Vísir - 18.10.1975, Blaðsíða 11

Vísir - 18.10.1975, Blaðsíða 11
Brœðurnir síga á Böðvar og Kristján í BDB Að fimm umferðum loknum i tvimenningskeppni Bridge- deildar breiðfirðinga hefur keppni jafnast töluvert, þótt Böðvar og Kristján haldi ennþá forystunni. Röð og stig efstu para er þessi: Mikiö hefur verið skrifað um öryggisspiiamennsku f bridge og I sfðustu umferð hjá Bridge- féiagi Reykjavikur kom fyrir táknrænt dæmi. Það er hins vegar svo i tvi- menningskeppni, að löngunin i yfirslagi giepur oft fyrir sagn- hafa og öryggisspilamennskan gleymist eöa er leidd hjá sér. Staöan var a-v á hættu og norður gaf. 4 A-D-6-5 V A-D-8-6-3 ♦ D *A-5-2 4 G-9-8-4 410-7-3 VG-7-2 VK ♦ A-K-6-3 ♦G-10-9-8-4-2 410-2 4K-9-3 4K-2 V10-9-4-3 ♦ 7-5 4D-G-8-7-4 Spilið var spilað á sex borðum og á öllum varð norður sagnhafi i f jórum hjörtum. Þetta er góður lokasamningur og á alltaf að vinnast. 1 þetta sinn brá þó svo við, að annað hvort unnust fimm eöa fjórir töpuðust. Tveir sagnhafar tóku öryggis- spilamennsku i trompinu, þ.e. tóku fyrst á ásinn og unnu þar með fimm. Hinir fjórir spiluðu upp á yfirslaginn á þessa leið. Fyrst var hjartadrottningu svínað og þegar það brást tóku þeir allir ásinn á eftir og gáfu tvo slagi á tromp. Það er i sjálfu sér ekkert við þvi að segja i tvi- menningskeppni að svina drottningunni, en þá verða menn að vera sjálfum sér sam- kvæmir og svina tiunni á eftir. Þó er einn galli á þessari rök- semdafærslu. Sá sem hefur svinað drottningunni og gefið á kónginn, sér að hann fær einum slag minna en hinir ef kóngur- inn er einspil og þvi tekur hann ásinn á eftir i örvæntingu. 1. Böðvar Guðmundsson — Kristján Andrésson 1004 2. Gisli Stefánsson — Jón Stefánsson 983 3. Magnús Björnsson og Bene- dikt Björnsson 973 4. Oliver Kristófersson — Ólaf- ur Ingimundarson 964 5. Björn Gíslason — Ólafur Guttormsson 913 6. Guðbjörn Helgason — Böðvar Guðmundsson 911 7. Magnús Halldórsson — Magnús Oddsson 897 8. Guðlaugur Kristinsson — Óskar Þráinsson 886 9. Gissur Guðmundsson — Jón Þorleifsson 880 10. Þorvaldur Valdimarsson — Jósef Sigurðsson 869 Sveitakeppni félagsins hefst fimmtudaginn 23. október i Hreyfilshúsinu kl. 20. Innritun er I fullum gangi, allir velkomn- ir meðan húsrúm leyfir, sem nú er vel riflegt. Það er ekki alltaf hœgt að fara eftir bókinni. Það eru allt of margar bœkur! Umsjón : Stefán Guó.johnsen ♦ CO ♦ ♦$ ♦ ♦ ♦ ♦ $♦ ♦$ BJÖRN OG ÞÓRÐUR SIGURVEGARAR HJÁ TBK Orslit i tvimenningskeppni Tafl- og bridgeklúbbsins urðu þau, að Björn og Þórður sigruðu eftir að hafa leitt alla keppnina. Röð og stig ets'tú para var pannig: 1. Björn Kristjánsson — Þórður Eliasson 898 2. Helgi Einarsson — Sigurjón Tryggvason 881 3.. Hilmar Ólafsson — Ingólfur Böðvarsson 872 4. Gestur Jónsson — Gisli Steingrimsson 862 5. Gisli Viglundsson — Þórarinn Arnason 851 6. Bragi Jónsson — Dagbjartur Grimsson 831 7. Bragi Bjarnason — Guðmundur Aronsson 830 8. Bernharður Guðmundsson — Július Guðmundsson 825 9. Baldur Asgeirsson — Bjarni Jónsson 824 10. Kristján Jónasson — Þórhallur Þorsteinsson 822 Ungir menn á hœlum Selfyssinga í BR Nú er aðeins ein umferð eftir i meistaratvimenningskeppni Bridgefélag Reykjavikur og lik- legt að baráttan standi milli tveggja efstu paranna um meistaratitilinn. Sigfús og Vil- hjálmur eru enn efstir en ungt og upprennandi par á hælum þeirra, Jón og Guðmundur. Röð ogstig efstu para er nú þannig: 1. Sigfús Þórðarson og Vil- hjálmur Pálsson 940 2. Jón Baldursson og Guð- mundur Arnarson 929 3. Hjalti Eliasson og örn Arn- þórsson 914 4. Guðmundur Pétursson og Karl Sigurhjartarson 913 5. Daniel Gunnarsson og Stein- berg Rikarðsson 910 6. Hörður Arnþórsson og Þórarinn Sigþórsson 889 7. Einar Þorfinnsson og Páll Bergsson 883 