Vísir - 30.12.1975, Síða 1
65. árg. — 292. tbl. — 1975.
Þriðjudagur 30. desember
Vísir óskar landsmönnum
öllum farsœldar
á komandi árí!
tfMHID
MMTEiNl
— sjá íþróttaopnu
„Held það hafi fengið
menn til umhugsunar"
GEIRSSYNI
DUNDEE
Á EFTIR
Skátar biðja um
lögregluaðstoð
við flugeldasölu
Hér er hópur diplómata frá Afriku að lilýða á mjög alvarlega
ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóöanna. Einn þeirra licfur
þó orðið svo heppinn að ná i útvarpsstöð, sem er að senda fréttir
af skeiðvellinum. Það litur út fyrir að hestinum lians gangi vcl.
Þetta erein af teikningum meistara Luries sem bregður á leik
i blaðinu í dag og birtir okkur myndsjá frá aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna. —Sjábls.4-5
— sagði María
Haraldsdóttir, sem
vann ritgerðarsam-
keppni kvennaórsins
Maria Haraldsdóttir heitir
hún þessi unga stúlka sem
myndin ér af hér til hliðar. Hún
er nýkomin úr vikuferð til New
York þar sem hún skoðaði aðal-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna.
Ferð þessa fékk hún i verðlaun i
ritgerðarsa m keppni sem
menntamálaráðuneytið efndi til
i tilefni af kvennaári SÞ.
Maria er 18 ára reykvikingur
og stundar nám við Lindargötu
skóla þar sem hún er á fyrra ári
i uppeldis- og hjúkrunarkjör-
sviði.
,,Mér fannst óskaplega gam-
an að fá þetta tækifæri til að
skoða aðalstöðvar Sameinuðu
þjóðanna innan veggja,” sagði
Maria þegar blaðamenn Visis
heimsóttu hana i morgun.
,,Einna mest þótti mér þó til
koma, að ég hlýddi á fund i
öryggisráðinu þegar málefni ís-
lands voru tekin þar fyrir. Þá
kynntist ég blaðamennsku örlit-
ið þegar ég fylgdist með Elinu
Pálmadóttur þegar hún var einn
morguninn að senda telex-frétt-
ir til islands.”
Þegar við spurðum hana út i
efni ritgerðar hennar kvað hún
hana hafa fjallað almennt um
stöðu konunnar i þjóðfélaginu —
hvernig hún hafi markast af at-
vinnuháttum hverju sinni.
Aö endingu spurðum við hana
hvernig henni fyndist hafa til
tekist að kvennaári.
,,Ég held að það hafi vakið
menn til umhugsunar. Það náði
auðvitað takmarki sinu. 24.
október.”
,,Ég held,” sagði Maria ,,að
jafnréttisbarátta kvenna sé
undirstaða alhliða jafnréttis-
baráttu.”
Um leið og við kvöddum bað
Maria okkur fyrir þakkir og
kveðjur til allra sem stóðu að
ferð hennar.
—vs
Hjálparsveit skáta
hefur ákveðið að biðja
um lögregluvörð við
flugeldasölu sina i Ár-
bæ eftir að fram hafa
komið kvartanir frá
ibúum, um ónæði.
— 011 okkar leyfi eru i lagi, og
við gætum fyllsta öryggis, sagði
Tryggvi Páll Friðriksson 'fram-
kvæmdastjóri við Visi i morgun.
Borgarlæknir hafði samband
við okkur i gær til að ræða þetta
mál, og ég sagði honum þá að
við myndum ekki fara úr hús-
næðinu sjálfviljugir.
— Hinsvegar viljum við auð-
vitað allt til vinna að ibúar i
grennd við okkur verði ekki fvr-
ir ónæði. Þessar kvartanir
komu okkur á óvart, en við
munum nú herða eigin eftirlit og
fara fram á aðstoð lögreglunn-
ar. Ég vona að þarmeð sé málið
afgreitt. Visi tókst ekki að ná i
borgarlækni i morgun til að fá
hans umsögn.
—ÓT.
Sofa vœrt í
stórhríðinni
„Það er vitlaust veð-
ur og grenjandi stór-
hríð hérna. Ég held að
fólk á flestum bæjum
sofi núna, svona meðan
skjálftarnir eru ekki
magnaðir.”
Þetta sagði Kristveig Arna-
dóttir á simstöðinni að Lindar-
brekku i Kelduhverfi um tiu-
leytið i morgun.
Hún sagði að allsnarpur kipp-
ur hefði komið um klukkan 3.40 i
nótt. Sá sem var á vakt i sim-
stöðinni taldi að kippurinn væri
u.þ.b. 4 stig að stvrkleika. í
Kelduhverfinu er fólk orðið svo
vant jarðskjálftum. að það finn-
ur nokkuð glöggt styrkleikamun
skjálftanna.
Annar minni skjálfti kom
klukkan 5.10 i morgun.
Ennþá er vakt á simstöðinni
allan sólarhringinn á Lindar-
brekku. Simstöðvarstjórinn,
Gunnar Indriðason, Kristveig.
og sonur þeirra skiptast á um
vaktirnar. Kristveig sagði að-
spurð að þau hefðu ekkert heyrt
um, hversu lengi halda ætti
vöktunum áfram. Talstöð er nú
komin á simstöðina, og nær hún
til Húsavikur. —ÓH
SAMIÐ VIÐ RUSSA
Samið hefur verið við rússa
jm sölu á átta þúsund smálest-
jm af hraðfrystum fiski til af-
ireiðslu á árinu 1976. Heildar-
verð er 1064 milljónir króna. t
viðskiptasamningi rikjanna er
gert ráð fyrir að rússar kaupi 16
til 25 þúsund lestir af flökum og
heilfrystum fiski. Rússar töldu
sér hins vegar díki henta að
semjaum meira að sinni. en bú-
ist er við samningum um við-
bótarmagn þegar liður fram á
1976. Verð i fyrrnefndum samn-
ingi er nær óbrevtt.
—ÓT