Vísir - 18.10.1975, Síða 3
VtSIR. Laugardagur 18. október 1975.
3
BSRB tekur ákveðna stefnu
í verkfallsréttarmálinu
Fulltrúar samtakanna segja sig úr kjaradóm og kjaranefnd
Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja stefnir nú hraðbyri aft
þvi að afla sér verkfallsréttar. A
fundi sfnum á fimmtudag sam-
þykkti stjórn félagsins, samn-
inganefnd og verkfallsréttar-
nefnd, ýmsar ályktanir, sem
allar stefna i sömu átt, aft afla
samtökunum, verkfallsréttar.
Fundurinn ályktaði meðal
annars, að tilnefndir fulltrúar
BSRB i kjaradómi og kjara-
nefnd segi sig nú þegar úr þess-
um lögskipuðu gerðardómum. 1
þessari ákvörðun felst, að BSRB
ætlar ekki að una afgreiðsiu
þessara gerðardóma framveg-
is.
Stofnun verkfalls-
nelndar liSHIi.
bá beindi fundurinn þvi til
stjórnar BSRB, að skipuð verði
verkfallsnefnd bandalagsins nú
þegar. Hlutverk hennar verður
að undirbúa og stjórna eftir
nánari ákvörðun samninga-
nefndar og stjórn'ar BSRB að-
gerðum til að knýja fram kröfur
samtakanna. Nefndin á einnig
aö sjá um upplýsingastarf,
kynningu og öflun stuðnings við
málið.
Krafa um verk-
lallsrétt
BSRB hefur lagt fram þá
kröfu við rikisstjórnina, að
bandalaginu og aðildarfólögum
þess verði veittur verkfallsrétt-
ur þegar á þessu ári. bannig
verði gerðardómur afnuminn
sem lokastig i kjaradeilu opin-
berra starfsmanna. Mál þetta
var einnig sett fram i kröfugerð
og megintillögum BSRB i yfir-
standandi samningsgerö, bæöi
við rikið og bæjarstjórnir.
Krafan um verkfalls-
rétt sniögengin.
Á samningafundi 15. þessa
mánaðar var krafan um verk-
fallsrétt sniðgengin af samn-
inganefnd rikisins jafnframt þvi
sem kröfum um leiðréttingu
iaunakjara var svarað með al-
gjörlega óviðunandi launa-
tilboði.
BSRB telur þvi augljóst að
rikisvaldið áformi ekki að bæta
úr réttleysi samtakanna i samn-
ingamálum, og leitist viö i skjóli
þess að viðhalda þvi misrétti i
launamálum, sem þegar sé orð-
ið milli opinberra starfsmanna
og annarra.
Kjaramálin ekki
fyrir kjaradóm.
BSRB segir, að i skoðana-
könnun á fjölsóttum fundum á
vegum samtakanna um land
allt hafi sá vilji komið ótvirætt
fram, að kjaramál opinberra
verði ekki lögð fyrir kjaradóm.
Segir BSRB dóminn margoft
hafa brugöist þvi hlutverki sinu,
að vera hlutlaus úrskurðaraöili i
kjaradeilum.
BSRB vill áfram leitast við,
að ná samningum viö rikis-
stjórnina um kjaramál og af-
greiðslu verkfallsréttarmálsins.
BSRB reiöubúiö
að gera ábyrga
kjarasamninga
Samtökin segjast margoft
hafa sýnt og sannaö aö þau séu
reiðubúin að gera ábyrga kjara-
samninga. Megi i þvi sambandi
minna á samninga BSRB i
desember 1973, sem markað
hafi þá stefnu i kjaramálum, er
illu heiili var kvikað frá af öðr-
um.
Bandlagiðkveðst reiðubúið að
takast á við verðbólguvandann i
samvinnu við rikisvaldið og
önnur hagsmunasamtök. —AG—
BORÐUM 110 TIL
120 TONN AF
SMJÖRI Á MÁNUÐI
tslendingar borða 110 til 120
tonn af smjöri á hverjum mán-
uði. — Um siðustu mánaðamót
voru til i landinu 496 lestir og
höfðu birgðir aukist um 100 tonn
frá því i júli. — bessi birgða-
aukning kemur þó vart að sök
þar eð smjörframleiðsla yfir
vetrarmánuðina er ekki meiri
en 50 tonn á mánuði.
bar eð gert er ráð fyrir að
flytja verulegt magn af rjóma
frá Norðurlandi, dregst smjör-
framleiðsla þar saman.Til að
koma i veg fyrir skort á smjöri
verður dregið úr framleiðslu
feitra osta i vetur. bá verður lit-
ill útflutningur á ostum.
Veruleg aukning hefur orðiö á
sölu osta hér innanlands, 10 til
12% aukning á mjólkurostum og
60% aukning á bræddum ostum.
Hjá Sláturfélagi Suðurlands
á Selfossi hefur verið tekin
upp bónusgreiðsla til allra er
starfa að sauðfjárslátrun.
Bónuskerfið er þannig upp
byggt að það hvetur til auk-
inna afkasta og betri meðferð-
ar á kjííti hjá starfsmönnum.
Arangurinn hefur heldur ekki
látið á sér standa.
1 ár er gert ráð fyrir mun
meiri slátrun en í fyrra, og er
þegar búið að slátra um 97
þúsund fjár. Meðalvigt dilka
virðist vera svipuð og i fyrra.
—EKG
BONUS
FYRIR
SLÁTRUN
íslendingar
gáfu hamar
isiendingar hafa gefið Sain-
einuðu þjóðunum nýjan fundar-
hamar. ilamarinn er gerður
eftir frummynd Asmundar
Sveinssonar, myndhöggvara, og
hefur hann gefið verkinu heitið:
„Bæn vikingsins fyrir friði”.
Jón Benediktsson, myndhögg-
vari, skar út þetta eintak af
hamrinum.
A myndinni sést Einar
Agústsson, utanrikisráðherra,
afhenda Gaston Tliorn frá
Luxemborg, forseta 30. alls-
herjarþings Sameinuðu þjóð-
anna, nýja fundarhamarinn.
Minnisvarði
afhjúpaður í
Bolungarvík
i tilcfni kvennaárs verður
afhjúpaður minnisvarði um
fyrstu iandnámskonuna i Bol-
ungarvik, buriði sundafylli.
Athöfnin hefst kl. 4. Hildur
Einarsdóttir afhjúpar minnis-
varðann og Benedikt b. Bene-
diktsson flytur ræðu. Gefandi
minnisvarðans er Sjálfstæðis-
kvennafélag staöarins sem
einmitt ber nafn fyrstu land-
námskonunnar.
Um kvöldið verður i Félags-
heimilinu spilavist og
leikþáttur fluttur og þar flytur
Sigurlaug Bjarnadóttir
alþingismaður ávarp.
EKG