Vísir - 20.11.1975, Qupperneq 7
m
VISIR Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
LOND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLOND I MORGUN
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Franco einvaldur
andaðist í nótt
Franco hershöfðingi og eiginkona hans, Carmen, á einum af mörg-
um tyllidögum 40 óra valdaferils cinvaldsins.
Francisco Franco
hershöfðingi, einvaldur
Spánar i nær fjóra ára-
tugi, lézt i nótt 82 ára að
aldri, og skilur þjóð
sina eftir i mikilli
óvissu um pólitiska
framtíð sina.
Eftir að hershöfðing-
inn fékk hjartaslag 21.
október hefur hann háð
sitt dauðastrið af sama
garpskapnum og færði
honum sigur i borgara-
styrjöldinni á Spáni
1936-’39 — en allt kom
fyrir ekki.
Langt helstríð
Hann gekkst undir þrjá meiri-
háttar magauppskurði á ellefu
dögum og lifði þá af, en tapaði
lokaorustunni þegar að honum
var þrengt á mörgum vigstöðV-
um i senn, maginn, hjartað,
nýrun og lungun létu undan
siga.
Læknarnir gáfu i gær upp alla
vön um að bjarga lifi hans. Hon-
um hafði þá hrakað mjög, og i
tilkynningu læknanna i gær var
sagt, að þeir gætu aðeins deyft
sársaukann.
Helstu fyrirmenn stjórnarinn-
ar, Carlos Arias Navarro for-
sætisráðherra og Alejandro
Rodrigues de Valcarcel forseti
þingsins, hröðuðu för sinni á
sjúkrahúsið siðdegis i gær til að
kveðja leiðtoga sinn.
Del Valcarcel stýrir þriggja
manna rikisráðinu sem fara
mun með völdin, þar til Juan
Carlos prins hefur svarið kon-
ungseiðinn. Það mun að likind-
um verða um helgina.
Juan Carlos tók við stjórnar-
taumunum i veikindaforföllum
Francos þann 30. október, en þá
vofði yfir hætta á styrjöld við
Marokkó vegna deilunnar um
spænsku Sahara.
40 óra
friðartímabil
Fráfall einvaldsins kemur
löndum hans ekki á óvart. Hann
hefur verið haldinn mörgum
sjúkdómum sem hver einn út af
fyrir sig hefði getað gengið af
helmingi yngri manni dauðum.
Þó höfðu vaknað vonir fyrir tiu
dögum, þegar einn lækna hers-
höfðingjans sagði að möguleiki
væri til þess að Franco ætti eftir
að lifa marga mánuði enn.
Að visu litu stjórnarandstæð-
ingar þá á slikar yfirlýsingar
sem tilraunir öfgamann til
hægri til að hindra prinsinn,
sonarson siðasta konungs Spán-
ar (sem hvarf frá Spáni i útlegð
fyrir 44 árum), i að komast til
valda.
Franco hershöfðingi hefur
stjórnað Spáni með járnglófum
siðan 1939. Er þetta lengsta
timabil friðar og jafnvægis sem
spánska þjóðin hefur notið um
aldabil.
Carlos
óþekkt stœrð
Hvað nú tekur við, er allt i
óvissu. Juan Carlos prins, arf-
taki Francos, hefur ekki fengið
tækifæri til þess að láta að sér
kveða við pólitiskar ákvarðanir
i landinu þótt hann hafi eitt sinn
áður sest i leiðtogastólinn i veik-
indaforföllum Francos. — Geta
menn þvi ekki gert sér grein
fyrir hvernig honum munu far-
ast stjórnarafskiptin úr hendi.
Þó hefur Juan Carlos sýnt að
hann hefur mikinn hug á að láta
að sér kveða. I deilunni við
Marokkó um spænsku Sahara
tók hann sér ferð á hendur til
Afriku og heimsótti spænska
varnarliðið þar meðan óveðurs-
blikurnar voru hvað mestar á
lofti þegar 350.000 manna
göngulið Hassans konungs
stefndi inn á spænska yfirráða-
svæðið.
Þeirri deilu lauk þó friðsam-
lega með samningaviðræðum i
siðustu viku þar sem Spánn
féllst á að láta landssvæðið af
hendi við Marokko og Mauritan-
iu. — Hafði þá um hrið staðið til
að veita þessari fyrrverandi ný-
lendu Spánar sjálfstæði.
Stjórnarandstöðuhópar á
Spáni binda nokkrar vonir við
valdatöku prinsins. Vænta þeir
þess', að hann reynist frjálslynd-
ari en Franco og nú verði leyfð
starfsemi ýmissa þeirra flokka
sem bannaðir hafa verið frá i
borgarasty rjöldinni.
Juan Carlos prins, arftaki Francos, við liðskönnun hjá varnarliðinu
I spænsku Sahara þegar sem ófriðlegast horfði.
PÓLITÍKUSINN
Þannig litur teiknarinn, Lurie, á brölt .Hassans Marokkokonungs i spænsku Sahara — eins og veifað væri dulu fyrir spænska bola
sem veitti honum ráðningu sem á eftir að koma niður á pólitiskri framtið konungs.