Vísir - 08.10.1975, Blaðsíða 13
VÍSIR. Miövikudagur 8. október 1975
VtSIR. Miðvikudagur 8. október 1975.
Þetta er nóg í dagT''\
strákar. Sé ykkur svo aftur
i kvöld. þar sem vi5 |
spjöllum um leikaöferðinaí
á laugardag. /
A.lli er með leikmenn FC Milford i
æfingabúðum fyrir siðasta leikinn i
deildinni — leik sem ræður Urslitum
um hvort Milford verðiáfram il.deild
eða falli i 2. deild. Og hann lætur þá puða
Ekkert golf
hjá okkur i
. dag! .
landsliðsins ekki i Höllinni i gær-
kvöldi!
Leikur Vals og Fram stóð
lengstum i járnum, Valsmenn
skoruðu fyrsta markið, en Fram-
arar jöfnuðu strax og tóku siðan
forystuna. En Valsmenn skoruðu
þrjú siðustu mörkin og höfðu yfir i
hálfleik 9:8.
í siðari hálfleik höfðu þeir eins
til tveggja marka forystu, en
Framarar gáfust aldrei upp og
börðust vel. En Stefán tók þá til
sinna ráða þegar 10 min voru til
leiksloka — skoraði tvö falleg
mörk og Valssigur, 19:16 var i
höfn.
Ekki var leikurinn sem slikur
neitt sérstakur. Stefán var eins og
áður sagði bezti maður Vals.
Ólafur Ben. varði ekki bolta i
fyrri hálfleik, en markvarslan
lagaðist i þeim siðari þegar Jón
Breiðfjörð kom i markið.
Hjá Frömurum var Guðjón Er-
lendsson góður i fyrri hálfleik, en
varði litið i þeim siðari og var að
lokum tekinn út af, en það bætti
lltið. Ungur nýliði vakti athygli i
Framliðinu. Gústaf Björnsson —
hann var að visu ekki mikið með
en það sem hann gerði var stór-
fallegt.
Á undan leik Vals og Fram léku
Armann og Fylkir um 7-8 sætið og
lauk þeim leik með öruggum sigri
Armenninga 21:12, eftir að staðan
i hálfleik hafði verið 9:7.
1 kvöld verður svo úrslitaleik-
urinn um Reykjavikurmeistara-
titilinn milli KR og Vikings, en
auk hans leika Þróttur og Leiknir
um 5.—6. sætið. Leikið verður i
Laugardalshöllinni og hefst
keppnin kl. 20:15. —BB
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Á
OL í INNSBRUCK VALIÐ}
Mikið deilt um valið á stúlkunum í liðið á haustþingi Skíðasambandsins um helgina
Stefán Gunnarsson sýndi stór-
góðan leik i gærkvöldi með liði
sinu Val i Reykjavíkurmótinu i
handknattleik. Þá unnu Vals-
menn góðan sigur á Fram og
tryggðu sér með þvi 3. sætið i
mótinu. Átti Stefán mestan þátt-
inn i velgengni Vals. Skoraði
mörg mörk og var auk þess sem
klettur i vörninni. En þvi miður
fyrir Stefán þá sást „einvaldur”
Englandsmeistarar-
arnir úr leiki
Töpuðu fyrir Middlesbrough og Sheffield Utd tapaði fyrir Hull
Hilmar Björnsson þjálfari Vals
hefur verið drjúgur við að skora
mörk fyrir KR i Reykjavikur-
mótinu, og mun sjálfsagt skora
eitthvað af mörkum i úrslita-
leiknum við Viking i kvöld.
Hann vildi ekki gera mikið úr
möguleikum KR i leiknum i
kvöld er við töluðum við hann í
gær — sagði að Vikingur hefði
fjóra landsliðsmenn i sinu liði,
og hlyti það að vera gifurlegur
styrkur, en KR ætti engan og
væri auk þess I 2. deild!! Ljós-
mynd Einar.
í gœrkvöldi — mörg af liðunum í 1. deild áttu í erfiðleikum
Enn tapar Sheffield United.
