Vísir - 03.12.1975, Qupperneq 13
12
Miðvikudagur 3. desember 1975. vism
m
vism Miðvikudagur 3. desember 1975.
13
Stefán Gunnarsson var einn jafnbesti leikmaður Islenska liðsins I ieiknum við Noreg I gærkvöldi. Hann var eins og
klettur I vörn — og i sókninni átti hann þátt f mörgum|mörkum með þvi að „blokkera” fyrir skotmennina. Hann
skoraði líka sjálfur eitt mark og hér er það I uppsiglingu.
— Ljósmynd Einar.
„Ein vika í Danmörku
hefur lítið að segja"
„Ég er nokkuð ánægður með
fyrri hálfleikinn hjá mínum mönn-
um, en vil sem minnst tala um sið-
ari háifleikinn hjá þeim” sagði
hinn geðugi þjálfari norska lands-
iiðsins i handknattleik, Thor Nohr,
er við hittum hann að máli eftir
leikinn I gærkvöldi.
„Það sem gerði gæfumuninn i
siðari hálfleiknum var að islenska
liðið fékk að skora ódýr mörk i
byrjun. Vörnin hjá okkur opnaðist
illa og það var engin markvarsla.
Þar með komst islenska liðið á
bragðið og náði að jafna.
Ef þessi ódýru mörk hefðu ekki
komið á færibandi i upphafi,
hefðum við unnið stórt. Baráttan I
islenska liðinu var mikil i siðari
hálfleik og markvarslan frábær.
Við áttum við mýgrút af tækifærum
sem ölafur Benediktsson sá um, að
ekki urðu annað en tækifæri.”
Hvernig fannst þér islenska liðið
leika?
„Það lék eins og ég átti von á —
barðist allan timann og án skipu-
lags. Þetta er allt tilviljunarkennt
sem gert er, og vantar þvi sýnilega
samæfingu og fleiri leikkerfi sem
ganga upp.
Ég hef oft séð Islenska landsliðið
leika áður, og þetta var ósköp
venjulegt islenskt lið — hvorki
betra né verra en áður. En það má
áreiðanlega gera gottlið úr þessum
hóp, og ef þessir leikmenn ykkar
sem eru i Þýskalandi og Sviþjóð
koma I hann, getur þetta orðið
mjög gott lið með góðri samæf-
ingu.”
— Hvernig hafið þið æft fyrir
undankeppni ÖL?
„Við völdum liðið fyrir rúmu ári
og höfum sfðan æft einu sinni I viku,
og auk þess farið tvisvar I
æfingabúðir iSviþjóð. Þetta er ekki
nóg — það sýndi sig i þessum leik —
þvi að við þurfum að leika við pól-
verja I undankeppninni.
Hvernig lýst þér þá á æfinga-
undirbúning isienska liðsins fyrir
leikina við Júgóslaviu?
„Það er allt of litill undirbúning-
ur. Ein vika i Danmörku með allan
hópinn gerir sjálfsagt eitthvert
gagn, en það nægir ekki á móti
Júgóslaviu.”
Þá ræddum við við Harald Tyr-
dal — leikreyndasta mann norska
liðsins, sem er með 109 landsleiki
að baki og hefur m.a. leikið I
heimsliðinu. Hann hafði þetta um
leikinn að segja:
„Ég hef oft séð og leikið á móti
betra islensku liði en þessu. Það er
alltaf eins, og er eina liðið á
Norðurlöndum, sem enn leikur
þennan gamla „skandinaviska”
bolta, þar sem krafturinn og
keppnisskapið heldur þvi á lofti.
Það vantar mann eða menn i liðið,
sem stjórna þvi bæði i vörn og sókn.
Annars kom liðið mér á óvart i
siðari hálfleik — en þá vorum við
lika að gera sömu gömlu mistökin
hvaðeftir annað. Ölafur Benedikts-
son var mjög góður i markinu, og
bjargaði liðinu frá stórtapi og
einnig fannst mér þeir góðir, Páll
Björgvinsson og Stefán Gunnars-
son.”
Sænsku dómararnir voru á sama
máli og þessir tveir um leik is- ,
lenska liðsins i siðari hálfleik. „Það
var frábært að vinna upp 6 marka
forustu i siðari hálfleik” sögðu
þeir.
„Við dæmdum leik Islands og
Danmerkur á NM i fyrra, og liðið
sem lék þá var mun betra en þetta
liö. Það var mjög erfitt að dæma
þennan leik — hann var harður og
hraður, en samt ekki grófur. Áhorf-
endurnir voru stórkostlegir, og
ekkert að undra þótt útlendingum
þyki erfitt að leika og dæma hér á
landi eftir að hafa séð og heyrt I
þeim, eins og við gerðum nú I
fyrsta sinn.”
