Vísir - 13.12.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 13.12.1975, Blaðsíða 8
8 visir Útgcfandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson Fréttastjóri erj. frétta: Guðmundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. simi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasöiu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Við höfum betur, en töpum upplýsingastríðinu Ofbeldisaðgerðir breta innan landhelgi Islands hafa gefið tilefni til stórkostlegrar pólitiskrar sókn- ar af okkar hálfu á erlendum vettvangi. Ihlutun breta i islenska löggæslu innan islenskrar landhelgi er alvarleg ögrun við fullveldi íslands. Þennan veika blett þurfum við að nota i þvi skyni að þvinga breta til undanhalds. í þessu efni sem öðrum skiptir það hins vegar sköpum, að koma réttum upplýsingum á framfæri. Við höfum haft betur i átökunum við breta á miðun- um umhverfis landið, en við höfum á hinn bóginn tapað upplýsingastriðinu. Þetta er dapurleg stað- reynd, sem ber vott um skilningsleysi stjórnvalda á þessum þýðingarmikla þætti. Hvort tveggja er, að stjórnvöld hafa staðið illa að almennri kynningu á málstað íslands og mjög slæ- lega hefur verið gengið fram við að koma út upplýs- ingum um atburði, sem gerst hafa á miðunum. Fréttir af átökum varðskipa við breska landhelgis- brjóta og bresk herskip hafa alla jafna borist fyrst út hingað frá Bretlandi. Seinagangur Landhelgis- gæslunnar við að koma út tilkynningum um þessa atburði er með eindæmum. Fréttamenn hafa ekki fengið leyfi til þess að vera um borð i varðskipunum og fylgjast með þvi sem er að gerast á miðunum. Fréttamenn fengu ekki einu sinni að fara um borð i varðskipið Þór i fyrradag og ræða við áhöfn skipsins eftir atlögu bresku dráttar- bátanna. Þessi kynlega afstaða æðstu stjórnar Landhelgis- gæslunnar hefur leitt til þess að réttar upplýsingar um þessa atburði hafa komið allt of seint fram. Breskar fréttaskýringar eru látnar móta almenn- ingsálitið erlendis að þvi er virðist með fullum vilja stjórnvalda. tslendingar hafá átt hauk i horni á fréttastofu breska útvarpsins, þar sem er Mik Magnússon. Hann hefur dvalið hér á landi að undanförnu og á miklar þakkir skildar fyrir vel unnin störf á þessu sviði. Án nokkurs vafa hefði hann getað unnið is- lenskum málstað meira gagn, ef hann hefði ekki rekist á veggi kerfisins hér eins og aðrir frétta- menn. Þá er einnig ljóst, að sendiráð Islands hafa fengið mjög takmarkaðar upplýsingar að heiman. Á það bæði við um stefnumörkun og fréttir af einstökum atburðum. Sendiherra íslands i London hefur t.a.m. þrásinnis átalið opinberlega, hvernig að þessum málum hefur verið staðið. Úr þessu þarf að bæta þegar i stað. Við getum ekki látið það viðgangast öllu lengur, að bretar rangtúlki fyrir umheiminum átökin á miðunum hér við land. Fréttaskrif erlendis móta ekki aðeins álit almennings, heldur hafa þau mikil áhrif á afstöðu stjórnmálamanna. Við þurfum að leita fulltingis annarra þjóða til þess að knýja breta til undan- halds. Einmitt fyrir þær sakir er brýnt að koma út réttum upplýsingum af átökunum þegar i stað. t sjálfu sér á að vera auðvelt að koma þessum atriðum i lag, ef vilji er fyrir hendi. Stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir þvi, hversu miklir hagsmunir eru hér i húfi. Laugardagur 13. desember 1975. VISIR Umsjón: GP Sara Moore við handtökuna, andartaki eftir aö hún haföi skotiö að Ford Bandarikjaforseta Skýtur sér á bak við geðveik■ ina Helsta vörn Söru Jane Moore, sem var ákærð fyrir