Vísir - 03.12.1975, Blaðsíða 10
10
Þjófarnir brjóta
aldrei upp pen-
ingaskópan
— heldur eldvarnaskápa, sem
eru alls ekki þjófheldir
Miðvikudagur 3. desember 1975. VISIR
Pannig var öryggisskápurinn útleikinn sem brotinn var upp á Þetta er hinn eini og sanni peningaskápur, sem Einar stendur við. Skápurinn er 350 kg. á þyngd, og á að
bæjarskrifstofunum á Seltjarnarnesi. í skápnum voru geymdir standast allar innbrotstilraunir, og að eldur ieiki um hann ilangan tima. Verðið er i kringum 185 þúsund
peningar, þótt hann sé ekki þjófheldur — eins og eigendurnir fengu krónur. Ljósm. BG.
bitra reynslu af.
Liklega hafa islendingar nú
oröið litla trú á peningaskápum.
Oft á ári birta dagblöðin fréttir
um innbrot i fyrirtæki, og birta
myndir af sundurtættum
pcningaskápum. Nákvæmar
upplýsingar fylgja með hversu
miklu hafi verið stolið, og
hvernig þjófnum (þjófunum)
lókst að brjóta upp peninga-
skápinn með kúbeini og sleggju.
Nýjasta dæmi þessa er
innbrotið á Seltjarnarnesi.
En eru þetta virkilcgir
pcningaskápar scm þjófarnir
hafa brotið upp og stolið öllu
steini léttara úr? Og ef svo er, er
þá ckki vita gagnsláust að hafa
pcningaskáp, ef alltaf tekst að
brjóta þá upp?
,,Það er meinið, að fólk gerir
ekki greinarmun á þvi að
peninga- og skjalahirslur fyrir-
finnast i þremur meginþáttum.
Það eru skjalaskáparnir, sem
hvorki eru þjófheldir né eld-
traustir, eldtraustu skáparnir,
og svo þjófheldu skáparnir, sem
oftast eru þá einnig eldtraustir.
Fólk heldur, að bara orðið
peningaskápur þýði að skápur-
inn varni gegn öllu utanaðkom-
andi”.
Þetta segir Einar Þ. Mathie-
sen, sem er stærsti seljandi
öryggisskápa hér á landi. Fyrir-
tæki hans, E. Th. Mathiesen hf. i
Hafnarfirði hefur selt öryggis-
skápa og aðrarskjalahirslur um
árabil.
Við báðum Einar að skýra
nánar hvernig þessi flokka-
skipting væri.
„Þessa venjulegu skjala-
skápa þekkja allir. Þeir eru
yfirleitt læsanlegir, en hvorki
eldtraustir né þjófheldir, það
þarf ekki mikla fyrirhöfn til að
brjóta þá upp.
Eldtraustu skáparnir eru
sterkbyggðir, og- einangraðir
með tilliti til þess að þeir geti
þolað að eldur leiki um þá i mis-
munandi langan tima. Þvi meiri
einangrun sem er, þvi meira er
eldþol þeirra.
Það eru yfirleitt þessir skápar
sem fólk sér uppbrotna á mynd-
um i blöðunum. Þeir eru ekki
byggðir með það fyrir augum að
standast sterk verkfæri inn-
brotsþjófa.
Þriðji flokkurinn er svo hinir
raunverulegu peningaskápar,
þeir einu sem hægt er að nefna
Ein gerð „peningaskápa”, sem
hefur litiö sést hér áður. Brús-
inn er steyptur niður i gólf, og
ofan á lionum er sterkt lok.
Hægt er að stinga dósum meö
verðmætum ofan i brúsann en
ómögulegt að ná þcim út aftur
sömu leið. Svo er hægt að fela
allt saman undir mottunni.
þvi nafni. Erlendis er skýr
greinarmunur gerður á þeim
skápum, og svo þeim sem að-
eins eru eldtraustir. Hér á
fslandi er þetta hinsvegar allt
kallað peningaskápar.
Þessir þjófheldu skápar eiga
að standast tilraunir til að
brjóta þá upp. Þeir eru auðvitað
öruggari eftir þvi sem.þeir eru
þyngri og þykkri
Peningaskápur er yfirleitt
a.m.k. tvöfalt þyngri en eld-
traustur skápur af sömu stærð.
Læsingin er vandaðri og varnar
byggingin i skápunum er
þannig, að borar og önnur hlið-
stæð verkfæri eiga ekki að kom-
ast i gegn.”
Stærsti misskilningurinn er
sá, að fólk heldur að ef skápur-
inn er úr járni, þá haldi hann
öllu”.