Liðið er á botninum i 1. deild og
rak framkvæmdastjóra sinn, Ken
Furphy, á mánudaginn. En það
hafði litið að segja i leiknum i
gærkvöldi. Þá lék liðið við Hull úr
2. deild i deildarbikarnum og tap-
aði 2:0. Bæði mörkin voru skoruð
i fyrri hálfleik, Roy Greenwood
og John Ilawlay.
Englandsmeistararnir Derby
töpuðu i Middlesbrough með einu
marki. Það gerði Alan Foggon
þegar 10 min. voru til leiksloka.
QPR átti I miklu basli með
Charlton. Colin Powel skoraði
fyrir 2. deildarliðið i fyrri hálf-
leik, en Stan Bowles bjargaði
andliti QPR með marki á 68. min.
Urslitin I 3. umferð deildarbik-
arsins I gærkvöldi urðu þessi:
Birmingham — Wolves 0:2
Bristol R. — Newcastle 1:1
Hull —Sheff. Utd. 2:0
Liverpool — Burnley 1:1
Middlesbrough — Derby 1:0
QPR — Charlton 1:1
Torquay — Doncaster R 1:1
2. deild
Oldham — BristolC 2:4 BB
„Trukkurinn”! eins og KR-ingar kalla nýja leikmanninn sinn Curtiss
„Trod” Carter —sem kom frá Bandarikjunum I gær. Hann brá sér á
æfingu I KR-heimilinu I gær og var körfuboltinn eins og handbolti I
höndunum á „Trukknum” eins og myndin ber glögglega með sér.
Mynd. — BB
var valið á stúlkunum i liðið og
sérstaklega þó valið á hinni
ungu og efnilegu skíðakonu,
Steinunni Sæmundsdóttur úr
Reykjavfk. Þótti utanbæjar-
mönnunum það val vera ein-
kennilegt — með allri virðingu
fyrir getu stúlkunnar — og töldu
að hún ætti ekki sætið frekar en
Katrin Frimannsdóttir frá Akur-
eyri.
Steinunn var valin á þeim for-
sendum að hún hefði hlotið fleiri
stig en Katrin á punktamótunum
s.l. vetur, enda fékk hún með sér-
stöku samþykki, sem gert var i
fyrra, að taka þátt i þeim flestum.
Aftur á móti fékk Katrin það ekki,
þar sem Akureyringarnir voru
með það mikið af ungu skiðafólki,
að punktamótunum var skipt á
milli þeirra.
Þessi punktamót áttu heldur
ekki að ráða samkvæmt tillög-
unni, heldur að vera til viðmiðun-
ar við valið. Aftur á móti hafði
Katrin betur þegar þær vinkonur
mættust —eins og t.d. á unglinga-
meistaramótinu, og töldu utan-
bæjarmennirnir að tillit ætti að
taka til þess.
Ut af þessu spunnust miklar
umræður og gekk forráðamönn-
um Skiðasambandsins ekki allt
of vel að verja sig. Það eina sem
þeir báru fyrir sig, var að hinn
austurriski þjálfari, sem hér var i
nokkra daga i sumar, hafi talið
Steinunni betri en Katrinu!!
Um val á öðrum keppendum
var minna deilt. Endanleg niður-
staða þingsins varð sú, að eftir-
talið skiðafólk yrði i islenska
landsliðinu á olympiuleikunum i
Innsbruck.
Steinunn Sæmundsdóttir R
Jórunn Viggósdóttir R
Margrét Baldvinsdóttir A
Haukur Jóhannsson A
Árni Óðinsson A
Tómas Leifsson A
Sigurður Jónsson í
Hafþór Júliusson í
Ekki var endanlega ákveðið
hvaða göngumenn færu -. Þar
koma þrir til greina, en tveir
verða sendir. Þeir sem valið
stendur um eru: Halldór
Matthiasson A,Trausti Sveinsson
F og Magnús Eiriksson F.
Annars var þingið heldur
dauft og illa sótt — t.d. mætti ekki
nema einn fulltrúi frá Skiðaráði
Reykjavikur, þótt svo að þingið
væri haldið i Reykjavik — for-
maður þess Sæmundur Oskars-
son.
