Vísir - 01.10.1975, Blaðsíða 7
Visir. Miðvikudagur 1. október 1975
7
„múarnir hér hljóta
að vera úrvals fólk"
Hvernig er að búa í Breiðholti?
Hvað segja íbúarnir í þessu umdeilda hverfi?
Upp i Breiðholt? Nei takk.
Þangað fer ég ekki.Alls staðar
annars staðar vil ég búa nema
þar.—
Hafið þið ekki heyrt setningar
svipaðar þessum? Það hafa án
efa flestir einhvern tima. t
margra augum er Breiðholt eitt
það ófýsilegasta hverfi i
Reykjavik, sem völ er á.
En hvað segja þeir sem þarna
búa? Þrátt fyrir skrif og umtal
sem orðið hafa um þetta hverfi
svo oft, og reyndar alveg ný-
lega, er þetta hverfi þá miklu
verra en önnur sem skipa
Reykjavik?
Þvi miður komum við ekki
fyrir áliti allra ibúanna. Við
verðum að láta okkur nægja ör-
fáa þeirra.Við spurðum þá um
þjónustu, aðstæður barna og
ýmislegt fleira.
Við spurðum ekki aðeins þá
fullorðnu.Krakkarnir mega lika
segja -sitt álit. Hins vegar
skreyta þeir ekki siður i blaðinu
fyrr en á morgun.
„Eftir öllu að dæma hljóta
þeir sem hingað flytja að vera
hugrakkir. íbúarnir hérna
hljóta þvi að vera úrvals fólk.”
Þetta sagði einn af þeim ibú-
um sem við heimsóttum i Breið-
holtinu. Gunnur Friðriksdóttir
heitir hún og býr við Gaukshóla
2. Hún býr þar ásamt móður
sinni og tveimur börnum á efstu
hæð. Útsýnið sem þau hafa er
stórkostlegt og þó ekki væri
nema þess vegna er ekkert
skritið þó Gunnur kunni vel við
sig.
„Þetta er svo fallegur staður
og það ber svo mikið á þessum
húsum hérna á hæðinni, að yfir-
völd hafa gert skekkju liggur
mér við að segja. Þeir hefðu
frekar átt að hafa hér einhverj-
ar sérstaklega fallegar bygg-
ingar,” segir Gunnur.
Áður bjuggu þau i Miðtúni.
„Ég kann betur við mig hér en
þar,” segir Gunnur. „Ef ég
sakna einhvers þaðan, þá eru
það trén i garðinum þegar sum-
arið var ekki sem best.Eftir þvi
sem ég er lengur hér kann ég
betur við mig!’
„Til að byrja með var langt i
búðir en nú er komin búð hér
rétt hjá. Þjónustan er smátt og
smátt að byggjast upp. Auðvit-
að kemur ekki allt i einu en hér
er mikið gert og hér eru miklir
möguleikar. Það hefur verið
gert svo mikið i hverfinu i sum-
ar að það er ekki hægt annað en
að vera bjartsýnn.”
— Er eitthvað sérstakt sem
þér finnst vanta hér?
„Ég sakna einskis fyrir mig,
það gæti þó verið ágætt að hafa
sundlaug. Það mætti þó vera
eitthvað fyrir eldra fólkið, til
dæmis kirkja.”
Við spurðum Gunnur um það
sem sagt hefur verið um óknytti
og annað slikt i Breiðholti.
„Það er litið um slikt.Það var
miídu meira þar sem við vorum
áður. Annars höfum við sagt
svona i grini, ég og kunningja-
kona min, að við ættum að koma
upp skilti hérna. td.fyrir ferða-
menn og reyndar alla aðra, þar
sem á stæði: Varúð: Þið eruð
komin i Breiðholt III!’
„Annars skiptir þetta umtal
engu máli.Þetta á allt eftir að
breytast!’
Móðir Gunnar, Andrea
Bjarnadóttir, sagði: „Við vor-
um i Miðtúni f 30 ár. Mér er al-
veg sama hvar ég er en mér
geðjast vel að þessu hverfi. Það
er að visu iangt i bæinn en að
öðru leyti er hér ágætt.”