—klp—
gss
Óli Ben fór hamförum
en það dugði ekki til
Ólafur Benediktsson, mark-
vörður islenska landsliOsins I
handknattleik, fór hamförum i
landsieiknum við norömenn i
gærkvöldi — og hreinlega lokaði
markinu á köflum I siðari hálf-
leik. En það dugði bara ekki til,
norska liðið hafði sex marka for-
skot úr fyrri háifleik sem var
drjúgt veganesti og þvi tókst að
merja tveggja marka sigur i
ieiknum 17:19.
íslenska liðið var afar slakt I
fyrri hálfleik og virtust leikmenn
þess oftekki vita sitt rjúkandi ráð
gegn léttleikandi norðmönnum.
Sóknarleikurinn var i molum,
eins og best sést á þvi að liðiö
skoraði aðeins 7 mörk úr 27
upphlaupum. Norömönnum gekk
hins vegar allt i haginn,
leikfléttur þeirra gengu hvað eftir
KVENNA-
UPPGJÖR
í KVÖLD
(Jrslitaleikurinn i Reykjavíkur-
mótinu I handknattieik kvenna fer,
fram i Laugardalshöllinni i kvöld
og verður forleikur að siðari
landsleiknum á milli islands og
Noregs.
Liðin sem leika til úrslita eru
Fram og Valur, og reikna flestir
með að vaisstúikurnar gangi út af
eftir þann leik með sigurinn og
Reykjavlkurbikarinn.
Þær töpuðu einum leik i sjálfu
mótinu — fyrir Fram — en aftur á
móti tapaði Fram fyrir KR, svo
liöin skildu jöfn að stigum. Fram
varð fyrir þvi óhappi að missa
Arnþrúði Karlsdóttur úr liöinu
vegna meiðsla er hún hlaut i
starfi nú fyrir skömmu, en hún er
lögreglukona eins og mörgum er
eflaust kunnugt.
Dynamo Kiev
hélt jöfnu
í París!
Sovésku meistararnir, Dynamo
Kiev máttu láta sér nægja jafn-
tefli 1:1 I vináttuleik við franska
liðið Saint Germain I Paris I gær-
kvöldi.
Rússarnir náðu aldrei algjörum
yfirburðum á vellinum, eins og
búist hafði verið við — þurftu oft
að leika sterkan varnarleik til að
verjast ágengni frakkanna.
Komkov skoraði mark
Dynamo rétt fyrir lok hálfleiks,
eftir skemmtilega samvinnu við
Veremiev, en Dahleb jafnaði
fyrir franska liðið sex minútum
fyrir leikslok. —klp —
annað upp og gáfu annað hvort
mörk eða viti — og þeir voru
komnir með yfirburðastöðu i
hálfleik 7:13.
Norski þjálfarinn virtist greini-
lega halda að það væri aöeins
formsatriöi að ijúka leiknum og
setti varamarkvörðinn i markið i
siðari hálfleik i stað Pal Bye sem
hafði varið mjög vel. tslensku
leikmennirnir voru fljótir að
finna veikleika hans og á fyrstu 10
minútunum breytti þaö stöðunni
úr 7:13 I 14:15 — en þá kom Bye
aftur i markið. Islenska liðinu
tókst að jafna 15:15 og 16:16— en
norðmennirnir höfðu betur á
endasprettinum og sigruðu i
leiknum 17:19 eins og áöur sagði.
Islenska liðið sýndi i siðari hálf-
leik hversu það er megnugt þegar
sá er gállinn á þvi. Þar munaði
mestu um stórleik ólafs Bene-
diktssonar i markinu sem varði 14
skot I leiknum og það eitt hafði
næstum brotið norska liðið. Þá
átti Páll Björgvinsson og Jón
Karlsson mjög góðan leik — og
þeir Stefán Gunnarsson og Arni
Indriðason i vörninni.
Hjá norðmönnunum voru leik-
reyndustu mennirnir Pal Bye,
Allan Bjerde, Harald Tyrdal og
Inge Hansen bestir. Liðið er
, greinilega I góðri samæfingu,
enda hófst Ólympiuundirbún-
ingur þess fyrir 'ári og hefur þaö
æft saman slðan.
Mörk Islands: Páll Björgvins-
son 9 (4) viti, Ólafur Einarsson 4,
Jón Karlsson 3 og Stefán
Gunnarsson eitt mark.
Mörk Noregs: Alan Gjerde 7 (5)
viti, Per Furuseth 3, Erik Nessen
3, Inge Hansen 3, Harald Tyrdal 2
og Einar Hunsager eitt mark.
Tveim leikmönnum var visað
af leikvelli úr hvoru liði, ólafi
Einarssyni tvivegis, i 2 og 5
minútur, Árna Indriðasyni i 2
minútur — og þeim Ruue Steuer
og Kristen Gristingaas I 2
minútur hvorum.
