Vísir - 20.11.1975, Blaðsíða 19
visrn Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
19
Bílarnir og við....
Umsjón Ævar Ragnarsson
Jeep Renegade CJ 7
fáanlegur sjálfskiptur
og með Quadra trac.
óttœkar
breytingar ó
jeppanum...
Ný grind,
betri fjaðrir
Mesti breytingarnar sjást þó
ekki svona, fljótt á litið. Undir
bilnum er algjörlega nýr og
sterkari rammi sem breikkar
aftur og verður þvi lengra á
milli afturfjaðranna sem auk
þess eru lengri en áður.
Þetta ásamt nýrri gerð af
höggdeyfum á að gera jeppann
stöðugri i akstri og minnka
hliðarvelting en á þvi var svo
sannarlega ekki vanþörf.
Sömu vélar
og áður
Fáanlegar eru nú eins og áður
sex strokka vélar 100 og 110
hestöfl og auk þess er billinn
fáanlegur með átta strokka 150
ha. vél.
t almennri framleiðslu er 100
ha. vélin notuð og við hana
tengdur þriggja gira
alsamhæfður girkassi með
tveggja hraða millikassa.
Turbo Hydra-Matic
og Quadra-Trac
Nú er loksins hægt að fá jepp-
ann með sjálfskiptingu, Turbo
Hydra-Matic og auk þess
Quadra-Trac millikassa eins og
t.d. Range-Rover er með, en þá
er stöðugt drifsamband út i öll
hjól, en mismunadrif milli fram
og afturdrifa.
CJ 5 gerðin er jafnlöng og áð-
ur og þvi ekki fáanleg með sjálf-
skiptingu vegna plássleysis.
Verð er ekki fyrirliggjandi og
jepparnir ekki væntanlegir
hingað fyrr en næsta sumar.
Þeir stóru
lika breyttb’
Ekki hafa JEEP verksmiðj-
urnar látið sér nægja að breyta
þeim litla. Stóru bræðurnir
Cherokee og Wagoneer hafa
einnig fengið sterkari ramma
og nýjar fjaðrir sem gefa meiri
fjöðrun.
Wagoneer er almennt með 175
ha. V8 vél með tvöföldum
blöndungi, sjálfskiptingu og
Quadra-Trac en er fáanlegur
með fjórföldum blöndungi og
215 ha. V8 vél eins og áður.
Cherokee er með 6 strokka 110
ha vél, þriggja gira kassa og
venjulegum millikassa en er
fáanlegur með V8 vél tveggja
og fjögurra blöndunga og að
sjálfsögðu sjálfskiptingu og
Quadra-Trac.
Nú.er komin á markaðinn
torfæruútgáfa af Cherokee á
stærri hjólum en auk þess fáan-
leg með öllum þeim útbúnaði
sem hægt er aö fá með venju-
legu gerðinni.
Cherokee Chief torfæruútgáfan, þó nokkuð kraftalegur bill.
opnast upp og niður og fáanleg
er varahjólsfesting á hjörum.
Willy’s jeppinn hefur
löngum verið vinsæll
hjá okkur islendingum
sérstaklega þeim sem
þurft hafa að aka utan
þéttbýlis á vegum, sem
mikinn hluta árs eru
vart færir nema
tveggja drifa bilum.
Breytingar þær sem
gerðar hafa verið á
bilnum á þessu 35 ára
timabili, sem hann
hefur verið framleidd-
ur eru ekki miklar. 1953
kom hann með nýrri
vél og ’55 breyttist útlit
hans i það sem að
mestu hefur verið
óbreytt siðan.
Þá er Willy’s nafnið
ekki lengur notað enda
CJ 7, væntanlegur til landsins næsta sumar.
þær verksmiðjur ekki
til lengur en American
Motors samsteypan
hefur tekið við fram-
leiðslunni og notar að-
eins nafnið Jeep með
mismunandi viðaukum
fyrir aftan.
Ný gerð CJ 7
Með ’76 árganginum og hinni
nýju CJ 7 gerð verða einhverjar
róttækustu breytingar sem
hingað til hafa verið gerðar á
jeppanum. Eins og sést á mynd-
unum hér á sfðunni verða dálitl-
ar breytingar á útlitinu frá CJ 5
gerðinni sem er algengust hérna
og að visu framleidd ennþá þó
þessi sé komin á markaðinn.
Lengd milli hjóla eykst um 25
cm og dyrnar stækka að mun.
Hægt er að fá bilinn annað hvort
með blæjum eða plasthúsi og
hafa báðar gerðirnar öryggis-
grind aftan við framsæti.
En billinn er með plast (poly-
carbonat) húsi sem framleitt er
i hvitum og svörtum lit eru
hurðirnar úr stáli og með
skrúfanlegum rúðum. Afturgafl