Tíminn - 27.10.1966, Blaðsíða 1
(
Eitt ár frá því Keflavíkurvegurinn var opnaður
þúsund bifreiðir
vegagjaldið
v
KJ—Reykjavík, miðvikud.
Fyrir einu ári síðan (26.
okt. 1965) var Keflavíkur-
vegurinn nýi opnaður fyrir
almenna umferð, í ausandi
rigningu og að fáum við-
stöddum. Á þessu eina ári
hafa í kringum 250 þúsund
greitt
bílar greitt vegagjaldið í
tollskýlinu við Straum, og
hafa þannig um hálf millj-
ón bíla farið fram og aftur
um veginn.
Samgöngumálaráðherra var
fyrstur til að greiða vegagjald
ið og aka eftir veginum þenn
an vetrarmorgun, og síðan hafa
allir þeir sem farjð hafa fram
hjá tollskýlinu við Straum
þurft að greiða sitt gjald. Ein
hver brögð munu hafa verið að
því að menn hafi reynt að
sleppa við að greiða gjaldið,
en verðirnir í skýlinu hafa kíki
við hlið sér að því er sagt er,
og geta þannig auðveldlega séð
númerin á sökudólgnum og
komið þeim til yfirvaldanna!
Sunnudaginn 18. september
fóru flestir bílar um veginn á
einni vakt. Þann dag var knatt
spyrnuleikur í Njarðvíkum, og
fóru alls HIO bílar suður frá
því um hádegi og fram til
klukkan sjö. Á páslcadag 10.
apríl s. 1. fóru líka mjög margir
bílar hjá skýlinu eða 1079 frá
því um hádegi og fram að
kvöldmat. Framliald á bls. 14.
Ollum hundum
var lógað
Ej-Reykjavík, miðvikudag.
Hundaveikin kom á dögunum
upp á Eyrarbakka, og var öllum
hundum þar, um 20 talsins, lógað,
að því er Jón Guðbrandsson, dýra
læknir tjáði blaðinu í kvöld.
Jón sagði, að flestir hundanna
'hefðu þegar tekið veikina, en ekki
væri enn vitað, hvaðan veikin
hefði borizt þangað.
Efeki hafði í fcvöM verið til-
kynnt um, að veiikin hafði gert
vart við sig á þessu svæði. ,
IBALTIKA
a Fréttabréf frá Baitika —
j^sjá bls. 8.
Bifreiðlr losnuðu um borð í finnsku leiguskipi:
19 SAAB bifreið-
ar illa laskaðar
SJ—Reykjavík, miSvikudag.
19 SAAB-bifreiðir um borð
í finnska leiguflutningaskip-
inu Keppo löskuðust meira og
minna í efri lest skipsins, þeg
ar skipið lenti í slæmu veðri á
siglingu hingað til lands. Um
borð í skipinu var meðal ann-
ars varnings 56 bifreiðir, 23
Fiat-bifreiðir, sem voru í neðri
lest og sluppu alveg við
skemmdir, 31 SAAB-bifreið,
en 19 þeirra skemmdust meira
ag minna og 2 Volvo-bifreiðir
en önnur þeirra Uskaðist.
Að svo stöddu er ekki hægt að
segja til um orsök þessa tilfinnan
lega tjóns, þar sem skipstjórinn á
finnska skipinu mætir fyrir sjó
dómi í dag, þar sem hann mun
skýra frá viðhorfi sínu varðandi
þennan atburð. Aftur á móti þvk-
ir þessi atburður gegna mestu
furðu hjá mönnum, sem þekkja til
lestunar á skipum, og höfðu þeir
við orð í samtali við fréttamann
Tímans að mjög slælega hlyti að
hafa verið gengið frá bílunum í
lestinni, og þeir vissu ekki til að
neitt líkt þessu hefði áður gerzt.