8. Halla Bergþórsdóttir og Kristjana Steingrimsdóttir 881 9. Sigurður Sverrisson og Sig- tryggur Sigurðsson 874 10. Guðlaugur R. Jóhannsson og Ásmundur Pálsson 871 Úrslitaumferðin verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld i Domus Medica kl. 20. FLUGAN Hrafn Gunnlaugsson skrifar Um daginn varð mér það á að taka tii i skrifborðsskúffunni minni. Þá komu upp i hendurnar á mér nokkur gömul skóiablöö frá sokkabandsárum minum i Mennta- skólanum i Reykjavik. Ég fyiitist ein- hverri dularfullri nosta giu (ljúfsárum trega) og nokkrar ljóðiinur hrutu úr penn- anum. En áður en viö hefjum lesturinn þá minnumst orba spekingsins: Allt sem er gott og skemmtilegt er annaðhvort óhollt eða dónaiegt! Manstu leigubilinn sem ætlaði aldrei að koma (túberað hár þitt tindraði i nóttinni) og beygjuna kröppu þegar ég kastaðist yfir þig meö rennblautan koss sem klesstist i hárlakkið og hvernig þú streittist á móti Þessi ár •þegar vinirnir stóðu á haus belgfullir af skapmælum um bækur sem við höfðum lesið fyrir aftan öftustu siöu og skáldin sem þjáðust skelfilega vegna vonsku heimsins gengu um álút með margvafða trefla um hálsinn (hötuðu úrilla kennara) Ég skulda þér vist fáein ástarorð frá árunum þegar Bitlarnir komust i tisku og við fórum á fylliri á Borginni. Ég hitti þig á barnum þar sem brosmildir hommar buðu upp á sjúss i von um elskhuga (sem hlupu hlæjandi burt þegar glasið var búið) og yfirstéttar rónar rifandi kjaft við hvern sem var kássuðust upp á mann móðgaðir yfir þvi að vera ekki einir i heiminum og einstaka uppdöguð mella með skaðbrunnar tennur skalf af hlátri eða grét. A barnum (við b(eði i MR) bauð ég þér i fyrsta dansinn rigmontinn með misskilin spakmæli á vör og vinkonur þinar eitthvað að þvælast fyrir vildu fá þig i parti. NOSTAGIA þegar við komum heim og ég ætlaði að skoða þig með fingrunum (breiddir mæðusvip yfir brosin og sagðir: látt’ ekki svona) en að lokum fékk dýnan fáeina blóðdropa að drekka og kannski eitt tvö tár. Og manstu þegar við æfðum atlotin stóru i framhaldssögum og reyfurum þar sem hetjurnar eru nauðgarar eða hálfgerðir guðir og konurnar umhverfast á einni nóttu úr englurrri blóðþyrstar nornir þar sem ástin er óræð og draumkennd vafin dulúðgri móðu handa við óléttu á divan úti i horni. reyktu ofboðslega og dr\jkku sigiiauða undir borðum yrkjandi i andaslitrum um lifslygi borgarans sem væri sko ekkert nema uppskrúfað fals og húsmæður (biðandi farandriddara) fastar i nýbyggðum blokkum grotnandi á gólfteppinu og erlendar flugvélar sem drógu fjallkonuna á tálar. Þessi ár þegar allt var svo auðvelt og veruleikinn vingjarnlegur draumur og dauðinn alls ekki til og við höfðum yfir setningar eftir helstu spekinga heimsins og vorum þeir sjálfir. Þegar haustið veitti skjól: að finna aftur hópinn og fasta liði eins og venjulega. Þessi ár sem ég átti þig án þess að taka eftir þvi þar til i siðústu veislunni þegar veifað var hvitum kollum: þessu var lokið. Skelfingu lostin gripum við i hvort annað giftumst baki brotnu bjuggum til heimili; á einu augnabliki tvistraðist týndist út I buskann bláminn og fjarlægðin góöa. En til hvers að grufla 'yfir hálfgleymdum orðum hjólið snýst ekki til baka — og þó! á stundum finnst mér ég kannast við ókunnugt andlit á götu i strætó og allt i einu rúllast upp atvik i ruglingslegri kvikmynd og maður reynir að muna: jú það er hún sem hann Nóri fiflaði eða var það Doddi eða önni og nú er hún gift manni að Norðan. Og hann!....nei... Ég sit hér einn yfir kaffibolla klukkan bráðum þrjú að nóttu og mynd þin óljós en nálæg og þetta kvæði orðið allt annað en til var ætlast og ég skulda þér vist enn þá nokkur ástarorð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.