Vísir - 16.10.1975, Qupperneq 1
VÍSIR
Fimmtudagur 16. október 1975 — 235. tbl.
„Tílboðið með öllu óviðunandí"
segir formaður BSRB
„Þaö er með öllu
óviðunandi,” sagði Kristján
Thorlacius formaður BSRB I
morgun er Visir spurði hann um
tilboð það sem Fjármála-
ráðuneytið sendi BSRB i gær.
„Krafa okkar um verkfalls-
rétt hefur ekki hiotið neinar
undirtektir stjórnvalda.”
Ekki kvaðst Kristján geta
sagt neitt um innihald tilboðs
rikisvaldsins, á þessu stigi
málsins. En sagði að lokum :
„Hver okkar viðbrögð verða
við þessu tilboði rikisvaldsins
skýrist I dag. Stjórn BSRB, 50
manna nefndin og verkfalls-
réttarnefndin hafa veriö
boðaðar á fund i dag, þar sem
málin verða rædd.” -EKG.
Varðskip halda þjóðverjum
utan nýju landhelginnar
— Týr siglir um með klippurnar
hangandi á skutnum
Varðskip halda nú
þýsku togurunum fyrir
utan nýju fiskveiðiland-
helgina. Ekki hefur enn
komið til átaka, en nær-
vera varðskipanna ein
nægir til þess aði Þjóð-
verjarnir treysta sér
ekki til að veiða innan
nýju markanna að svo
komnu máli.
Fréttamenn tóku enda eftir þvi
þegar þeir flugu yfir austur-
svæðiö i gær, að varðskipið Týr
sigldi með klippurnar hangandi
aftan á skutnum, tilbúnar til
notkunar Skipherra á Tý er
Guðmundur Kærnested, sem
veiðiþjófar óttast öðrum mönnum
fremur.
Hálfdán Henrýsson hjá Land-
helgisgæslunni sagði Visi i
morgun að Þjóðverjarnir héldu
sig nú utan miðlinunnar milli ís-
lands og Færeyja. „Hvað lengi
sem það nú verður.”
Bresku togarrnir halda sig hins
vegar i sinum hólfum, þar sem
þeir hafa leyfi til að veiða þar til
13. nóvember næstkomandi.
— OT.
Verktaklnn á Grundartanga ekki
aðeins í skömm við verkamennina:
Skuldar eig-
endum vinnu-
véla yfir 20
milljónir kr.
— vinna lögð niður á hódegi í dag, ef
málum verður ekki kippt í lag
Jón V. Jónsson, verk
taki á Grundartanga,
við undirbúningsvinnu
að Máimblendiverk-
smiðjunni, skuldar
vinnuvéiaeigendum
þar yfir 20 milljónir.
Eins og fram kom i Visil gær,
fengu verkamenn á Grundar-
tanga laun sin greidd fyrir
siðustu helgi með innistæðu-
lausum ávisunum. Eigendur
vinnuvéla, sem starfa sem
undirverktakar hjá JVJ, hafa
hinsvegar ekki einu sinni fengið
slika papplra.
Félag vinnuvélaeigenda hefur
safnað saman kröfum þeirra.
Fram til septemberloka skuldar
JVJ 18 milljónir til vinnuvéla-
eigendanna. Mest er þaö fyrir
vinnu I september, og örlitið I
ágúst. Það sem af er október
hafa safnast fyrir skuldir að
upphæð 4 til 5 milljónir. Þess má
geta, að verkkaupi, Málm-
blendifélagið hefur að fullu
staðið I skilum við verktakann.
Þeir, sem vinna á Grundar-
tanga hafa gefið Jóni V. Jóns-
syni frest til hádegis i dag að
gera skil. Þeir unnu þvi I
morgun. En ef ekki verður allt
komið á hreint á hádegi, munu
þeir leggja niður vinnu.
Fyrir utan það, að skulda
þessum mönnum, er verktakinn
stórskuldugur við ýmis fyrir-
tæki á Akranesi. Þrátt fyrir
itrekaðar kröfur, hafa þau ekki
fengið reikninga sina greidda,
nema að hluta.
-ÓH.
ÁT ÖNDINA LIFANDI
T ogaratökur rey ndar
Lögregluþjónn skaut máf við
Tjörnina I morgun eftir að hann
hafði ráðist á önd og byrjað að éta
hana lifandi. öndin var á sundi
þegar máfurinn réðst að henni,
hélt henni fastri og byrjaði að
tæta brjósthol hennar.
Þeir Erlendur Sveinsson varð-
stjóri og Gisli Þorsteinsson, lög-
regluþjónn, náðu sér i gúmmibát
og hröktu máfinn burt, en þá var
hann btíinn að éta mikið innan úr
öndinni ásamt félaga slnum og
hún var dauö. Nokkru siðar tókst
Erlendi að koma skot á máfinn.
A stóru myndinni sést Gisli
Þorsteinsson draga dauðan máf-
inn upp i bátinn, en varðstjórinn
er undir árum. A litlu myndunum
sést hvernig máfurinn var búinn
að éta úr öndinni, og svo Erlendur
aö miða byssunni. — ÓT (Ljósm.
Loftur Asgeirsson)
Reykjavlk, 16. október 1975.
Svör við spurnlngum Olafs Haukssonar, blaðamanns, í tilefni
af útfærslu landhelginnar í 200 milur.
Sp: A að verja 200 mílna landhelgina?
Sv: Já, auðvitað.
Sp: Er það rétt, að fyrirskipaö hafi verið, að skrá aðeins
nöfn skipa innan 200 milna, en ekki leggja til atlögu
við þau - hvorkl togvíraklippingar, né togaratökur?
Sv: Nei. Ég skil ekki, hvar slik hugmynd hefur fæðst.
Sp: Verða togaratökur reyndar?
Sv: Já, auðvitað, hvenær sem varöskipsforingjar sjá á því
færi.
Sp: Hvert er álit yðar á viðbrögðum erlendis vegna út-
færslunnar?
Sv: Það, sem ég hef um það heyrt, er svipaö og ég bjóst við.
Viröingarfyllst,
Vlsir lagði nokkrar spurningar fyrir Ólaf Jóhannesson dóms
málaráðherra I morgun, um verndun 200 mllna landhelginnar
Skrifleg svör ráðherra eru hér að ofan.