Vísir - 16.10.1975, Side 17
VÍSIR. Fimmtudagur 16. október 1975.
17
Hlustar þú ó
útvarpsleikrit?
í DAG I í KVÖLD I I DAG
Guðrún Jónsdóttir, húsmóðir:
Já, stundum geri ég það. Ég hlustaði til dæmis á
leikritið siðasta fimmtudag. Annars fer það
alveg eftir þvi hvaða leikrit um er að ræða, hvort
ég hlusta.
Guðbjörg Jónsdóttir,
húsmóðir og útivinnandi:
Ég er yfirleitt að vinna á fimmtudagskvöldum.
Annars hlusta ég yfirleitt mikið á útvarp, þegar
ég fæ tækifæri til þess. En ég er ekkert mikið
fyrir leikrit.
Tryggvi Þór Gunnarsson, nemi
Nei, mjög sjaldan. Það kemur þó stundum fyrir.
Helst vil ég heyra einhver skemmtileg barna-
leikrit, en ég hlusta þó stundum á leikritin á
fimmtudögum ef ég hef tfma. Annars er ég bara
svo oft á fótboltaæfingu þessi kvöld, og verð það
til dæmis i kvöld.
Ragnhildur Gunnarsdóttir,
nemi og flugfreyja:
Já, þegar ég hef tækifæri til þess. Ég hef mest
gaman af að hlusta á íslensk leikrit, en ég á ekki
von á að ég geti hlustað á leikritið I kvöld.
Útvarp, kl. 20.25:
ÁKÆRUSKJALIÐ:
Róðist ó smóborgaralegt sjónarmið — í leikritinu í kvöld
,,*Akæruskjalið” heitir leikrit-
ið i útvarpinu I kvöld. Leikritið
er eftir Gergely Rákosy. Hann
er ungverji og einn af yngri höf-
undum þeirra þar um slóðir.
Gergely vakti gífurlega at-
hygli fyrir ádeiluskáldsöguna
„Stóra dælan”, sem fjallar um
ástandið í sveitum Ungverja-
lands á árunum 1950 til 1960.
í leikritinu „Ákæruskjalið” er
þjóðfélagsádeilan áberandi.
Vikið er að húsnæðisvandamál-
um i Búdapest eftir striðið.
Fyrst og fremst er ráðist á smá-
borgaralegt sjónarmið og það
mengaða og sjúka hugarfar sem
þvi fylgir.
Leikritið er að vissu leyti
gamansamt og i léttum tón. Það
segir frá gamalli hefðarfrú og
leigjanda, sem skylda er að
taka inn, og hvernig svo leigj-
andinn tekur yfir.
Sigriður Hagalin fer með
aðalhlutverkið og Anna Kristin
Arngrimsdóttir fer einnig með
stórt hlutverk. Aðrir leikendur
eru Steinunn Jóhannesdóttir,
Geirlaug Þorvaldsdóttir, Ragn-
ar Kjartansson og Sigurlaug M.
Jónsdóttir.
Leikstjóri er Jónas Jónassón
en þýðandi leikritsins er Áslaug
Arnadóttir.
Leikritið hefst kiukkan 20.25.
—EA
3 KVÖI L D n DAG |
| IÍTVARP •
Fimmtudagur
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A frivaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan/ „A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen
Þorsteinn Matthiasson les
(3).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir), Tón-
leikar.
16.40 Barnatiminn: Ragnhild-
ur Helgadóttir og Kristin
Unnsteinsdóttir stjórnar.
Fjaran Friðrik Sigurbjöms-
son ræðir um fjöruskoðun.
Sigrún Sigurðardóttir les
japanskt ævintýri i þýðingu
Áslaugar Arnadóttur, „Taro
og hinn furðulegi bambus-'
teinungur”. Ennfremur
fluttar sögur um marbendla
og seli.
17.00 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun. Sæ-
'mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rekur.
minningar sinar (8).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Viðtal við Ilafstein Guð-
mundsson bókaútgefanda
Óskar Halldórsson lektor
ræðir við hann.
20.00 Einsöngur i útvarpssal:
Ragnheið,ur Guðmundsdótt-
ir syngur lög eftir Fjölni
Stefánsson, Jón Ásgeirsson
og Pál ísólfsson. Guðmund-
ur Jónsson leikur á píanó.
20.25 Leikrit: „Akæruskjalið”
eftir Gergely Rákosy Þýð-
andi: Asladg Arnadóttir.
Leikstjóri: Jónas Jónasson.
Persónur og leikendur:
Margrét Sikula....Sigriður
Hagalín, Rósa Rövecses
..Anna Kristín Arngrims-
dóttir, Frú ördög....Stein-
unn Jóhannesdóttir, Kven-
læknir......... Geir-
laug Þorvaldsdóttir, Lög-
regluþjónn....Ragnar
Kjartansson, Barnið.......
Sigurlaug M. Jónasdóttir.
21.00 Frá tónlistarhátíðinni i
Bergen i maí Alicia de
Larrocha leikur á pianó
verk eftir Albeniz og
Granados.
21.30 „Krá á Jótlandi”, smá-
saga eftir Kund Sönderby
Anna Maria Þórisdóttir
þýddi. Knútur R-. Magnús-
son les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson Höfundur les
(3)
22.35 Krossgötur Tónlistar-
þáttur i umsjá Jóhönnu
Birgisdóttur og Björns
Birgissonar.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Blaðburðar-
börn
óskast í eftirtalin
hverfi:
Kirkju teigur
Borgartún Skúlagötu fró
Rauðarústíg
Álfhólsveg frú 63
Og Heiðar
VISIR
Simi 86611
Hverfisgötu 44.