Vísir - 30.12.1975, Blaðsíða 11
VISIR Þriðjudagur 30. desember 1975.
11
FA FJÖLSKYLDUNA AFTUR
fyrir öðrum að ég væri
drykkjusjúklingur, en samt
þurfti ég alltaf að auglýsa það
fyrir öðrum þegar ég var orðin
full.
Mér fannst vinið gott á
bragðiðog drakk kannski eins
mikið vegna þess eins og
áhrifanna. Ég drakk oft tvo
þrjá daga i röð og þurfti alltaf
að eiga vin og timdi þá
stundum ekki að gefa öðrum
til að vera viss um að eiga eitt-
hvað handa sjálfri mér.
Ég reyndi þó alltaf að halda
heimilinu hreinu, bæði vegna
sjálfrar min og eins ef ein-
hverjir skyldu koma i heim-
sókn. Ef ég var drukkin heima
og það kom fólk sem ég vildi
ekki láta sjá mig þannig, af
þvi að ég skammaðist min, þá
hleypti ég þvi ekki inn. