Vísir - 01.12.1975, Page 14
14
Mánudagur I. dcsember 1975. VISIR
Englandsmeistararnir Derby
County stóBu svo sannarlega
undir nafni á laugardaginn
þegar þeir léku gegn Middles-
brough á Baseball Ground i
Derby. Allt útlit var fyrir sigur
Middlesbrough i leiknum, þvi
leikn},önnum liðsins tókst að
skora tvivegis á fyrstu 13 minút-
um leiksins. En meistararnir
gáfust ekki upp, þeim tókst að
jafna — og 9 minútur fyrir leiks-
lok tókst Archi Gemmil að skora
sigurmarkið og Derby heldur
þvi enn forystunni i 1. deild.
Sömu sögu er að segja af QPE,
liðiö var undir 1:2 gegn Stoke I
London, en tókst að jafna og
sigra i leiknum með marki
David Webb. En úrslitin i leik
Liverpool og Norwich á Anfield i
Liverpool komu mest á óvart.
Norwich sem ekki hefur unnið
leik að undanförnu, sigraði
mjög óvænt i leiknum og tapaði
Liverpool þar með sinum fyrsta
leik á heimavelli á keppnistima-
bilinu. A botninum er engin
breyting, Sheffield United fékk
að visu stig á útivelli, en það
breytir i litlu um stöðu liðsins,
sem situr eitt og yfirgefið á
botninum.
Vafasamt sigurmark!
Stuart Boam byrjaði á að
skora fallegt mark með skalla
fyrir Middlesbrough i Derby og
á 13. minútu leiksins skoraði
bakvöröurinn John Craggs ann-
að mark Middlesbrough eftir
„overlap”.
En meistararnir gáfust ekki
upp og aðeins sex minútum sið-
ar tókst Francis Lee að minnka
muninn þegar hann skoraði af
stuttu færi eftir hornspyrnu. í
siðari hálfleik sóttu leikmenn
Derby svo látlaust. Charles
George og Kevin Hector áttu
skot I þverslá, en á 56. minútu
tókst Henry Newton að jafna.
Sigurmarkið skoraði svo Archie
Gemmel niu minútum fyrir
leikslok. Markiö var mjög um-
deilt, skot Gammel fór i þver-
slána, niður og út. Linuvörður-
inn sagði ekki mark, en dómar-
inn var á annarri skoðun og
dæmdi mark, leikmenn
Middlesbrough urðu æfir, en
eigi þýðir aö deila viö dómarann
og það eina sem þeir höfðu fyrir
mótmælin var að þeir Stuart
Boam, David Mills og Bobby
Murdoch voru bókaðir.
Roy MacFarland lék nú aftur
með Derby, en 300 þúsund
punda maöurinn, Leighton
James, sem keyptur var i vik-
unni frá Burnley, var meðal á-
horfenda. James mátti ekki
leika með, þvi of stutt var frá
þvi aö hann skrifaði undir við
sitt nýja félag.
En áður en við höldum lengra
skulum við líta á úrslit leikj-
anna:
l.deild
Aston Villa —Leicester 1:1
Coventry — Birmingham 3:2
Derby — Middlesbrough 3:2
Ipswich — Sheff. Utd. 1:1
Leeds — Everton 5:2
Liverpool — Norwich 1:3
Manch. Utd. —Newcastle 1:0
QPR—Stoke 3:2
Tottenham — Burnley 2:1
West Ham — Arsenal 1:0
Wolves — Manch. City 1:4
2. deild
Blackburn — Charlton 2:0
Blackpool — Notts C 1:0
Bolton — WBA 1:2
BristolR —Chelsea 1:2
Carlisle — Southampton 1:0
Fulham — Bristol C 1:2
Hull — Plymouth 4:0
Luton —Orient 1:0
Nottingh. For. — York 1:0
Portsmouth — Oxford 0:2
Sunderland —Oldham 2:0
Skoruðu með siðustu
spyrnunni
QPR hafði yfir I hálfleik 1:0 i
leiknum gegn Stoke, Don
Masson skoraöi markið eftir
góöan undirbúning Frank
McLintock og Stan Bowles.
En i siöarihálfleik gekk allt á
afturfótunum hjá QPR til að
byrja með — Ian Moores skor-
aði á fyrstu minútunum eftir
mistök Phil Parkes i marki
Þeir voru i sviðsljósinu meö liöum sinum um heigina, Gerry Francis, QPR nær og Lou Macari. Man-
chester United f jær. Macari átti allan heiöurinn af marki Manchester gegn Newcastle á Old Trafford og
Francis átti heiðurinn af sigurmarki QPR gegn Stoke.
