Vísir - 03.12.1975, Blaðsíða 7
VISIR Miðvikudagur 3. desember 1975.
D í BVIORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND Í MORGUN
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Loft-
árósir
W
a
Líbanon
ísraelskar herþotur
gerðu i gær loftárásir á
skotmörk i Libanon og
völdu sérstaklega staði,
þar sem Palestinuarab-
ar hafa aðsetur.
Almennt er litið svo á að
israelsmenn hafi viljað sýna að
þeir létu ekki bæla sig þótt þjóð-
frelsishreyfingin PLO hefði unnið
sigur á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
Herstjórnin i Tel Aviv sagði að
skotmörkin hefðu verið æfinga-
búðir og bækistöðvar skæruliða
araba.
Loftárásinni var svarað með
eldflaugaárásum og stórskota-
hrið á þrjú landamæraþorp Isra-
els.
t Libanon var rikisráðið kvatt
saman til fundar I morgun til að
ræða loftárásina sem Rashid
Karami forsætisráðherra kallaði
„villimannlega”. Sagði hann að
israelsmenn hefðu misst allt vald
á sér eftir ósigurinn hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Profumo
heiðraður
John Profumo, fyrrum varnar-
málaráðherra ihaldsflokksins
sem lenti I skömminni eftir vænd-
ishneykslið mikla fyrir tólf árum,
hefur aftur verið tekinn I sátt við
samfélagið og var i gær heiðraöur
af Elizabetu bretadrottningu.
Profumo, eins og menn minn-
ast, neyddist til að segja af sér
ráðherraembætti 1963, þegar
hann játaði að hafa logið að þing-
inu varðandi tengsl sin við
Kristinu Keeler gleðikonu, sem
hann hafði i fyrstu reynt að bera
af sér. — Það kom i ljós að vænd-
iskonan rekkjaði um þær mundir
einnig með hernaðarsérfræðingi
sovéska sendiráðsins i London.
Hneykslið hafði nær velt stjórn
Harolds MacMillans og ihalds-
flokksins.
Profumo neyddist til að hætta
öllum stjórnmálaafskiptum, og
hann og fjölskylda hans einangr-
uðust frá fyrri vinum og kunn-
ingjum. En hann steypti sér af lifi
og sál út i félagsstörf i East End,
fátækrahverfi London.
Fyrir þau störf veitti hennar
hátign honum CBE-orðuna I gær.
Pessi mynd var tckin úr ftugvél yfir lest-
inni sem liryftjuverkatnennirnir fimm
iláðu á sitt vald. Ef myndin prentast nógu
skyrt. sést dökkur dill á neöra horninu
Itægra megin við frantenda lestarinnar,
sem örin bendir á,. Er það lik lestarstjór-
ans.
X. . v ^ t ’ á
- . ...
zmmmm
.. ■
j
SIMAMYND AP I MORGUN
Með 45 gísla
á valdi sínu
Fimm hryðju-
verkamennn
rœndu járn-
braufarlest
í Hollandi
Lögregla og herlið
herti i morgun þann
hnút sem hún hefur
hnýtt um fimm vopn-
aða menn um borð i
lestarvagni einum i
Beilen i Hollandi.
Mennirnir hafa á valdi
sinu 45 gisla, allt lest-
arfarþega.
t morgun mátti sjá fimm
brynvarða bila aka að lestinni
og stansa ekki fyrr en 200 metr-
ar voru ófarnir að vagninum,
þar sem fólkið hefst við. — Alls
taka um 150 lögreglumenn og
landgönguliðar þátt i umsátr-
inu, en nokkur hundruð her-
menn eru til taks skammt
undan.
Þó er varast að styggja ræn-
ingjana sem þegar eru búnir að
taka tvo af gislunum af lifi.
Vörpuðu þeir likunum út úr lest-
arvagninum og létu siðan kúl-
unum rigna yfir þau, þar sem
þau lágu.
Ekkert hefur heyrst frá ræn-
ingjunum i nótt, en þeir höfðu
áður krafist langferðabils (án
sæta) til þess að flytja þá og
gislana á flugvöllinn i Amster-
dam, en þeir heimta jafnframt
að flugvél verði þeim þar til
reiðu til að flytja þá úr landi.
