Vísir - 13.12.1975, Qupperneq 24
Laugardagur 13. desember 1975
Kveiktu bál
fyrir utan
verslunardyr
Alltaf virðast ein-
hverjir hafa þörf fyrir
að hrekkja náungann
eða vinna einhver spjöll.
Snyrtivörubúðin i
Völvufelli í Breiðholti
varð fyrir barðinu á
þeim í gærmorgun. Um
klukkan 11 tóku strákl-
ingar sig til og kveiktu
eld fyrir utan dyrnar að
versluninni.
Líklega hafa þeir ætl-
að að varna fólki inn-
eða útgöngu en eldurinn
var fljótt slökktur.
Spjöll unnin
ó gœsluvelli
Gæsluvöllur rétt við
Hólabrekkuskóla fékk
líka sinn skammt. í gær-
morgun þegar gæslu-
konur komu á vettvang
höfðu spjöll verið unnin
á vistarverum þeirra, og
það gert um nóttina eða
kvöldiðáður. —EA
Kveikt á jóia-
trénu á Austur-
velli á morgun
Kveikt .verður á jólatrénu á
Austurvelli á morgun, sunnu-
dag, klukkan fjögur. Tréð er
gjöf frá Oslóborgarbúum til
reykvikinga og verður afhent
af forseta borgarstjórnar
Oslóborgar Brynjulf Bull, en
kona hans Ruth Bull mun
kveikja á trénu. Borgarstjóri
mun veita trénu viötöku fyrir
hönd borgarbúa.
Athöfnin á Austurvelli hefst
klukkan hálf fjögur með leik
Lúðrasveitar Reykjavíkur, en
lýkur með þvi að Dómkórinn
syngur jólasálma.
Barnaskemmtun verður á
Austurvelli eftir að kveikt hef-
ur verið á trénu.
Kynningar-
fundur hjá
AA í Keflavík
AA-félagar i Keflavik ætla
að halda opinn kynningarfund
að Vik, samkomusal verka-
lýðsfélaganna að Hafnargötu
89 i Kcflavik, sunnudaginn 14.
des. nk. kl. 17.
A þessum fundi verður leit-
ast við að gefa sem sannasta
mynd af starfsemi samtak-
anna.
Gestur fundarins verður
séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson.
Allir þeir, sem áhuga hafa á
að kynnast þessum samtök-
um, eru velkomnir á fundinn.
Kaffi fá þeir áreiðanlega lika.
—VS
- -
Þyrluskýlið á Þór er illa útleikið eftir áreksturinn. Skipið er þó vel sjófært og er farið aftur til gæslustarfa.
2000 tonno feriíícið sigldi
ó okkur ó 16 mílna hraða
sagöi Helgi Hallvarðsson, skip.
herra á Þór í viðtali við Vísi
— Það voru hrikaiegir skruðningar þegar dráttarbátarnir sigldu á
okkur á fullri ferð, sagði Helgi Hallvarðsson, skipherra á Þór, við
VIsi I gær. i fyrstu ásiglingunni hafði ég ekki einusinni tfma til að
hringja aðvörunarbjöllunni til að vara mannskapinn við. Þeir
þeyttust llka sitt á hvað við höggið. Þetta er bein árás af Bretanna
hálfu og mér virðist eftir á sem þeir hafi þarna veitt okkur I gildru.
— Þetta byrjaði þannig að við toginu og hélt til hafs. Við
vorum að koma út frá Seyðis-
firði. Þar vorum við að kanna
einkennileg dufl, sem reyndust
leifar af gamalli kafbáta-
girðingu. Við sáum dráttarbát-
ana þrjá i mynni Seyðisfjarðar.
Einn þeirra var Star Aquarius
og hann virtist vera með
Lloydsman í togi. Sá þriðji var
að fylgjast með. Þetta var 1,9
mllur frá landi.
Sleppti og hélt til hafs
— Þegar við nálguðumst
sleppti Star Aquarios dráttar-
sigldum upp að hliðinni á hon-
um, gáfum stöðvunarmerki og
drógum úr hraðanum. Það var
skammt á milli skipanna og
skyndilega sveigði hann og
keyrði inn i hliðina á okkur.
Þetta gerðist svo snöggt að við
höfðum ekki tima til að hringja
út áhöfnina.
Lloydsman á vettvang
— Rétt i þvi að við erum að
átta okkur eftir áreksturinn
verðum við varir við að Lloyds-
man er kominn að bakborðs-
hliðinni á okkur. Það var aldrei
langt á milli skipanna og
Lloydsman gengur sextán
milur, svo hann var ekki lengi
að komast að okkur.