Enska knattspyrnan
MEISTARAR DERBY
STÓÐU FYRIR SÍNU
- Þeir voru tveim mörkum undir gegn Middlesbrough en tókst
samt að sigra í leiknum. Tap Liverpool fyrir Norwich kom
mest ó óvart í leikjunum á laugardaginn
QPR og nokkrum minútum
siðar uröu Parkes aftur á mis-
tök — missti boltann fyrir
fæturna á Alan Bloor sem skor-
aöi af stuttu færi. En leikmenn
QPR gáfust ekki upp, Dave
Clements jafnaði eftir góða
sendingu Dave Thomas og
David Webb skoraöi sigurmark-
iö með siðustu spyrnu leiksins,
eftir aukaspyrnu Don Masson.
Eftir að hafa tapað hverjum
leiknum á fætur öörum, var
dagskipun John Bond fram-
kvæmdastjóra Norwich fyrir
leikinn við Liverpool: „Sækið,
þvi sókn er besta vörnin”. Og
viti menn, þessi leikaðferð hans
heppnaöist fullkomlega. En það
var þó ekki fyrr en á 58. minútu
að Colin Suggett tókst að skora_
fyrir Norwich, sendi boltann"
með þrumuskoti i mark Liver-
pool af 25 m færi. Eftir það var
isinn brotinn. Martin Peters
skoraði annað mark Norwich
stuttu siðar eftir að hann hafði
unnið kapphlaup viö Tommy
Smith. Þá tókst Emlyn Hughes
að minnka muninn fyrir Liver-
pool en Ted MacDougall skoraöi
þriðja mark Norwich stuttu fyr-
ir leikslok og sitt 17. mark á
keppnistimabilinu.
Markasúpa i Leeds.
Leeds hafði algjöra yfirburði i
leiknum viö Everton á Elland
Road I Leeds og hefðu leikmenn
liösins hæglega átt að geta skor-
að helmingi fleiri mörk, svo
miklir voru yfirburðir þeirra.
Peter Lorimer skoraði fyrsta
mark Leeds á 16. minútu beint
úr aukaspyrnu — skot hans lenti
I Roger Kenyon og af honum i
mark Everton. Allan Clark
skoraði annað mark Leeds, en á
eftir fylgdu tvær vitaspyrnur.
Dave Clemente minnkaði mun-
inn með marki úr viti fyrir
Everton sem hann tvitók og
Peter Lorimer skoraði úr vita-
spyrnu fyrir Leeds.
Einn leikmaður mun senni-
lega seint gleyma þessum leik
— markvörður Everton, And-
rew Brand, sem lék sinn fyrsta
deildarleik. Hann átti þó ekki
sök á öllum mörkunum, en i
upphafi siðari hálfleiks mistókst
honum þó að slá frá fyrirgjöf
sem hafnaði hjá Eddie Gray og
hann skoraði fjórða mark
Leeds. Allan Clark skoraöi svo
fimmta mark Leeds eftir
skemmtilega sóknarlotu og
þannig stóð þar til stutt var til
leiksloka að BobLatchford tókst
að skora annað mark Everton.
West Ham lék oft stórvel á
Upton Park gegn Arsenal, þó
svo aö tvo af lykilmönnum liðs-
ins vantaði — fyrirliðann Billy
Bonds og Trevor Brooking. Þaö
var auövitað enginn annar en
Alan Taylor sem nú er kallaður
„Spörfuglinn”, sem skoraði
mark West Ham. Kevin Lock
sendi fyrir mark Arsenal og
Taylor sem virtist hreinlega
spretta upp úr jörðinni fyrir
framan markið átti ekki i nein-
um erfiðleikum með að skora.
Markvöröur Arsenal, Jimmy
Rimmer varði siðan mjög vel
frá Alan Taylor og Billy
Jennings. En Marvin Day gekk
ekki eins vel f markinu hinum
megin þó honum tækist að halda
þvi hreinu — missti boltann tvi-
vegis fyrir fæturna á leikmönn-
um Arsenal — en þeir voru of
seinir að átta sig og Day tókst aö
handsama boltann aftur.
Manchester United sótti mun
meira I leiknum gegn Newcastle
á Old Trafford I Manchester,
dyggilega hvattir af rúmlega 52
þúsund áhorfendum. En leik-
menn Newcastle vörðust vel,
eða þar til á 68. minútu — þá
spyrnti Lou Macari fyrir mark-
iö með hjólhesta spyrnu sem
varnarmenn Newcastle áttuðu
sig ekki á — sending hans fór
beint til Gerry Daly sem skoraði
örugglega af stuttu færi. Alex
Stepney lék nú aftur i markinu
hjá United og sýndi að venju
mikið öryggi.
Tólfta jafnteflið
hjá Leicester
Leicester gerði sitt tólfta
mark á keppnistimabilinu i
Birmingham gegn Aston Villa.
