Moskvu.
Nýja vindlingategundin, sem er
rækilega merkt Philip Morris og
Glavtabak, og sögð vera
„american biend cigarettes”.
Gengið út af
Fjöldi fulltrúa á alls-
herjarþingi Sameinuðu
þjóðanna gengu úf af f undi
allsherjarþingsins i gær,
þegar Pedro Cortina,
utanríkisráðherra Spánar,
ætlaði að taka til máls.
Ambassadorar EBE-landanna
niu risu úr sætum sinum sem einn
maður og gengu út, þegar Cortina
sté i ræðustól. Um leið gengu út
nokkrir fulltrúar Norðurlanda og
fleiri.
Með þessu voru undirstrikuð
viðbrögð fjölda rikja við aftökum
skæruliðanna fimm, sem hvar-
vetna hafa vakið andúð og mót-
mæli.
Bauð 25 þúsund dollara
til að rúða Ford af dögum
Við rannsóknina á
tilræði Söru Jane
Moore við Ford forseta
á dögunum hefur kom-
ið i ljós, að hún gerði
þrivegis tilraun til að
ná simasambandi við
leyniþjónustuna að
morgni þess dag, sem
hún skaut að Ford.
Enginn veitt enn,
hvað henni lá á hjarta.
Hún var yfirheyrð af erind-
rekum leyniþjónustunnar
kvöldið áður, en var álitin
hættulaus, þegar i ljós kom, að
húnhafði verið uppljóstrari FBI
(alrikislögreglunnar) á stund-
um.
Sérstök þingnefnd vinnur nú
að endurskoðun þeirrar
öryggisvörslursem Bandarikja-
forseta er látin i té. Hefur hún
kallað á sinn fund til skýrslu-
gjafar ýmsa sérfræðinga og þar
á meðal frá leyniþjónustunni.
Meðalannars semkomiðhef-
ur i ljós, eru þær nýju upp-
lýsingar, að 20. september (til-
ræði Söru Moore var 22. septem-
ber) hafi fyrrverandi geðsjúk-
lingur boðið einum erindreka
leyniþjónustunnar 25,000 doll-
ara, ef hann vildi ráða Ford for-
seta af dögum.
Leyniþjónustumaðurinn gerði
yfirboðurum sinum viðvart og
var sa, sem tilboðið gerði, hand-
tekinn. Eftir viðræður við
manninn varð að samkomulagi,
að hann gæfi sig sjálfur fram við
geðsjúkrahús til að gangast
undir nýja geðrannsókn. Fallið
var frá þvi að sækja manninn til
saka.
Þannig er uppvi'st orðið um
þrjártilraunirnúna i september
siðastliðnum til að ráða Gerald
Ford af dögum.
fundi S.Þ.
A meðan skoraði Carlos Aria
Navarro, forsætisráðherra
Spánar, á spænsku þjóðina i
sjónvarpsræðu i gærkvöldi, að
standa saman gegn erlendri
gagnrýni. — Hefur spænska
stjórnin kallað mótmæla-
orðsendingar erlendra rikja ,,ó-
þolandi afskiptL af innanlands-
málum Spánar.”
Allsherjarverkfallið, sem hófst
i Baskahéruðunum til að mót-
mæla aftökunum, er nú i al-
gleymi. Til átaka kom i San
Sebastian, þegar vopnaðar lög-
reglusveitir öftruðu 5.000
syrgjendum frá þvi að fylgja
tveim skæruliðanna, sem teknir
voru af lifi, til grafar.
l'ord forseti hefur haldið áfram
að koma fram á útifundum og
öðrum opinberum samkomum,
þrátt l'yrir þrjú tilræði, sem
honum hafa verið sýnd.