Vísir - 10.10.1975, Qupperneq 4
4
VtSIR. Föstudagur 10. október 1975.
KREFST
NÚTÍMA
VERKSTJÓRN
NÚTÍMA
FRÆÐSLU
Þetta vita þeir 900 verkstjórar, sem sótt hafa
verkstjórnarnámskeið á undanförnum árum.
Á almennum 4ra vikna námskeiðum er lögð
áherzla á þessar greinar:
o Nútima verkstjórn, vinnusálarfræði
o öryggi, eldvarnir, heilsufræði
o Atvinnulöggjöl, rekstrarhagfræði
o Vinnurannsóknir, skipulagstækni
A framhaldsnámskeiöum gefst fyrri þátttakendum tækifæri á
upprifjun og skiptum á reynslu.
KENNSLUSKRÁ VETRARINS:
] otc 50. námskeift, fyrri liluti 3. til 15. nóvember.
51. námskeiö, fyrri hluti 17. til 29. nóvember.
Framhaldsnámskeift II., 12. og 13. desember.
50. námskeið, siöari hluti 5. til 17. janúar.
52. námskeiö, fyrri hluti 19. til 31. janúar.
51. náinskeið, siftari hluti 16. til 28. febrúar
52. námskeiö. siftari hluti 15. til 27. marz.
Innritun og upplýsingar i sima 81533 hjá Verkstjórnarfræöslunni
lönþrounarstofnuu tslands, Skipholti 37.
Fulltrúastaða í
utanríkisþjónustunni
Staða fulltrúa I utanrlkisþjónustunni er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist utanrikisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
Reykjavik, fyrir 10. nóvember 1975.
Staðan veröur veitt frá og með 1. janúr 1976.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 7. október 1975.
Bílar til sölu
Árg Tegund Verðiþús
74 Cortina 2000 XL 1.150
74 Escort 1300 670
74 Bronco 6 cyl. 1.300
74 Comet Custom 1.450
75 Moskowitch 620
74 Morris Marina 790
68 Bronco V-8 750
74 Vauxhall Viva 790
74 Rússajeppi 870
74 Mustang 1.600
72 Ford Pinto 700
71 Ford Taunus 20M XL 625
73 Cortina 1300 745
70 Cortina 1600 370
Sýningarsalurinn
SVEINN EGILSSON HF
FORD-Húsið Skeifunni 17, Rvík
Sími 85100
SVEINN EGILSS0N HF -1
l,;i FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SIMI85100 REYKJAVlK |
AP/UNTEe GUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND Í MORGUN
Sakharov þykir
maklegur friðar-
verðlauna Nóbels
Úthlutunin mœlist víðast vel
fyrir, en Norðmenn kvíða því,
að Sovétstjórnin láti þá gjalda
sárinda sinna vegna
úthlutunarinnar
Úthlutun triöarverð-
launa Nóbels til sovéska
andófsmannsins, Andrei
Sakharov, hefur vakiö
mikla athygli um heim
allan og mælist víðast vel
fyrir.
Norsk blöð og stjórnmála-
menn ljúka lofsorði á val úthlut-
unarnefndarinnar, en i fyrstu
viðbrögðum þeirra má sjá, að
Norðmönnum er ekki rótt,
vegna þeirra áhrifa, sem þeir
kviöa að þessi úthlutun hafi á
sambúð Noregs og Sovétrikj-
anna.
„Dagbladet” i Osló skrifar i
morgun, að úthlutunarnefndin
hafi „stungið höndunum inn i
vespuhreiður! Valið á
Sakharov hljóti aö framkalla
„dómadagshávaða i Kreml”. —
Blaöið segir, að ekki þurfi að
efa, að nefndin sæti aðkasti fyrir
tilræðið frá Moskvumönnum, en
þvi geti hún tekið með góðri
samvisku, þvi að Sakharov hafi
unnið til verðlaunanna.
„Arbeiderbladet”, málgagn
verkamannaflokksins, segist
vona, að Sovétstjórnin leyfi
Sakharov að koma til Osló til að
veita verðlaununum viðtöku.
„Synjun væri stjórnmálaleg
skammsýni,” skrifar blaðið.
