Vísir - 20.11.1975, Qupperneq 6
6
REUTER
AP/NTB+
Fimmtudagur 20. nóvember 1975. vism
UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND ÍMORGUN
Þingskýrslan
ráð CIA lögð
um bana-
fram í dag
Fyrsta opinbera skýrsl-
an um hvernig CIA, leyni-
þjónusta Bandarikjanna,
ráðgerði að taka af lífi
ýmsa erlenda þjóðhöfð-
ingja verður lögð fram í
dag væntanlega.
Ýmsir embættismenn Banda-
rikjastjórnar og Ford forseti
sjálfur hafa lagst gegn því að
þessi 500 blaðsiðna skýrsla
rannsóknarnefndar öldunga-
deildar þingsins verði lögð fram.
— Hafa þeir sagt, að það mundi
spilla öryggi Bandarikjanna.
En það er almennt búist við þvi
að skýrslan verði rokna löðr-
ungur á leyniþjónustuna sem er
þó að kikna undan ýmsum fyrri
uppljóstrunum um starfsemi
hennar. — Þar hefur komið fram
að hún hefur verið duglitil við
upplýsingaöflun þegar hæst hefur
hóað (eins og i Yom Kippur-strið-
inu i fsrael), hún hefur hunsað
fyrirmæli forsetans, æðstráðanda
Bandarikjanna, og hún hefur
troðið á mannréttindum þúsunda
bandariskra borgara með sim-
hlerunum og hnýsni i einkabréf.
Þegar sýnt var að ekki yrði við
þingnefndina tjónkað og hún
myndi birta skýrsluna hvað sem
leið andmælum Hvita hússins,
var reynt á siðustu stundu að fá
máð úr skýrslunni nöfn erindreka
CIA, sem bendlaðir væru við
bruggun banaráða leyniþjónust-
unnar gegn erlendum þjóðhöfð-
ingjum. — Frank Church, for-
maður nefndarinnar, sagði að
þessi tilmæli hefur verið tekin til
greina varðandi nokkra erind-
reka CIA, en nöfn annarra yrðu
birt.
William Colby, yfirmaður CIA,
hefur sagt að lifi sumra þessara
manna yrði stefnt i voða með þvi
að nafngreina þá.
A blaðamannafundi var Church
þingmaður spurður að þvi hvaða
lærdóm mætti draga af nýafstað-
inni niu mánaða rannsókn á starf-
semi CIA. Hann sagði, að setja
þyrfti á laggirnar sérstakt ráð
eða nefnd sem fylgdist gaumgæfi-
lega með störfum leyniþjónust-
unnar.
t skýrslunni má búast við að
finna nákvæmar lýsingar á þvi
hvernig CIA i samráði við glæpa-
menn haföi á prjónunum áætlanir
um að láta myrða menn á borð
við Fidel Castro, leiðtoga Kúbu,
Patrice Lumumba leiðtoga
Kóngó, eða Rafael Trujillo, ein-
ræðisherra i dóminikanska lýð-
veldinu.
Reagan
varpar
hansk-
anum
í dag
Ronald Reagan, fyrr-
um rikisstjóri Kali-
forniu, þykir liklegúr til
þess að varpa hanskan-
um í dag til einvigisá-
skorunar á Ford forseta
um útnefningu repúblik-
anaflokksins i forseta-
framboð næsta árs.
Hann átti i dag að flytja ræðu i
Blaðamannafélagi Bandarikj-
anna, og lá i loftinu i morgun að
hann mundi lýsa þar yfir. að hann
mundi keppa við Ford um að
hljóta útnefninguna.
Um leið mun hann koma fram i
dag i Flórida og New Hampshire,
en i þeim rikjum eru forkosning-
arnar haldnar snemma. Fyrstu
úrslit forkosninganna þykja hvað
mikilvægust vegna þess að þau
liggja nógu snemma fyrir til þess
að hafa áhrif á forkosningar i öðr-
um fylkjum.
Portúgals-
stjórn lagði
niður störf
Portúgalsstjórn lýsti því yfir i
morgun, að hún legði niður störf i
bili þvi að ástandið innan hersins
gerði lienni óklcyft að sinna
skyldum sinum.
Það var Jose Pinheiro de Aze-
vedo, forsætisráðherra sem
kunngerði þessi tiðindi i morgun,
og þykja þau ganga næst hreinni
og beinni afsögn stjórnarinnar.
I tilkynningunni sagði, að
stjórnin mundi sitja i aðgerðar-
leysinu þar til Francisco da Costa
Gomes forseti gæti tryggt henni
nauðsynleg skilyrði til að starfa
eðlilega.
„Sjötta rikisstjórn lýðveldisins
var mynduð i trausti þess, að her-
inn mundi tryggja henni þau skil-
yrði sem nauðsyn eru eðlilegum
starfshöfnum rikisstjórnar. — Sú
hefur þó ekki orðið raunin á,”
sagði i yfirlýsingunni.
Stjórn Azevedo hefur átt við
þann vanda að glima að koma
aftur á aga innan raða hersins. —
En viða f landinu hafa herflokkar
haftað engu fyrirmæli yfirmanna
sinna og ráða sér algerlega sjálf-
ir.
Vegur tit
verötryggingar
Gefinn hefur veriö út nýr flokkur happdrættis-
skuldabréfa ríkissjóös, G flokkur, aö fjárhæö
300 milljónir króna. Skal fé því,sem inn kemur
fyrir sölu bréfanna, varió til varanlegrar
vegageröar i landinu.
Happdrættisskuldabréf ríkissjóös eru endur-
greidd aö 10 árum liðnum meö verðbótum í
hlutfalli viö hækkun framfærsluvísitölu.
Auk þess gildir hvert bréf sem happdrættismiði,
sem aldrei þarf aö endurnýja í 10 ár.
Á hverju ári verður dregið um 942 vinninga aö
fjárhæð 30 milljónir króna, og verður í fyrsta
skipti dregiö 23. janúar n.k.
Vinningar á hverju ári skiptast sem hér segir:
6 vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 6.000.000
6 vinningar á kr. 500.000 = kr. 3.000.000
130 vinningar á kr. 100.000 = kr. 13.000.000
800 vinningar á kr. 10.000 = kr. 8.000.000
Happdrættisskuldabréfin eru framtalsfrjáls og
vinningar, sem á þau falla.skattfrjálsir.
Happdrættisskuldabréf rikissjóðs eru til sölu nú
Þau fást í bönkum og sparisjóðum um land allt og kosta 2000 krónur.
m SEÐLABANKI ISLANDS