A haustþingi Skiðasambands
tsiands, sem haldið var um slð-
ustu helgi, urðu miklar umræður
um valið I olympíulið tslands á
vetrar-olympiuleikana i Inns-
bruck I Austurriki sem hefst um
miðjan febrúar.
Það sem aðallega var deilt um,
Eg var bUinn
að steingleyma þvi,
Jeanie.
Hin unga skíðakona úr KR Jór-
unn Viggósdóttir leggur mikið á
sig til að vera I sem bestu formi
á ólympiuleikunum i Innsbruck
I febrúar. Hún er þegar farin
til Schnals á ttaliu, þar sem hún .
mun æfa með norska landslið-
inu. Siðan verður hún I Austur-
riki og Noregi við æfingar fram
að jóium og fcr svo aftur utan
ásamt öðrum úr OL-liði ís-
lands eftir áramót.
Stefán afgreiddi Fram
og Valur náði 3. sœti
— Sýndi stórgóðan leik þegar Valur vann Fram í Reykjavíkurmótinu
í handknattleik í gœrkvöldi — bœði í sókn og vörn
— sögðu vinir Bandaríkjamannsins Curtiss „Trod" Carter
áður en hann hélt til íslands, til liðs við KR
„Passaðu þig á Isbjörnunum á
tslandi”, sögðu vinir Bandarikja-
mannsins Curtiss „Trod” Carters
áður en hann hélt til tslands.
Hann er nú hingað kominn og
mun leika með 1. deildarliði KR i
körfubolta i vetur. Carter kom til
landsins snemma i gærmorgun
eftir erfitt ferðalag frá Houston I
Texas og var þvi hálf þreyttur.
En hann lét sig samt ekki muna
um að taka létta æfingu strax
fyrsta daginn.
„Carter mun vinna með öllum
þjálfurum okkar,” sagði Kol-
beinn Pálsson i gær, en þá var
hann að sýna Bandarlkjamannin-
um húsakynni KR. „Ég mun sjá
um þjálfunina i meistaraflokki,
en Carter verður mér til aðstoðar.
I keppni mun Kristinn Stefánsson
verða iiðsstjóri hjá okkur, þvi að
ég ætla mér að verða með á fullu i
vetur,” sagði Kolbeinn.
,,Ég átti von á að hér væri allt á
kafi I snjó,” sagði Carter i viðtali
við Visi i gær. „Ég varð þvi hálf
hissa að sjá engann snjó og enn
meira hissa þegar mér var sagt
að hér væru aðeins tveir isbirnir
— báðir I dýrasafni. Þá héld ég,
að hér væri miklu kaldara.”
Carter er 2.07 m á hæð og vegur
124 kg hann lék á siðasta keppnis-
timabili i Sviþjóð með liði i 2.
deild og tapaði það ekki leik eftir
að hann byrjaði að leika með lið-
inu. Þá skoraði hann 36 stig og
hirti 23 fráköst að meðaltali i leik.
Carter hefur fengið viðurnefnið
„Trod” sem má þýða sem vinnu-
hesturinn og fékk hann það vegna
þess að hann lék æfinlega alla
leikina. Félagar hans i KR hafa
komið sér saman um nýtt nafn og
ætla að kalla Carter — „Trukk-
inn”.
Fyrsti leikur hans með sinu
nýja liði verður á sunnudaginn en
þá leika KR-ingar við Val i
Reykjavikurmótinu og fer leikur-
inn fram i iþróttahúsi
Kennaraháskólans. Má búast við
að aðsókn að körfuboltleikium
eigi eftir að stóraukast i vetur
með tilkomu Bandarikjamann-
anna og sömuleiðis áhuginn fyrir
iþróttinni.
Enda sást það strax i gær, þvi
að mikill fjöldi af strákum var
mættur til að fylgjast með
„Trukknum” á æfingu og spurði
óspart um hvenær æfingarnar
byrjuðu hjá þeim.
—BB
Njósnar
um svía!
Deftmar Cramer, þjálfari
Evrópumeistaranna i knatt-
spyrnu, Bayern Munchen, ætlar
að horfa á sænska landsliðið Ieika
við það júgóslavneska i Evrópu-
keppni iandsliða i Belgrad á
mánudaginn kemur.