tilraun til að myrða Ford forseta, felst í því, að hún hefur verið úrskurðuð geðveik af sál- fræðingum og óábyrg gerða sinna að sögn verj- anda hennar. Lögfræðingurinn segir, að hún muni ekki bera það við að neita að hafa skotið 38 kaliber skamm- byssukúlu að Ford frá St. Francis hótelinu í San Francisco þann 22. september sl. Hin 45 ára gamla Moore er utanveltu i þjóðfélaginu. Hún hefur verið gift fimm sinnum. Ef kviðdómurinn kemst að þeirri niðurstöðu, að hún hafi vel vitað hvað hún var að gera er hún skaut á Ford, á hún yfir höfði sér lifstiðarfangelsi. En verjandinn telur hana hafa góða möguleika, ef hún heldur þvi stattog stöðugt fram, að hún hafi ekki vitað hvað hún var að gera. Var ekki með sjálfri sér En til sönnunnar hinu gagn- stæða eru leidd fram augnvitni, sem sáu hana lyfta nikkelhúð- aðri skammbyssu með báðum höndum, auk vitnisburðar leyniþjónustumanns nokkurs, sem yfirheyrði hana, og fékk fram játningu hennar um að hafa hleypt af skotinu. James Hawitt verjandi frú Moore, segist munu kalla á sál- fræðinga til þess að staðfesta framburð hennar. Einnig segist hann ætla að hafa samanburð við ævi hennar og fyrri geð- truflanir, og þó einkum það, hve háð hún virðist öðrum. „Það mun hrifa”, sagði Hewitt. Uppljóstrari FBI Til þess að sanna, að hún væri ósjálfstæð i hugsun, mun hann benda á FBI fékk hana til að ljóstra upp um byltingarsinnaða vini sina. En við réttarhöldin mun margt koma fram, sem bendir á samhengi milli frú Moore og dagblaðaerfingjans Patriciu Hearst. Frú Moore kom litið eitt við sögu i tilraununum i fyrra til að hafa upp á ungfrú Hearst, sem nú stendur frammi fyrir rétti ákærð fyrir þátttöku i vopnuðu ráni. Frú Moore vann i þágu mat- væladreifingar þeirrar, sem Randolph Hearst setti á fót til að fá dóttur sina látna lausa. Þá var það, sem FBI fékk hana til að fylgjast með glæpa- manni nokkrum, sem Hearst trúði að gæti visað þeim á dóttur hans. Starf frú Moore var, að sögn timaritsins Rolling Stone, var að gera FBI viðvart ef áður- nefndur maður aðhafðist eitt- hvað grunsamlegt. Þá gat alríkislögreglan skorist i leik- inn. En frú Hearst sem var á báð- um áttum varðandi hollustu sina við FBI og vináttu sinnar við undirheimana, játaði hún væri uppljóstrari FBI en einnig lét hún Hearst vita af sambönd- um mannsins. ,,En þá varð fanginn frv. dauðadæmdur”, sagði Rolling Stone, þvi að skömmu siðar var hann myrtur i San Francisco. Fékk ekki frið I viðtali i fangelsinu eftir handtöku hennar, sagði frú Moore, að hún hefði verið svo rugluð vegna þess fjandskapar, er vinir hennar fyrri sýndu henni, að henni fannst hún hreinlega verða að fremja eitt- hvað ofbeldisverk til að fá frið i sálina. „Það koma þeir timar, sem manni finnst ekkert mark á manni tekið, nema maður miði byssu á einhvern”, sagði hún i viðtalinu. Einnig mun koma fram við réttarhöldin, hvort frú Moore hafði orðið fyrir áhrifum frá tilræði Lynne „Squeaky” Fromme, sem miðaði byssu á forsetann þann 5. september. Hún biður nú dóms. Hringdi fyrst Frú Moore festi kaup á 44’ kaliber skammbyssu i miðjum september, sagði byssusali sá sem FBI hafði tal af. Hún hafði einnig samband við lögregluna i San Francisco, og sagðist ætla að „reyna kerfið” við heimsókn Fords. Vegna þess simtals var byss- an tekin af henni. En yfirvöldin slepptu henni, vegna þess hve hjálpleg hún hafði verið alrikis- lögreglunni. Næsta dag fór hún aftur til byssusalans, keypti 38’ kaliber skammbyssu og hélt til fundar við Ford.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.