Vísir - 20.11.1975, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 20. nóvember 1975. VISIR
12
VÍSIR
F’immtudagur 20.nóvember 1975.
13
Englendingar úr leik
í Evrópukeppninni!
— Nóðu aðeins jafntefli við Portúgal og nú standa tékkar
best að vígi í riðlinum
Enska landsliöiö i knattspyrnu
missti af lestinni i gærkvöldi i
Evrópukeppni landsliöa þegar
þvi tókst aðeins aö ná jafntefii viö
Woíesj
í úrsliti
1 fyrsta sinn i sögu Evrópu-
keppni landsliöa náði Wales að
komast i 8-liða úrslitin. Það
gerðist i Wrexham i gærkvöldi
er Wales lék við Austurriki i
öðrum riðli keppninnar og
sigraði 1:0.
Wales nægði jafntefli i leikn-
um til að komast áfram, og
hinn 54 ára gamli Arfon Griff-
ith sá uin að Wales fengi bæði
stigiu með þvi að skora eina
mark leiksins þegar nokkuð
Ívar Iiðið á siðari hálfleikinn.
Austurriska liðið varð fyrir
þvi áfalli snemma í leiknum
að missa fyrirliða sinn —
Wcrner Kreiss — með brotinn
ökla, og náði sér aldrei al-
mennilega á strik eftir það.
Lokastaðan i 2. riðli
Evrópukeppninnar varð
þessi:
portúgali i Portúgal. Tékkar
standa nú með pálmann i höndun-
um. Þeir eiga eftir að leika við
veikasta liðið i riðlinum, Kýpur,
og ættu ekki að vcrða i vandræð-
um með að sigra i þeim leik og
komast áfram.
Portúgalska liðið hafði i fullu
tré við enska liðið sem var slakt
og á 15. minútu leiksins skoraði
Rui Rodrigues sem er 32 ára, fyr-
ir Portúgali með glæsilegu skoti
beint úr aukaspyrnu af 25 m færi.
Englendingum tókst að jafna
rétt i lok fyrri hálfleiks — mark
sem hefði átt að rifa liðið upp.
Mick Cannon var þá felldur rétt
utan vitateigs, tók aukaspyrnuna
sjálfur, skot hans lenti i varnar-
veggnum og i markið. En mark
Cannon virtist litil áhrif hafa en i
lokin gerði Don Revie örvænting-
arfulla tilraun til að lifga upp á
leik enska liðsins með þvi að setja
þá Allan Clark og Dave Thomas
inn á i stað þeirra Malcolm Mac-
donald og Paul Madeley, en þeir
breyttu engu.
Enska liðið var þannig skipað:
Clemente, Whitworth, Watson,
Todd, Beattie, Francis, Madeley,
Brookirig, Channon, Macdonald
og Keegan.
Staðan i fyrsta riðlinuin er nú
þessi:
England 6 3 2 1 1 11:3 8
Tékkóslóv. 5 3 1 1 12:5 ,7
Portúgal 5.131 4:7 5
Kýpur 4 0 0 4 0:12 0
Wales
Ungverjal.
Austurr.
Lúxemb.
6 5 0 1 14:4 10
6 3 12 15:8 7
6 3 1 2 11:7 7
6 0 0 6 7:28 0
—klp—
KR átti í miklu
basli með Fylki
Tveir leikir fóru fram i 2. deild i
íslandsmótinu i handknattleik i
gærkvöldi, báðir i Laugardals-
höllinni. Ekki urðu þar nein óvænt
úrslit, en slök frammistaða KR
kom þó á óvart — og átti vestur-
bæjarliðið i miklum erfiðleikum
með Fylki. Þá léku ÍR og Kefla-
vik og lauk leiknum með yfir-
burðasigri ÍR, 35:13 og er grcini-
legt á öllum sólarmerkjum að ÍR-
ÞÚ SÉRÐ ÞAÐ í HENDI ÞÉR....
ingar eru nú með sterkasta liðið i
2. deild og ættu ekki að verða i
vandræðum með að eudurheimta
sæti sitt i 1. deild.
Það kom glögglega i ljós i leik
KR og Fylkis að KR-ingar van-
mátu andstæðinga sina meira en
góðu hófu gegndi og það hafði
næstum orðið þeim að falli. Það
var ekki fyrr en uppúr miðjum
siðari hálfleik — þegar fylkis-
menn voru einu marki yfir — að
KR-ingar tóku sig til og sigruðu i
leiknum með þriggja marka mun
19:16.