— Við höfðum engan tima til
að vikja okkur undan, enda ekki
á mikilli ferð. Það skipti þvi
engum togum að þetta 2000
tonna ferliki brunaði inn i
hliðina á okkur á fullri ferð.
Fallbyssan i notkun
— Nú það var rifiö ofanaf
byssunni I snatri og ég lét skjóta
púðurskoti að honum, en hann
kom þá aftur inn i siðuna á okk-
ur, en við vorum ekki búnir að
ná upp neinni ferð. Ég sendi þá
til hans skilaboð á örbylgju um
að ef hann ekki stöðvaði, myndi
ég skjóta kúluskoti á hann. Þá
var hann kominn aö stjórn-
borðshliðinni og auðséð að hann
ætlaði ekki að hætta.
— Eg lék þá skjóta einu kúlu-
skoti fyrir ofan hann enn hann
lét sér ekki segjast. Ég lét þá
skjóta öðru og það mun hafa
farið i bóginn á honum.
Þór var skipað
að hætta
— Við vorum alltaf á útleið
meðan á þessu stóð og þegar hér
var komið leik vorum við
komnir á móts við þriggja milna
mörkin. (Landhelgin er þrjár
milur en tollalandhelgi fjórar).
— Þá fengum við skipun um að
hætta og snúa til lands. Við fór-
um þá inn á Loðmundarfjörð til
að kanna skemmdirnar.
Liklega gildra
— Heldur þú Helgi að þetta
hafi verið gildra?
— Já, ég hallast helst að þvi.
Togararnir voru þarna ekki
nærri. Ef Dráttarbátarnir hefðu
leitað i var frá miðunum hefðu
þeir átt að vera við Langanes.
Þeir vissu auðvitað að við vor-
um á Seyðisfirði, og ég býst við
að þeir hafi ætlað að nota tæki-
færið til að ná sér niðri á okkur.
Þeir höfðu hreinlega ekkert
þarna að gera annað. —ÓT.
TVEIR TVEGGJA
ÁRA FRÁ HÖFN
Tveir snotrir og skemmtilegir þvottabirnir eru komnir
Ií hóp dýranna i Sædýrasafninu i Hafnarfirði. Þessi fall-
egu grey koma úr dýragarðinum í Kaupmannahöf n. Þar
keypti Sápugerðin Frigg birnina og gaf þá Sædýrasafn-
inu. — Þeir eru tveggja ára gamlir og fá að vera inni í
húsi f yrst um sinn, en síðar er þeim ætlað að vera úti.
Hvernig eigum við
að trúa Gœslunni?
— spyrja breskir fréttamenn
— Hvernig I ósköpunum eigum
við að trúa islensku Landhelgis-
gæslunni, sagði breskur frétta-
maður við einn af fréttamönnum
VIsis I gær. — Hún skammtar
upplýsingar eins og bandarlska
leyniþjónustan. Blaðamaður Vis-
is reyndi að bera hönd fyrir höfuð
Gæslunnar og kvaðst ekki hafa
reynt hana að beinum ósannind-
um.
— Það er varla von. Þið fáið
ekki tækifæri til þess, var svarið.
Hann sagði að breskum frétta-
mönnum þætti mjög tortryggilegt
leynimakk Gæslunnar. Breskir
fréttamenn fengju að vera að vild
um borð I herskipum og dráttar-
bátum og senda þaðan fréttir
hindrunarlaust.
islenskir fréttamenn fengju
hinsvegar ekki að fara um borð „i
ykkar eigin varðskip”. — Ekki
einusinni til,að fá fréttir af at-
burðum eins og út af Seyðisfirði.
— Ilvaða tryggingu hafið þið fyrir
að þeir séu ekki að ljúga að ykkur
lika? Blaðamönnum Morgun-
blaðsins var bannað að fara um
borð I Þór i Loðmundarfirði og
sömuleiðis fréttamanni BBCsem
þangað kom. Var hann furðu lost-
inn yfir þeirri ráðstöfun. _óT.
26 árekstrar
á 12 tímum
Lögreglan hafði í nógu
að snúast vegna
árekstra í gærdag. 26
árekstrar urðu í Reykja-
vík á 12 tímum, eða frá
því klukkan 6 í gær-
morgun, til klukkan að
ganga 7 um kvöldið.
Sem betur fer urðu þó engin
slys á fólki, en að sjálfsögðu
lét margur billinn á sjá.
—EA