Vísir - 03.12.1975, Side 2
Mi&vikudagur 3. desember 1975. VISIR
íísiEsro
— Hver er reynsla þin af
lögreglunni?
Jón Karlsson læknanemi: — Ég
hef enga persónulega reynslu af
lögreglunni. Lögregluþjónar eru
auðvitað upp og ofan en mér
finnst að menn dæmi þá oft á
ósanngjarnan hátt.
Jóhann Þorvaldsson nemi I Stýri-
mannaskólanum: — Ég hef ekki
átt nein samskipti við lögreglu-
þjóna. En ég held að þetta séu
ágætis menn sem komi vel fram
við samborgarana.
Kristinn Karl verlunarstjóri: —
Ég hef átt litil samskipti við hana.
Ég held mig innan ramma lag-
anna. Lögregluþjónar eru mann-
legir en starf þeirra er erfitt. Og
þeir eru oft dæmdir of harkalega.
Svanhvlt Magnúsdóttir húsmóö-
ir: — Min reynsla af lögreglunni
er ágæt. Ég hef reyndar haft litið
af henni að segja. Ég hef bara
verið tekin einu sinni og það var
fyrir að keyra á ljóslausum biln-
um.
örlygur Sigurðsson listmáiari: —
Þeir geta stungið manni inn ef
maður segir frá eigin reynslu, af
lögreglunni. Þegar snúið var upp
á hendurnar á manni og maður
gerður óstarfhæfur við að mála.
Erla Þorvaldsdóttir nemi: — Min
reynsla af lögregluþjónum er
engin. Þó ég hafi enga persónu-
lega reynslu af þeim hef ég hreyrt
ýmsar sögur af þeim og ekki allar
fallegar.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Rhodesiubúar
þakka íslendingum
Viggó Oddsson skrifar frá Jó-
hannesarborg:
Þorskastrið
á þúrru landi
Eins og lesendur Visis hafa
sennilega tékið eftir, eru núna
tiu ár siðan Rhodesia sleit sam-
bandi viö Bretland og lýsti yfir
sjálfstæði eftir endalausan drátt
af hálfu breta, sem settu á land-
ið hafnbann og hinar fjölbreyti-
legustu refsiaðgerðir sem um
getur.
Eins og i þorskastriöunum i
kringum Island, urðu aðgerðir
breta einungis til aö efla sam-
hug, innlendan iðnað og
þjóðernistilfinningu. Ian Smith
og flokkur hans áleit málefni
landmsnna stófnt i voða með
stefnu breta, þar eð i landinu
búa 2 ólikar svertingjaþjóðir,
um 5milljónir á móti 250 þúsund
hvitum. Eöa einn á móti 20
svörtum.
Kongó og Angóla
Það hefur aldrei verið ljósara
en i dag hve skynsamleg stefna
Smiths hefur verið, þvi hvar-
vetna þar sem ólikar
svertingjaþjóðir hafa fengið
sjálfstæði innan sama lands-
hluta, hefur flest farið aflaga,
þar til ein þjóðin hefur náð að
undiroka þær minnimáttar oft
eftir stórkostlegar eyðilegging-
ar og manndráp.
Á þessum áratug hefur ætið
verið leitað að framtiðarlausn
vandamála Rhodesiu, leit að
svertingjum með ábyrgðartil-
finningu og fylgi til að stjórna
sinu fólki og tryggja frið og
eignarétt ásamt lögum og rétti
fyrir hvita menn.
-ísland og Rhodesia
Vegna refsiaðgerða breta
gegn rhodesiubúum er erlend
verslun ekki eins mikil og áður
var. Landið er fullt af málmum,
hráefnum og matvörum, senni-
lega eitt af þeim fáu i Afriku.
Það er á fárra vitorði hve
uppurin lönd heimsins eru af
þessum gæðum sem öllum
standa til boða i Rhodesiu, með
frjálsri verslun.
Ótrúlega margir Islendingar
hafa heimsótt landiö og dvalið
þar I lengri og skemmri tima,
notið fegurðar þess og alúðar og
gestrisni landsmanna af öllum
litarháttum.
Þar eð ég sá um að halda Nor-
ræna félaginu i Rhodesiu gang-
andi kom það oft i minn hlut á
timabili að huga að áriðandi
málefnum milli landanna, t.d.
Mr. Clifford Dupont, forseti
Rhodesiu
ferðamála og fyrirspurna.