Staðan i 2. deild eftir leikina i
gær er þessi:
ÍR—ÍBK
KR—Fylkir
ÍR
KA
KR
Leiknir
Þór
Fylkir
Kcflavik
Breiðablik
35:13
19:16
4 4 0 0 104:57
5 4 0 1
4 3 0 1
4 2 0 2
108:91
93:75
84:87
5 1 0 4 108:114
3 1 0 2 44:53
4 10 3
3 0 0 3
68:90
37:79
Næstu leikir i 2. deild verða á
sunnudaginn. Þá leika i Njarðvik-
um Keflavik og Leiknir og i Laug-
ardalshöllinni 1R og KR
Tap hjú
Dankersen
„Maður hefur oft lent i furðu-
legum dómurum um dagana — en
þessir slógu öllu við,” sagði Ólaf-
ur H. Jónsson, er við töluðum við
hann i morgun til að forvitnast
uin leik Dankersen og THW Kiel i
þýsku deildarkeppninni i hand-
knattleik i gærkvöldi.
„Við töpuðum leiknum 12:8
eftir að staðan i hálfleik hafði
verið 4:4. Ef dómararnir hefðu
verið eins og venjulegir dómarar
hefðum við átt að vinna meö yfir-
burðum, en þeir voru það ekki.
Hvað eftir annað vorum við
komnir i dauðafæri á linunni eða i
hraðaupphlaupum, og brotið á
okkur — en það eina sem dæmt
var var i mesta lagi aukakast.
Það voru yfir sjö þúsund áhorf-
endur i húsinu, og þeir höfðu
mikil áhrif á dómarana með köll-
um og látum.
Okkur Axel gekk sæmilega i
þessuin leik. Ég skoraði 4 af þess-
um 8 mörkum og Axel skoraði 1,
og hin þrjú skiptust á milli
þriggja manna.” —klp—
Það er ekkert litið sem gcngur á þegar Hansi Schmidt .lieimsækir” varnarmennina, eíns og sjá má á þessari
mynd sem tekin var I leik VfL Gummersbach og Granollers frá Spáni i Evrópukcppninni i fyrra. Þar sigr-
aði Gummersbach 25:14 og skoraði Hansi bróðurpartinn af inörkunum enda heldur maðurinn á boltanum eins og á
litlum tennisbolta.
RÁÐA VÍKINGAR VIÐ
RÚMENSKA RISANN?
Hansi Schmidt er þekktasti leikmaður Gummersbach — tröll
að vexti og hefur verið markahœsti leikmaðurinn í
Þýskalandi sex ér í röð _____
Hansi Sclnnidt er vafalaust fræg-
asti leikmaöur vestur-þýsfca hand-
knattleiksliðsins Gummersbach
sent væntanlegt er Itingað til lands-
ins á morgun og leikur gegn Vikingi
i Evrópukeppni meistaraliða I
Laugardalshöllinni á laugardag-
inn. Hansi er tröll að burðum og
vexti, hann er yfir 1.90 m á hæö og
vegur 100 kg, og er skotharka hans
i fullu samræmi við vöxtinn, enda
hcfur Hansi verið markaliæstur i
þýsku „Bundesligunni” sex ár I röð
og verður þess örugglega langt aö
biöa að það mct verði slegið.
Hansi er fæddur i Rúmeniu og hóf
að leika handknattleik þar i landi
og liefur 18 sinnum leikiö i landsliði
Rúmeniu. Siðan flýði hann til Vest-
ur-Þýskalands, geröist þýskur
rikisborgari og hóf að leika með
Gummersbach og þýska landsliö-
inu. Siðan liefur hann sex sinnum
orðið vestur-þýskur ineistari með
G'ummersbach og á orðið yfir 100
landsleiki fyrir Vestur-Þýskaland.
Þótt llansisé orðinn 33 ára, lætur
hann engan bilbug á sér finna og er'
að venju maöurinn á bakviö vel-
gengni Gummersbach sem nú er
talið langsterkasta félagsliðið i
þýska handboltanum og er t.d. eina
liöiö sem ekki heíur tapað leik i
deildarkeppninni. Auk þess aö
skora mikið af mörkum, er llansi
kunnur fyrir aö æsa upp áhorfend-
ur og lcikmenn i liði andstæðing-
anna. Takist það þá líður honuin
allra best.
„Við verðum að gera
betur en gegn Gróttu"
— segir Karl Benediktsson þjúlfari Víkings um leik meistaranna gegn
Gummersbach ú laugardaginn
Brotnir
blakmenn!
Það er ekki alveg laukrétt að
blak sé hættulaus iþrótt. Það
geta þeir Halldór Jónsson og
Tómas Tómasson, sem eru lið-
stjórar landsliðsins i blaki dæmt
um. Þeir meiddust báðir svo illa
á fæti i leikjum nú fyrir
skömmu, að þeir liafa orðið að
ganga um i gipsi. Þeir hafa
samt ekki látið það aftra sér frá
þvi að vera með i leiknum.
Halidór var dómari I leik Vik-
ings og IMA á sunnudaginn og
Tómas stjórnaði þá Vikingslið-
inu utan vallar. Ljósmyndir
Einar.