Lögreglan er ekki i nokkrum
vafa um að þarna eru að verki
Suður-Molukkar fra einni af
eyjum Indónesiu. Indónesia var
áður Austur-Indiur, ein af ný-
lendum Hollendinga, en þegar
þær fengu sjálfstæði gerðust
margirþarlendir innflytjendur I
Hollandi, einkanlega ibúar
Suður-Molucc, sem aldrei hafá
lynt við Indónesa.
Meðal þessa innflytjendahóps
i Hollandi hefur rikt megn
óánægja með nýja landið, og
öfgahópar hafa gert sig liklega
til alls að undanförnu til þess að
knýja yfirvöld til fylgis við kröf-
ur þeirra.
Hryðjuverkamennirnir tóku
lestina, þar sem hún var á leið
frá Groningen til Amsterdam. Á
stöðir.ni i Beilen þjöppuðu þeir
gislunum i tvo vagna, en
fimm farþeganna sluppu frá
þeim úr öðrum vagninum i
skjóli myrkurs.
Þeir sendu móður, sem var
farþegi i vagninum með dóttur
sina út með skilaboð til yfir-
valda þar sem til var tekið
hvers þeir krefðust.
Yfirvöldsegja að ekki komi til
greina að leyfa hryðjuverka-
mönnunum að yfirgefa land
með gisla i för.
Vilja setja 43 stór-
iðjuver í ríkisrekstur
Fjörutiu og þrjú helstu fyrir-
tæki skipasmiða- og flugvéla-
iðnaðar Bretlands verða sett und-
ir rikisrekstur samkvæmt stjórn-
arfrumvarpi sem verkamanna-
flokkurinn hefur lagt fram á
breska þinginu.
Meðal þessara fyrirtækja eru
British Aircraft Corporation sem
vann að smiði Concorde, Hawker
Siddeley sem hannaði Trident-
vélina, svo og stærstu nöfn skipa-
smiðaiðnaðarins, eins og Swan
Hunter, Camlell Laird, Vickers,
Vosper Thornycroft og An Yarr-
ow.
„Frumvarp þetta er móðgun
við lýðræðið,” sagði einn stjórn-
arandstæðinga, en bæði ihalds-
flokkurinn og frjálslyndi flokkur-
inn munu sporna gegn samþykkt
þess.
Hart í óri hjá
Sovétmönnum
Hagvöxtur Sovétrikj-
anna verður á næsta
ári með þvi allra
minnsta sem hann
hefur verið frá styrj-
aldarlokum, eftir
versta uppskerubrest
sem þar hefur orðið i
hartnær 30 ár.
Nikolai Baibakov hagstjóri
skýrðii frá þessu i áætlana-
skýrsiu sem hann flutti á vetr-
arþingi æðsta ráðsins en það
hófst i Moskvu i gær. — Hann
spáði þvi að aukning iðnaðar
yrðium 4,3% árið 1976, en fram-
leiðsla neytendavarnings mundi
aukast um aðeins 2.7%.
Skýrslur sýna að sovétmenn
hafa ekki verið svo svartsýnir i
áætlanagerö sinni siðan fyrir
strið.
Baibakov er sagður hafa verið
gagnrýninn i ræðu sinni þar sem
hann dró fram margt úr efna-
hagslifinu þar sem áætlanir
stóðust ekki. Hann kenndi
einkanlega um skorti á land-
búnaðarvörum.
Eftir þvi var tekið að Baiba-
kov gat að engu hver kornfram-
leiðsla hafi verið 1975, sem
væntanlega hefur þó verið
tiundað i þessum árlegu skýrsl-
um. Þykir það benda til þess að
hún hefði verið töluvert minni
en þær 160 miiljónir smálesta
sem spáð hafði verið. 160
milljónir vuruþó 25% minna en
sovétmenn höfðu vonast til. —
Hafi kornuppskeran brugöist
illa þarf engum getum að leiða
að þvi hvernig fariö hefur fyrir
viðkvæmari tegundum.
PRJONAR I SIG KIN-
VERSKU RÉTTINA ....
Að siö Kinverja varö Ford forseti aö neyta veisluréttanna meö
prjónum I kvöldveröarboöum hjá ráöamönnum I Peking þar sem
forsetahjónin eru gestir þessa dagana. — En eftir myndinni aö
dæma ferst honum þaö ekki ófimlega.
Forsetahjónin og dóttir þeirra Susan hittu Mao formann aö máli
I gær.