Vísir - 01.12.1975, Blaðsíða 17
vism Máiuulagiir l. dcseinber I!)75.
17
<AG í PAG | í KVÖLD | I DAG |
Sjónvorp kl. 20.40:
Gangverkið eilífa
Gangverkið eilifa
nefnist sjöundi þáttur
fræðslumyndaflokksins
um upphaf og þróunar-
sögu mannkynsins sem
sýndur verður i kvöld.
1 þessum þætti verður
fjallað um isak Newton,
ævi hans og rannsóknir
á ljósi og tima.
Þá verður einnig
fjallað um Einstein og
rannsóknir hans á sömu
viðfangsefnum, af-
stæðiskenningu hans,og
sýnt verður frá Bern i
Sviss þar sem Einstein
bjó þegar hann kom
fram með kenningar
sinar.
Þýðandi og þulur
myndarinnar er Óskar
Ingimarsson.
EB.
nr ViIli jálmssoi) ræðir við Guunar (iunnarsson.
Gunnar Gunnarsson skóld
í þættinum „Maður er nefndur” i
sjónvarpinu i kvöld kl. 22.30 verður
endursýndur viðræðuþáttur Thors
Vilhjálmssonar við Gunnar Gunn-
arsson skáld. Þessi þáttur var áður
á dagskrá 31.3. 1970.
Gunnar Gunnarsson fæddist 18. mai 1889 á Val-
þjófsstað i Fljótsdal, en hann lést 21. nóvember
Hann stundaði ritstörf nær alla sina ævi, utan
hvað hann bjó á Skriðuklaustri i Fljótsdal um niu
ára skeið. í rúm þrjátiu ár var hann búsettur i
Danmörku, en frá 1948 i Reykjavik.
Skáldrit Gunnars Gunnarssonar hafa verið
þýdd á fjölmörg tungumál og komið út i mörgum
útgáfum. Nú er verið að lesa i útvarpinu af Þor-
steini 0. Stephensen eitt af verkum Gunnars,
„Fóstbræður”, og er 22. lestur i kvöld kl. 21.30. EB.
Útvarp, þriðjudag, kl. 14.30:
Hvemig gengur föti-
uðum að komast út í
atvinnulífið aftur?
Mcrkilegur þáttur cr á dag-
skrá tilvarpsins á niorgun. Það
cr þáttur uni atvinnuinál fatl-
aðra. Uiiisjóiiarmcnii cru Gisli
llclgason og Andrca Þorðar-
dóttir, scm sáu m.a. um
atliyglisvcrðan þátt frá Grcns-
ásdcild Borgarspitalans lyrir
slutlu.
Fyrri þátturinn um atvinnu-
mál fatlaðra er á dagskránni á
morgun, en seinni þátturinn á
íimmtudag. 1 þættinum á morg-
un er rætt við forráðamenn
Endurhæfingarráðs rikisins.
,,Við fjöllum um það. hvernig
það gengur fyrir fatlaða að
komast út i atvinnulifið", sagði
Andrea þegar við höfðum sam-
Athyglisverður
þóttur ó dagskró
band við hana.
,,í Endurhæfingarráði spjöíl-
um við við sálfræðinginn þar,
lækninn, formann ráðsins og
Iramkvæmdastjóra. En það er
athyglisvert”, bætti Andrea við,
,,aö endurhæfingarráð tekur
jafnt við gömlu fólki sem
öryrkjum.”
,,Við komumst að þeirri
niðurstöðu að það gengur ekki
alltof vel að koma fólki út i at-
vinnulifið aftur. Hins vegar er
það tekið fram i 16. grein laga
um endurhæfingu að þeir sem
hafa verið endurhæfðir eigi for-
gang að atvinnu bæði hjá riki og
bæ."
Til endurhæfingarráðs kemur
fólk sem á við ýmiss konar
erfiðleika að striða. Andrea gat
þess að þetta fólk væri látið
gangast undir sálfræðipróf sem
heilbrigðir þurfa ekki að gera
þegar sótt er um vinnu, og hún
gat þess að slik próf væru nú á
undanhaldi, svo sem i Banda-
rikjunum.
Þessi þáttur hefst klukkan
hálfþrjú á morgun.
— EA.
Ja, það væri nú munur maður að geta handfjall
að þá svona, máttarstólpa þjóðfélagsins!
ÚTVARP •
Mánudagur
1. desember
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.00 Hátiðarsamkoma stú-
denta fyrsta desember: (Jt-
varp úr Háskóiabiói Flutt
samfelld dagskrá um
kreppuna.
15.30 Lúðrasveitin Svanur
leikur Sæbjörn Jónsson
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.00 Ungir pennar Guðrún
Stephensen sér um þáttinn.
17.30 Úr sögu skáklistarinnar
Guðmundur Arnlaugsson
rektor segir frá, þriðji þátt-
ur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt málGuðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Einar Magnússon fyrrver-
andi rektor talar.
20.00 Mánudagslögin
20.35 Er sjálfstæðisbaráttunni
lokið? Eysteinn Jónsson
fyrrverandi alþingismaður
flytur erindi.
21.00 Háskólakantata eftir Pál
Isólfsson við ljóð Þorsteins
Gislasonar Flytjendur:
Guðmundur Jónsson, Valur
Gislason og Sinfóniuhljóm-
sveit tslands. Stjórnandi:
Atli Heimir Sveinsson.
21.30 Útvarpssagan: ,,Fóst-
bræður” eftir Gunnar
Gunnarsson Jakob Jóh.
Smári þýddi. Þorsteinn ö.
Stephensen leikari les (22)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Úr tón-
listariifinu Jón Asgeirsson
sér um þáttinn. Danslög
22.45 M.a. leikur Dixieland-
hljómsveit Árna Isleifsson-
ar. (Aður útvarpað fyrsta
vetrardag).
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÖNVARP •
Mánudagur
1. desember 1975.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Magskrá og auglýsingar.
20.40 Vegferð mannkynsins.
Fræðslumyndaflokkur um
upphaf og þróunarsögu
mannkynsins. 7. þáttur.
Cangverkið cilifa. Þýðandi
og þulur Óskar Ingimars-
son.
21.40 Breeze Anstey. Breskt
sjónvarpsleikrit úr mynda-
flokknum ..Country Matt-
ers”, byggt á sögu eftir H.E.
Bates. Tvær ungar stúlkur.
Lorn og Breeze, setjast að
uppi i sveit og hefja mat-
jurtarækt. Timarnir eru
erfiðir, en þær setja það
ekki fyrir sig og liður vel.
Dag nokkurn kemur fyrr-
verandi unnusti Lorn óvænt
heim frá Indlandi. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
22.30 Maður er nefndur. Giinn-
ar Gunnarsson skáld. Thor
VGlhjálmsson ræðir við '
hann. Áður á dagskrá 31.
mars 1970.
23.10 Dagskrárlok.
Sorpeyðing
Sveitarfélögin á Suöurnesjum hafa hug á
að koma upp sameiginlegri sorpeyðingu.
Ekki liggja endanlega fyrir magntölur
þess sorps er eyða skal, en tveir möguleik-
ar koma til greina, 9000 tonn pr. ár og
37000 tonn pr. ár.
Eru innflytjendur sorpeyðingarvéla og
ofna og aðrir innlendir aðilar sem áhuga
hafa á framleiðslu og/eða sölu slikra
tækja beðnir að senda tillögur sinar ásamt
kostnaðaráætlun til undirritaðs fyrir 31.
des. n.k.
Nánari upplýsingar veita sveitar- vog
bæjarstjórar á Suðurnesjum.
Sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps,
Vogagerði 2, Vogum.