Ilann fer þangað aðailega til að
sjá leikmenn Malmö FF, sem
Bayern á að leika við i annarri
umferð i Evrópukeppni meistara-
liða þrem dögum siðar, en búist
er við að einir 6 leikmenn Malmö
verði i sænska landsliðinu I þess-
um leik.
Chamberlain
verður að
byrja aftur
— Losnar ekki fró Los
Angeles Lakers fyrr en hann
hefur staðið við samning
Hinn heimsfrægi bandariski körfuknatt-
leiksmaður, Wilt Chamberlain, sem fyrir ári
hætti að leika og sneri sér að þjálfun, hefur
ákveðið að snúa sér aftur að körfuknattleik,
til að losna við þann áburð, að hann hafi
stungið af og ekki uppfyllt samninginn, sem
hann gerði við Los Angeles Lakers á sínum
tima.
Félagið segir að Chamberlain hafi stungið
af i fyrra og skuldi þvi eitt ár. Þessu hefur
„risinn” mótmælt, en samkvæmt ábendingu
lögfræðinga hans hefur hann nú ákveðið að
leika með Lakers i vetur til að geta verið
frjáls maður, eins og liann orðar það.
Chamberlain, sem nú er 39 ára gamall, er
trúlega besti og frægasti körfuknattleiks-
maður sem uppi hefur verið. Hann var af-
burðamaður á öllum sviðum i þau 14 ár sem
liann keppti sem atvinnumaður og á enn met-
in i vitahittni, flestum fráköstutn, og að hafa
skorað flest stigin i einum leik innan NBA.
Hann var þjálfari hjá ABA San Diego Con-
quisladors s.I. velur, cn fékk ekki að leika
með tiðinú vegna kröfu Lakers. Mörg lið hafa
siðan verið á eflir Chamberlain, þar_á. meðal
New York Knicks, en Lakers hafa til þessa
sagt nei við öllunt tilboðum, sem hann hefur
fengið.
Jafntefli
hjá frökkum
— Léku við Hamburger í
gœrkvöldi — eiga að leika
við austur-þjóðverja á
sunnudaginn
Landslið Frakka I knattspyrnu lék æfinga-
leik við vestur-þýska 1. deildarliðið Hamburg
igærkvöldiog lauk leiknum meö jafntefli 0:0.
Frakkarnir eru á leiðinni til Austur'-Þýska-
lands þar sem þeir munu leika við liö austur-
þjóðverja á sunnudaginn i Evrópukeppni
landsliða i knattspyrnu.
Austur-þjóðverjar eiga enn smá möguleika
á að verða efstir i riölinum, en þá verða þeir
að vinna frakkana á sunnudaginn i Leipzig.
Belgia hefur forystuna I riðlinum með 7
stig og á eftir einn leik, viö Frakkland i
Belgiu. Austur-þjóðverjar eru með 5 stig og
eiga lika einn leik eftir. Fari svo að þeir verði
Belgum jafnir að stigum, sker markatalan úr
og þvi ætla þjóðverjarnir að leggja megin-
áherslu á að skora eins mörg mörk og þeir
geta á sunnudaginn. Talið er að liðsuppstill-
ing þeirra verði sú sama og gegn Belgum
þann 27. sept. sl. en þann leik unnu
austur-þjóðverjar mjög óvænt 2:1.
„Eitt það besta
sem ég hef séð"
„Dynamo Kiev átti skilið sérverðlaun
fyrir framúrskarandi knattspyrnu,” sagði
formaður Knattspyrnusambands Evrópu,
Artemio Franchi, við blaðamcnn eftir lcik
Dynamo Kiev og Bayern Munchen i „Super
Cup” á mánudaginn.
„Það var engin heppni að Dynamo sigraði i
þessari keppni og heldur ekki i Evrópukeppni
bikarméistara i vor. Leikmennirnir eru allir
sérlega leiknir og leikskipulagið sem þeir
nota citt það besta sem ég hef séð um dag-
ana.
Eftir að hafa séð það leika tel ég það án
nokkurs efa vera besta knattspyrnulið
Evrópu og verður handhafi —■ bikars bikar-
anna.”