Frank Worthington skoraði
mark strax i upphafi fyrir
Leicestersem svo lagðist I vörn.
1 upphafi siðari hálfleiks tókst
Ray Graydon aö minnka mun-
inn fyrir Aston Villa, en leik-
mönnum Leicester tókst ad
verjast þaö sem eftir var leiks-
ins þrátt fyrir mikla pressu.
Bill MacGarry framkvæmda-
stjóri Olfanna fékk heldur kald
ar kveðjur frá hinum 20 þúsund
áhorfendum sem lögðu leið sin^
á Molineux i Wolverhampton
laugardaginn til aö sjá leik Olf
anna og Manchester City. Eftir
góöa byrjun féllu leikmenn Olf-
anna algerlega saman þegar
Asa Hartford skoraði fyrst
mark leiksins á 28. minútu. Þá
tók Dennis Tueart vitaspyrnu
skot hans hafnaði i þverslé
hrökk út aftur til Hartford sen
var fljótur að átta sig og skalf
aði inn. Stuttu siðar bætti Pete
Barnes við öðru markinu eftir
fyrirgjöf Tueart og þannig va^
staðan i hálfleik. 1 siðari hálf
leik bætti svo Hartford Tuearé
tveim mörkum við eftir varnarY
mistök Olfanna.
Rekinn útaf i sinum
fyrsta leik
Leikmenn Coventry fengi
óskabyrjun i leiknum gegr
Birmingham — tvö mörk
tveim minútum og komust I 3:d
Powell skoraði beint úr auka
spyrnu á 13.. minútu og þei!
David Cross og Donald Murphjj
sem lék sinn fyrsta deildarleiS
skoruðu á 30. og 32. minútu. Sið
an var Murphy rekinn af leil'
velli fyrir að sparka i mótherjs
og leikmenn Coventry urðu ab
leika 10 það sem eftir var leiks
ins. Kenny Burns skoraði fyri|
Birmingham i lok fyrri hálfi"
leiks, en Howard Kendall annaC
mark Birmingham úr vitai
spyrnu i siðari hálfeik.
Sheffield United fékk loksin^
stig á útivelli eftir niu tapleiki (
röð, en það virðist ekki segja
mikiö og liöið dæmt til aö falla (
2. deild. John Peddelty skoraðl
sjálfsmarkþegarhann ætlaði af
skalla frá hættulausa sendingu
— honum tókstekki betur en sv(i
að hann skallaði i eigiö mark,
Réttfyrir leikslok tókst svo Tre
vor Wymark að skora fyrir Ipsl
wich eftir sendingu David Joím|
son og tryggja annað stigiö.
Ray Hankin skoraði á 24. minl
útu fyrir Burnley gegn TottenJ
ham á White Hart Lane —
notfærði hann sér slæma send
ingu varnarmanns Tottenham^
lék á Pat Jennings markvörð og
sendi boltann i tómt markið. Er
John Duncan tókst aö skora tvL
vegis fyrir Tottenham i' siðar|
hálfleik bæði með skalla — fyrsl
eftir hornspyrnu John Pratt og
siðan eftir góða sendingu Terry
Naylor.
Leikmenn Burnley urðu aC
leika 10 nær allan leikinn, þeie
sendu varamanninn Paul Bradi
shaw fljótlega inná, en stuttf
siöar meiddist Willie Morgan og
varð að yfirgefa leikvöllinnv
Hann kom þó inná aftur, en aðj
eins I stutta stund.
Sunderland stefnir
upp úr 1. deild
Ekkert viröist geta stöðva?
Sunderland þessa dagana og lið|
ið hefur nú fjögurra stiga for,
ystu I 2. deild. Sunderland átti
ekki i miklum erfiðleikum meC
Oldham og skoraði Robson bæði
mörk Sunderland. í 3. deild
heldur Crystal Palace lika sinu
striki og hefur sex stiga foryst
A laugardaginn lék Palace gegri
Mansfieldog sigraði örugglega 1
leiknum 4:1 — mörk Palace
skoruðu Swindelhurst (tvö) og
Evans, en eitt var sjálfsmark.
Þá var George Best i sviðs-
ljósinu á föstudagskvöldið þeg-
ar hann lék með liði sinu Stock-
port Conty gegn Swansea.,
Stockport sigraöi i leiknum 3:5
og voru áhorfendurnir 10 þús-
und sem er þriöjungi meiri
áhorfendafjöldi en sótt hefur
leiki liðsins til þessa. Besj,
„átti” öll mörk Stockport'j
Fyrsta markið kom eftir hornr
spyrnu sem Best tók, mark-
vörður Swansea hélt ekki boltf
anum sem hafnaði i markinuv
Annað markið var skorað eftiB
frábæra sendingu Best og hanri
skoraöi svo sjálfur þriðja mark^
ið.