Fréttamaður Tímans skoðaði bíl
ana í Borgarskála Eimsikipafélags
íslands, en þangað voru þeir flutt
Framhald á bls. 14
Stjórn Erhards
biargað á síð-
ustu stundu!
NTB-Bonn, miðvikudag.
f dag tókst á síðustu,
stundu að bjarSa þýzku
stjórninni frá klofningi,
eftir að hún hafði setið á
fundi í nær 10 klukku-
stundir samfleytt, á sama
tíma og fjárlagafrumvarp
ið var rætt í þinginu. Náð-
ist loks samkomulag milli
stjórnarflokkanna um frum
varpið, en fyrr um daginn
voru allar horfur á, að það
ylli algerum vinaslitum inn
an stjórnarinnar.
Má segja, að stjórnin hafi
Framhald á bls. 14.
Tvær bifreiðanna sem löskuðust í leiguskipinu.
Tímamynd-GE.
Johnson fór til Vietnam
NTB-Saigon, þriðjudag.
Lyndon B. Johnson, Banda-
ríkjaforseta var tekið með kostum
og kynjum, er hann í dag, kom
í óvænta heimsókn til herstöðv
arínnar Cam-Ranh, sem er um 300
kílómetra norð-austur af Saigon.
Gífurlega mikil leynd hvíldi yf-
ir ferðalagi forsetans og allar til-
tækar varúðarráðstafanir voru
gerðar til að koma i veg fyrir
hugsanlegt samsæri geSn forset-
anum.
Forsetinn hafði um tveggja
og hálfrar klukkustundar viðdvöl
í herstöðinni og fögnuðu banda'
rískir hermenn og bandamenn
þeirra forsetanum innilgea.
Washington-fréttaritari Reut
ers, John Heggernaf, var einn
þeirra fáu blaðamanna, sem valdir
voru til þess að fylgja forsetanum
í herbúðirnar, en Heggernaf er
meðal blaðamanna, sem eru í föru
neyti forsetans á Asíuferðalaginu.
Blaðamenn fengu hins vegar ekki
leyfi til þess að senda frá sér
Ineinar fréttir fyrr en forsetinn
í för með forsetanum í dag voru I
m.a. Dean Rusk, utanríkisráð- \
var kominn aftur til Man-! herra og William F- Bundy, að-
ila. Enda þótt grunur hafi leikið! stoðarutanríkisráðherra.
á því að forsetinn færi til S-Viet- j Forsetinn ók í jeppa ásamt yfir
nam hafði ákvörðunarstaður hans j manni bandarísku hersveitanna
ekki verið gefinn upp fyrirfram. í S-Vietnam, William Westmore
land, um herstöðina og á her-
sjúkrahúsinu sæmdi hann 15
særða hermenn „lárviðarhjartanu“.
Hann skrifaði nafn sitt á gips-
umbúðir, peningaseðil og annað
það, sem að honum var rétt.
Framhald á bls. 14
Eldur um borð í bandarísku flugvélamóöurskipi:
45 LETU LIFID
NTB-Saigon, miðvikudag.
Að minnsta kosti 45 liðsfor
ingjar og sjóliðar fórust í
dag í ógurlegum cldsvoða um
borð í bandaríska beitiskip-
inu, Oriskany, þar sem það lá
við festar á Zonkin-flóa. Meira
en 16 menn að auki eru þungt
haldnir af brunasárum.
Aðalbruninn stóð í þrjár
klukkustundir og stóðu þá
fimm þilför í björtu báli. Verið
var að undirbúa nýjar loftárás
ir á Norður-Vietnam, er eldur
inn brauzt út.
EMurinn barst óðfluga út, og
á meðan reyndu björgunar-
menn í dauðans ofboði að
hjálpa innilokuðum liðsfor-
ingjum og hermönnum út úr
vistarverum þeirra.
Mikil barátta var háð til
þess að hindra, að eldurinn
kæmist í sprengjur og eldflaug
ar um borð og tókst að afstýra
því. Hins vegar brunnu tvær
Framhald á bls. 14