Fæstum þykir þó liklegt, að
Sakharov muni koma til að taka
við verðlaununum 10. desem-
ber.
Meðal þeirra, sem látið hafa i
ljós álit sitt á verðlaunaveiting-
unni er Nóbelsverðlaunahöf-
undurinn, Heinrich Böll, sem
staðið hefur i nánu sambandi
við andófsmenn i Sovétrikjun-
um. Hann sagði, að verðlauna-
veitingin að þessu sinni „væri
heiður sýnilegum og ósýnileg-
um stjórnarandstæöingum i
Sovétrikjunum”.
t sjónvarpsviðtali sagði Böll,
sem smyglaði verkum Alexand-
ers Solzhenitsyn vestur fyrir
járntjald, að verðlaunin mundu
auka álagiö á Sakharov.
„Ég er viss um, að Sakharov
er reiðubúinn til að taka
ákveðna áhættu”, sagði þýski
rithöfundurinn. „Ég býst ekki
við þvi að hann sé beinlinis i lifs-
háska, en að hljóta slik verð-
Þessi mynd var tekin af Andrei Sakharov 28. júni i fyrra eftir
hungurverkfail, sem hann hóf til þess aö vekja athygli umheimsins
á örlögum pólitlskra fanga I Sovétrikjunum. Hjá honum er á mynd-
inni móöir Vladimirs Bukovsky, stjórnarandstæöings, sem sat þá i
fa ngelsi.
Nóbelshöfundurinn, Heinrich
Böll, hefur staftift i tengslum
vift sovéska andófsmenn.
laun, meðan maður er einangr-
aður i landi sinu, er ægilegt
álag.”
Alexander Solzhenitsyn, sem
nú dvelst i útlegð á Vesturlönd-
um vegna skrifa sinna um
stjórnarfar Stalinstimans i
Sovétrikjunum, lét orð falla um,
að Sakharov væri vel að verð-
laununum kominn. ■— „Hann
hefur ekki einungis fórnað starfi
sinu og frama i baráttu sinni
fyrir auknum mannréttindum
til handa löndum sinum. Hann
hefur einnig fórnað heilsunni.”
Bresk blöð ljúka miklu
lofsorði á Sakharov i dag og
telja hann maklegan friöar-
verðla unahafa. „London
Times” bendir þó á um leiö, aö
hann verði jafnframt umdeild-
ur.
I leiðara sinum skrifar
„Times”: „A margan hátt er
hann miklu meiri vinur Sovét-
rikjanna, en margir aðrir, sem
tala i nafni þeirra. — bótt hann
hafi ekki komið neinum friðar-
samningum i kring eða bundið
enda á styrjaldir, hefur hann
helgað sig friðarstarfinu af
meiri fórnfýsi en margur
stjórnmálamaðurinn.”
„Times” bendir á, að
Sakharov hafi vakið vestur-
landamenn jafnt sem austan-
tjaldsmenn til umhugsunar og
virðingar fyrir manngildi.
„Hann hefur dreymt um að færa
austrið og vestrið nær hvort
öðru... bað er þvi fyrir fram-
lag til friðarhugsjónarinnar,
sem hann er heiðraður, fremur
en sem andstæðingur Sovét-
stjórnarinnar,” ályktar blaðið.
ENN FRÉTTIR
UM BARDAGA
I TIMOR
Leiðtogar Fretilin, frelsis- Jose Ramos Horta, leiðtogi Batugade stendur skammt
hreyfingar Timor, halda þvi statt Fretilin, sagði 1 dag við frétta- austan við landamæri Vest-
og stöðugt fram, að Indónesia menn, að herflokkar frá Indónes- ur-Timor, sem er á yfirráðasvæði
hafi sent herlið inn i Austur-Tim- iu hefðu tekið bæinn á miðviku- Indónesiu.
or til áhlaups á bæinn Batugade. Jag, verið stuggað á flótta i gær, Horta segir, að fréttir hafi bor-
— En Indónesiuyfirvöld hafa bor- ensnúið við afturogstæðu nú yfir ist um harða bardaga einnig
ið þessar fréttir til baka. harðir bardagar um bæinn. skammt frá bænum Lebos.