,,Það er ekkert vafamál, að
Gummersbach er eitt besta fé-
lagsliðið i handknattleik i dag,”
sagði Karl Benediktsson, þjálfari
Vikings, þegar við ræddum við
hann um hvaða möguleika Vik-
ingur ætti gegn þýsku meisturun-
um. ,,Ég geri mér alveg grein
fyrir þvi að við eigum erfiðan leik
fyrir höndum. Við verðum að eiga
toppleik, en þeir slakan leik —
það eru okkar möguleikar. Auk
þess liafa þeir mjög góðan mark-
vörö og ég er hræddur um að við
verðum að nota tækifæri okkar
betur gegn Gummersbach en
gegn Gr.óttu á miðvikudaginn.”
Að sögn framkvæmdastjóra
Gummersbach, Eugen Haas,
munu beir koma hingað með sitt
sterkasta lið. Óvist væri hins veg-
ar hvort Westebbe gæti komið
— þar eð hann hefði slasast i leik
með Gummersbach um siðustu
helgi. Þá hefðu þeir leikið við
Neuhausen sem kom upp úr 2.
deild i fyrra og hefðu þeir sigrað i
þeim leik 26:16.
Sterkustu hliðar Gummersbach
eru hraðaupphlaupin, sem hafa
orðið islenskum liðum svo oft að
falli, i keppni við erlend lið og
verða vikingar að vera vel á verði
gagnvart þeim.
Þetta er i fyrsta skipti sem Vik-
ingur tekur þátt i Evrópukeppn-
inni i handknattleik, áður hafa
þrjú islensk lið tekið þátt i þessari
keppni — Valur, Fram og FH sem
á flesta leiki að baki og náð
bestum árangri. Gummersbach
hefur náð langbestum árangri
allra liða sem tekið hafa þátt i
Evrópukeppninni, bæði fyrr og
siðar. Þá koma liðin Dukla Prag
og Partizan frá Júgóslaviu sem
einnig hafa náð mjög góðum
árangri. Alls hafa 116 lið tekið
I þátt i Evrópukeppninni og er FH i
22. sæti, Fram i 56. sæti og Valur i
| 95. sæti.
Júgóslavar
höfðu það!
Júgóslavia tryggði sér rétt
til að leika i 8-liða úrslitum i
Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu i Belgrad i gær-
kvöldi með þvi að sigra
Norður-irland 1:0 i þriðja riðli
keppninnar.
Norður-irar urðu að sigra i
leiknum 2:0 til að komast á-
fram — á hagstæðari marka-
tölu. Það tókst þeim ekki þrátt
fyrir ágæt tilþrif. Eina mark
leiksins var skorað i fyrri hálf-
leik, og var þar aö verki einn
besti leikmaður júgóslava,
Oblak.
Fimm þjóðir hafa nú tryggt
sér rétl i úrslitakeppninni, en
þaö eru auk Júgóslaviu,
Sovétrikin, Belgia, Spánn og
Wales, en Tékkóslóvakía,
Vestur-Þýskaland og Holland
eru nokkuð örugg i hinum
þrem.
Lokastaðan i 3. riðli varð
þessi:
6 5 0 1 12:4
6 3 0 3 8:5
6 3 0 3 8:9
6 1 0 5 5:15
Júgóslavia
N.iii.
Sviþjóð
Noregur
Vestur-þjóðverjar
standa best að vígi
Vestur-þjóðverjar liafa nú svo
gott sem tryggt sér sigur i átt-
unda riðlinum i Evrópukeppni
landsliða i knattspyrnu. Þeir eiga
cftir að leika sinn leik gegn veik-
asta liðinu, Möltu, á heimavelli og
nægir þeim jafntefli til áð komast
áfram. i gærkvöldi léku vestur-
þjóðverjar við búlgari i Stuttgart
og sigruðu auðveldlega i leiknum
1:0.
Heimsmeistararnir sýndu oft
mjög góða knattspyrnu i gær-
kvöldi og segja úrslit leiksins litið
um gang mála, þvi að yfirburðir
þýska liðsins voru algerir. Mun-
aði þar mestu um frábæran leik
miðvallarleikmannanna þriggja
úr Borussia Munchengladbach:
Herbert Wimmer, Ulrich Stielike
og Dietmar Danner.
Mark þjóðverjanna skoraði
Jupp Heynckes á 65. minútu
eftir góða sendingu frá
Schwarzenbeck. Heynckes lék á
tvo varnarmenn og skoráði siðan
með þrumuskoti. Franz „keisari”
Beckenbauer lék sinn 94. lands-
leik og munaði litlu að honum
tækist að skora i leiknum i gær —
hann átti hörkuskot sem varið var
á marklinu.
Staðan i áttunda riðlinum er nú
þessi:
Grikkland 6 2 3 1 12:9 7
Vestur-Þýskal. 5 2 3 0 6:4 7
Búlgaria 5 1 2 2 10:7 4
Malta 4 1 0 3 2:10 2
Tveir leikir eru eftir i riðlinum,
leikur Möltu og Búlgara 21.
desember og leikur vestur-þjóð-
verja og Möltu 28. febrúar.
—BB