„ Ekki hægt að
vera bíllaus hér"
„Hér eru engar aðrar versl-
anir en þær sem versla með
matvöru.Mér finnst það ætti að
vera hérna fiskbúð og svo
mjólkurbúðir sem selja brauð
og mjólk,” sagði Jórunn
Kjartansdóttir, þegar við hitt-
um hana og mann hennar,
Theodór Guðnason, að máli.
„Hér væri lika gott að hafa
fataverzlun.Það eru svo margir
ibúar hérna að það kæmi sér
vel,” bætti Theodór við.
Jórunn og Theodór búa ásamt
þremur börnum sinum við
Torfufell 25.Þar eiga þau ibúð á
fyrstu hæð og hafa búið þar i
bráðum þrjú ár.
„Hér er ósköp gott og rólegt
að vera.Við kjósum ekkert frek-
ar annan stað til þess að búa á.
Breiðholt er ekkert verra hverfi
en hver önnur i Reykjavik,”
segja þau.
„Annars skilst mér að æsku-
lýðsstarfsemin hafi orðið góð
eftir tilkomu Fellahellis.Þar er
ýmislegt fyrir krakkana, td.bió-
sýningar á' sunnudögum og
fleira!’
„Hins vegar vantar hér alveg
leikvöll,” bætir Jórunn við.,,Það
er langt fyrir okkur að fara á
róluvöll.Sá næsti er við Æsufell.
Samkvæmt teikningum er þó
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
krakkana hér bak við húsið.Að
visu átti þessi aðstaða að koma
strax en hún er ekki komin enn
eftir þrjú ár!”
„En þetta stendur allt til bóta.
Við fáum ekki allt á einu
bretti! ”
Flestir sem búa við Torfufell
segja einn stóran ókost vera við
bflastæðin. Ekki er gert ráð fyr-
ir nema einu gestastæði fyrir
hverjar 10 ibúðir. Ef einhver á
stórafmæli þá gæti það orðið
mikill höfuðverkur!
/,Hef ekki yfir
neinu að kvarta"
„Það er afskaplega gott að
búa hérna i Breiðholtinu. Við
getum ekki kvartað yfir neinu,”
varð Sesselju Guðnadóttur i
Depluhólum 7 að orði, þegar við
bönkuðum upp á hjá henni
Sesselja býr þar ásamt eigin-
manni og tveimur sonum.
„Hér höfum við búið siðan um
miðjan júli i fyrrasumar. Áður
bjuggum við i 20 ár við Rauða-
læk. Ég kunni mjög vel við mig
þar og ég kann lika vel við mig
hér.”
„Þjónusta? Við erum nýbúin
að fá góða verslun hingað i ná-
grennið. Þetta er hverfi sem er
að byggjast upp og þetta kemur
allt með timanum!’
—EA
En að ýmsu má finna eins og
reyndar alls staðar annars stað-
ar.Þau Jórunn og Theodór segja
að þær verslanir sem fyrirfinn-
ast i Breiðholti séu ágætar.Hins
vegar þarf oft að leita i bæinn,
„og það er ekki hægt að vera
billaus hérna.Að minnsta kosti
ekki fyrir fjölskyldufólk eins og
okkur,” segja þau.
Alla skemmtun þarf að sækja
i bæinn.„Það væri allt annað að
hafa kvikmyndahús hérna,”
segir Theodór og blær við.
„Eftir öllu að dæma hijóta þeir sem hingað flytja aö vera hugrakk-
ir!” — Gunnur Friðriksdóttir býr á efstu hæð við Gaukshóla 2 ásamt
2 börnum og móður sinni. Hér er hún með syni sinum, Andra (t.v.)
og kunningja hans sem heitir Jón Hafstein.
„Það rnætti vera fiskbúð hérna og mjólkurbúðir meö nýtt brauð oe
oesselja Guðnadóttir I Depluhólum 7 kvaðst ekki geta kvartað yfir neinu I Breiðholtinu. Það er að mjólk.” — Theódór Guðnason og Jórunn Kjartansdóttir við bilinn
minnsta kosti áreiðanlegt að hún þarf ekki aðkvarta yfir útsýninu. Ljósm.: LA. sinn fyrir utan Torfufell 25.