Leikinn dæmdu sænskir dóm-
arar, Per Dahlöf og Lars-Eric
Jersmyr, og verður ekki annað
sagt en þeir hafi dæmt erfiðan
leik mjög vel.
Ef litið er á útkomu islenska
liðsins iheild, þá er hún afar slök.
Liöið átti 48 upphlaup i leiknum
sem gáfu 17 mörk — eða 35%
nýtingu. 1 fyrri hálfleik voru
upphlaupin 27 sem gáfu 7 mörk
eða 26% nýting — heldur skánaði
hún i siðari hálfleik. Þá voru
upphlaupin 21 sem gáfu 10 mörk
eða 48% nýtingu —sem er „sæmi-
legt”.
íslensku leikmennirnir áttu 19
skot á norska markið sem ýmist
voru varin eða fóru fram hjá og 12
sinnum tapaði liöið boltanum —
sem eru alltof margar villur hjá
landsliöi og þykir mikiö I 2. deild.
— BB
Söngkonan
settí nýtt
Norðurlanda-
met í sundi
Á miklu sundmóti sem háð var i
Stavanger i Noregi fyrir
skömmu, setti 18 ára gömul
stúlka nýtt norðurlandamet i 100
metra skriðsundi kvenna er hún
synti vegalengdina á 58,2 sekúnd-
um.
Þessistúlka heitir Lena Jensen
og er þekkt sundkona i Noregi, en
þó er hún samt öllu þekktari i
skemmtanabransanum, þvi að
hún er ein vinsælasta „poppsöng-
kona” norðmanna um þessar
mundir. —klp —
Þœr dönsku
steinlógu!
Heimsmeistarakeppnin i hand-
knattleik kvenna hófst i gær-
kvöldi I þrem borgum I Sovétrikj-
unum, og voru þar leiknir þrir
fyrstu leikirnir.
Aðalleikurinn þá var leikur
Sovétrikjanna og Austur-Þýska-
lands, sem fram fór i Kiev — eða
Kænugarði eins og sumir segja —
og lauk honum með jafntefli
10:10.
Tékkóslóvakia lék sér að Japan
og sigraði 21:13 (10:3) og
„frænkur” okkar frá Danmörku
fengu flengingu hjá þeim júgó-
slavnesku — 16:9 — eftir að hafa
aðeins verið tveim mörkum undir
I hálfleik. — klp —
■
tslenska liðið missti alveg ■
andlitið I fyrri hálfleik i leiknum J
I gærkvöldi. Þá var þessi mynd ■
tekin og er hún nokkuð táknræn [J
fyrir þann kafla leiksins, þvi að ■
þessi „andlitslausi” á gólfinu er J
islendingur Ljósmynd Ein- ■
ar. ■
■
■ ■■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
VÍTASPYRNUFLÓÐ Á
HIGHBURY í LONDON
— í jafnteflis leik Arsenal og Liverpool í gœrkvöldi
Arsenal og Livcrpool gerðu
jafntefli 2:2 á leikvelli Arsenal
Ilighbury i 1. deildinni ensku I
gærkvöldi. Liverpool er nú I 2.
til 4. sæti ásamt QPR og Man-
chester United með 26 stig, en
Derby hefur forystuna með 27
stig.
Leikurinn var einna likastur
vitaspyrnukeppui, Phil Neal
skoraði úr tveim vitum fyrtr
Liverpool og Alan Ball úr einu
fyrir Arsenal og þannig var
staðan þar til tvær minútur voru
til leiksloka að Brian Kidd tókst
að jafna fyrir Arsenal, með
fallegu skailamarki.
Liverpool hefur nú tapað fjór-
um stigum úr þrem siðustu
leikjum — þrem heima, gegn
Coventry og Norwich og I gær
gegn Arsenal.
Þá fór fram einn ieikur I 3.
deild, Walsall og Sheffield Wed„
gerðu jafntefii 2:2.
Bresku blöðin skýröu frá þvi i
gær aö Leighton James sem
Derby keypti frá Burnley i
siðustu viku fyrir 300 þúsund
pund mætti ekki leika með sinti
nýja félagi fyrr en eftir þrjár
vikur. Þaö þýöir að James fær
ekki að leika fyrr en 20.
desember þá væntanlega gegn
Sheffield Utd. og missir þvi úr
tvo næstu lciki — sem eru gegn
Birmingham og QPR.
—BB
•oooooooooooooooooooooooo•
SKIÐA-
jakkar
SKIÐA
huxur
SKIÐA
skór
SKIÐA-
hanzkar
SKIÐA-
gleraugu
SKIÐA-
stafir
Aldrei
meira
úrval
Jk Póstsendum
§P0RTVAL
Hlemmtorgi — Simi 14390
OOOOOOOOOOO0OOOOOOOOOOO®'
)®(