Margir islendingar hafa einnig
komið á framfæri samúð sinni
viö málstað Rhodesiu.
Þakkir frá
forsetanum
Forseti Rhodesiu sendi mér
nokkrar linur i vikunni, og bað
að „koma á framfæri þakklæti
allra rhodesiubúa til þeirra á ís-
landi sem stutt hafa málstað
Rhodesiu og árnaðaróskum.”
,,Þér megið fullvissa þá um,
að þeir erfiöleikar sem viö höf-
um mætt og sigrast á, á siðast-
liðnum áratug, hafa einungis
styrkt ákvörðun okkar, um að
hvika ekki frá takmarki okkar
um aö vernda okkar braut til
menningarþjóðfélags, I and-
stæðu við það ástand sem rikir i
svo mörgum löndum i dag.”
Þannig ljóðaði kafli i bréfi
Cliffords Duponts forseta.
Greiðir borg-
in ekki drótt-
arvexti af
vanskila-
skuldum?
G.G. hringdi:
„Mér leikur forvitni á að vita
hvort reykjavikurborg greiði
dráttarvexti af sinum vanskila-
skuldum, eins og aðrir, verða að
gera.
Ef svo er ekki þá langar mig
til að vita hversvegna ekki.
Gilda einhver önnur sjónarmið
þegar borgin á i hlut?
Visir fékk þær upplýsingar
hjá Gunnlaugi Péturssyni
borgarritara að borgin greiðir
enga dráttarvexti af þvi að hún
stendur I skilum við sina við-
skiptaaöila!
Að visu sagði Gunnlaugur að
sum verslunarfyrirtæki sem
borgin hefði vöruúttekt hjá,
hefðu byrjað á þvi I fyrra að
senda borginni bréf þar sem
greint væri frá þvi að yrði tekin
vöruúttekt ekki greidd innan á-
kveðins tima, yrðu reiknaðir
dráttarvextir.
Borgin svaraði þessum bréf-
um á þá leið að hún greiddi enga
dráttarvexti, vegna svona
einhliða yfirlýsinga, ef ekki
hefði verið samið um það þegar
vipskiptin áttu sér stað.”
Sigurlinni Pétursson,
Hraunhólum 4 i Garða-
hreppi sendi okkur
þetta:
NORNAGALDUR
Fylkjum liði fram á Ægi,
frelsum vora ættarslóð
uns að ránum öllum lægir
ætlum við aö kynda glóð
nomagaldurs nótt sem daga
nýtist engum rán úr sjóð.
Allar nornir láðs og laga
leika óttaþrungin hljóð.
Framúr svölu sjávarróti
syngja nornir ránaróð
gandreiða á gjörningsmóti
geisar is i jötunmóð
Ekki þessum ógnum biðið
eftir, þvi að vikingsblóð
beitir sé i baldið striðið
bjóðið visku innri glóð
svo að ekki nornaniðið
nái ykkur, menn og fljóð.
Veiðiþjófar varist striðið
Válegt biður ykkar tjón
undir sjávar nornaniðið
nemur burtu soddan flón.
Fornra vætta freistið ekki
svo fárleg geisi veðraspjöll
sem að ykkar sálir svekki
svo að lifsins von er öll.
Sigurlinni Pétursson
rnKsnr-tin-rAnr-t-tru.
mihnr-Mj.hnitTFÁ-hiýh
rm-tt-Ánnr-xrrnr-rnnÁ.
nrnr-nhfhrim-rrti’
mtr-rrrhih-hrtMsn-Nfrr
mtht-ttrnr-ÁtMÁ-h»xi>,
trni-mm-ttm-tHtrt
nKt-ntt-nntrn-tnœt.
nt TT-nÁ-htnrn-h^mmti
hitnt-mtiÁ-Átm-nh
rtWÁtnt-tmmim-rtm,
nihtÁ-ih-H?*tnt-r*h.
t«i-nhhnr-$nnr-mit,
miÁrtn-tt-tKitrhtm
Mtr-hU-ntrnh-htÁinh
tefitn-tihÁrvttÁi-rrtt,
hht-tM«i-mtttitih
tn-h«r)Á-rttt-Ar-rr9*t.
Fæst lesum viö vist rúnir, en Siguriinni sendi okkur L Þ''
ljóöiö þannig, og svo þessa þýöingu á þvi. Myndirn- /' ÞV.*
ar koma llka frá Siguriinna.