Einar sagði, að hann kallaði
sjálfur enga skápa peninga-
skápa, nema þá sem teldust
þjófheldir. Eldtraustu skápana
sagðist hann aðeins kalla
öryggisskápa.
„Oryggisskáparnir nægja
vissulega, ef i þeim eru ein-
göngu geymdir pappirar, sem
ekki hafa verðmætisgildi fyrir
þjófa. Menn kaupa oft öryggis-
skápa með það i huga að nota þá
aðeins sem eldvörn fyrir
pappira sem ekki þykja
verðmætir i augum þjófa. En
svo vill oft brenna við að meiri
verömæti séu geymd i skápun-
um.
Menn koma oft hingað til að
kaupa peningaskápa, en vex
verð þeirra i augum, og láta sér
þá nægja öryggisskápa. En
málið er bara það, að hjá mörg-
um aðilum er peningaskápur
jafn nauðsynlegur og öll venju-
leg skrifstofuáhöld.
Mér bregður oft illa við að
koma inn i fyrirtæki klædd
harðviði i bak og fyrir, og með
finustu skrifstofumublum,
en þegar kemur að geymslum
Þcssi öryggis-
skápur er enskur,
og aöeins gerður
til eldvarna.
llann heldur eng-
um þjófum.
fyrir verðmæta pappira, þá er
allt til sparað.
í mörgum skrifstofum i ný-
legu húsnæði er einmitt mikil
þörf á eldtraustum skjala-
geymslum. Húsin eru byggð á
súlum, með fullkominni loft-
ræstingu, sem virkar eins og ar-
in, ef eldur kemur upp. Mörg ný
hús eru að minu mati alls ekki
betr: með tilliti til eldvarna en
gömul hús.
Erlendis stefna fyrirtæki að
þvi að geyma pappira i svo full-
komnum eldvarna- og þjófa-
geymslum, að þrátt fyrir elds-
voða eða innbrot, geti þau strax
haldið áfram rekstri sinum af
fullum krafti.
Skáparnir geta skemmst, en
innihaldið er heilt”.
Rœtt við
Einar Þ.
Mathiesen,
stœrsta
seljanda
öryggisskqxi
hér ó landi
Einar sagði ennfremur, að
ólikt þvi sem gerist erlendis,
tækju tryggingafélögin hér litið
tillit til hvernig vörnum á
verðmætum innanhúss væri
háttað.
„Hér er enginn bónus veittur
fyrir að hafa traustar geymslur
undir verðmæti,” sagði hann.
Það vakti athygli okkar, að
enskur öryggisskápur sem var i
versluninni hjá Einari, var
merktur „Fireprotection only”,
þ.e.a.s. aðeins til eldvarna. Við
spurðum Einar hvort þetta gæfi
þjófum ekki visbendingu um að
slikan skáp væri einmitt ráðlegt
að reyna við, þar sem hann væri
ekki þjófheldur.
„Eiginlega þvert á móti,”
sagði Einar. „Þetta á að sýna
þjófunum, að i skáp sem ekki er
þjófheldur, sé heldur ekkert að
finna sem þeir geti gert sér
mat úr. Vandræðin eru bara þau
hér á landi, að menn freistast til
að geyma verðmæti i slikum
skápum.
Ég hef oft séð þau svör frá
eigendum slikra skápa, eftir að
þeir hafa verið brotnir upp, að
það hafi bara verið tilviljun að
peningar voru i þeim. Mig
grunar nú samt að menn noti
eldvarnaskápana oft til
geymslu á verðmætum. Meðan
svo er, halda þjófar auðvitaö
áfram að brjóta þessa skápa
upp.
Allir enskir skápar eru
merktir, m.a. til að fækka
tilraunum þjófa til að brjóta upp
skápa, sem engin verðmæti eru
i.”
Allflestir peningaskápr eru
nú með lyklum. Notkun „talna-
lása” hefur minnkað. Þó eru
margir stórir skápar sem hafa
saman báðar tegundir af
læsingum.
En hvað kostar þá öryggið?
„Meðalpeningaskápur sem ég
hef t.d. nú á lager kostar 185
þúdund krónur. Eldtraustu
skáparnir eru ódýrari. Fyrir-
tæki sem ætlar að leggja út að fá
sér kannski einn eldtraustan
skáp og annan sem er bæði
þjófheldur og eldtraustur, fær
þær hirslur fyrir svona 500
þúsund krónur,” sagðiEinarÞ.
Mathiesen að lokum.
— ÓH.