Vísir - 01.12.1975, Blaðsíða 2
iSsasm:
Hvernig líst þér á kvik-
myndirnar sem er verið að
sýna núna i bænum?
Maria Jóhannesdóttir sendill: —
Ég veit það ekki. Ég hef hvorki
haft peninga né tima til þess að
fara á bió siðan ég sá Tommy.
Helgi Pétur Guðjónsson, verka-
maöur: — Ég er búinn að sjá
nokkrar og list bara dável á þær.
Það eru nokkrar ágætar myndir
sem er verið að sýna núna.
Björgvin Pálmason, nemi:— Þær
eru lélegar. Það á að sýna al-
mennilegar glæpamyndir.
Valgerður Briem, nemi: — Mér
list ekki sérstaklega vel á þær.
Það mætti vera meira af gaman-
myndum. Ég er að vona að það
verði farið að sýna betri myndir
um jólin.
Ingibjörg Kristjánsdóttir, hús-
móöir: — Ég fer aldrei nokkurn
tima á bió svo ég get ekkert um
það sagt.
Maria Guðnadóttir, er i skóla: —
Mér list ágætlega á þær. Það ætti
að sýna hérna meira af hryllings-
myndum.
VltinnfliHfiif I rf
hpr |Q7^
vism
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Hundrennondi í
„strœtó"
Ásthildur Júliusdóttir
hringdi:
„Ég bý uppi i Möðru-
felli og þarf daglega að
fara með þriggja ára
dóttur mina í strætis-
vagni. Vagninn stoppar
við Iðufell, en þar er
ekkert biðskýli,
Fólk sem biður þarna
eftir vagninum stendur
undir húsveggnum, en
þar er mjög takmarkað
skjól, þegar vindinum
slær fyrir úr öllum átt-
um.
Sumir reyna að leita
skjóls inni I sjoppunni
þarna skammt frá, en
þá eiga þeir það á hættu
að missa af vagninum.
1 rigningum i sumar
og i hriðarveðrum i vet-
ur er afleitt að búa við
þessa aðstöðu. Fólk er
orðið hundrennandi og
kalt þegar það kemst
loksins i vagninn.
Ég hef tvisvar hringt
til SVR til að spyrjast
fyrir um hvort þarna
eigi ekki að koma skýli,
og ég veit að margir
aðrir hafa einnig hringt.
SVR hefur sagt að
þarna eigi að koma
skýli, en það sést ekki-
bóla á þvi enn.
Þarna er um að ræða
aðstöðu fyrir margt fólk
þvi það eru mjög marg-
ir sem þurfa að taka
vagninn á þessum
stað.”
Visir fékk þær upp-
lýsingar hjá SVR að nú
væru aðeins fáir dagar
þar til skýlið yrði sett
upp við Iðufell, aðeins
væri eftir að steypa pall
undir það.
Orsökin er sú, að
skortur var á efni i skýii
þau sem verið var að
smiða fyrir SVR.
Blóðugir fingur í pósti!
Lesandi hringdi:
„Mikið var deilt á aftökurnar
á Spáni á sinum tima bæði i is-
lenskum blöðum og erlendum.
Raddir voru uppi um það að
þarna hefðu verið drepnir sak-
lausir menn.
1 sænsku blaði rakst ég nýlega
á einn sem var á öndverðri
skoðun, þar sem það hefði verið
opinberlega tilkynnt áður að
jafnvel dauðarefsing lægi við
árásum á lögregluna.
Þessi sami svii segist vera
kunnugur á Spáni, og hvað svo
eitthvað
á hjarta?
Þá annað tveggja
hringdu í síma 86611
milli kl. 13-14 á
daginn eða skrifaðu.
Dagblaðið Vísir
sem um stjórnarfar þar í landi
megi segja þá sé þó eitt jákvætt
við það, þ.e. að stjórnarfari og
refsingum sé þannig háttað
menn þurfi ekki að óttast að
gerður verði aðsúgur að þeim á
götum úti eða annarsstaðar, þar
sem svo þung viðurlög liggi við
sliku.
Nú nýlega rakst ég á frásögn
af svia sem á búgarð i nágrenni
Gautaborgar. Hann fékk núna i
vikunni sent bréf sem hafði að
geyma blóðugan fingur dóttur
hans ásamt kröfu um lausnar-
gjald.
Jafnframt var þvi hótað að ef
hann hefði samband við lög-
reglu yrði hús hans sprengt I loft
upp.
Og þetta gerist i hinum frjálsu
löndum!
Væri nú ekki athugandi að
innleiða þyngri refsingar jafn-
vel dauðadóma fyrir svona
ógeðsleg tiltæki?
Ég tel að þörf sé á að hegna
mönnum meira en gert hefur
verið. Mönnum er að verða al-
veg sama þótt þeir séu lokaðir
inni 1 fangelsi þvi aðbúnaöurinn
þar er orðinn svo góður.
Það er deilt á stjórnarfarið á
Spáni, en er eitthvað betra að
stjórnarfar sé þanníg i löndum
aö menn komist upp með alls-
konar óþverratiltæki, svipað og
hér var lýst?”
Þrístrikuð
Steinþór P. Árdal skrifar:
Þó að ég segði blaðinu upp
fyrir alllöngu siðan kaupi ég það
á hverjum degi sem það kemur
út. Ég sagði upp vegna þess að
ég var orðinn leiður á þvi að
þurfa að kvarta i hverri viku
yfir vanskilum á útburði Visis.
Mér þykir vænt um þetta blað,
enda hef ég keypt það frá þvi
það var smásnepill. Þess vegna
tek ég lika nærri mér þegar.
blaðamenn ykkar eru ekki fær-
ari 1 réttritun islenskrar tungu
en það að þeir koma með vit-
leysur, sem hefðu verið, þegar
ég var I barnaskóla, þri undir-
strikaðar með rauðu bleki. —
Þetta vill of oft, til þvi miður.
Laugardaginn 22. nóv. bls. 15:
„Jakob Magnússon hlær, og
fær sér loksins brennheitan te-
sopa — eftir að hafa „dyfið”
piparköku o.s.frv.”
villa
Skemmtilegra að sagt hefði
verið „dýft” ekki sist vegna
barna og unglinga sem sjá þetta
og læra þetta þá um leið. Af þvi
læra börnin málið, að það er
fyrir þeim haft.
Blaðamenn hafa mikla
ábýrgö á herðum sér. Siðustu
blöðin eru illa prentuð hverriig
sem á þvi stendur.
Kaupi aldrei afritið af Visi —
Dagblaðið.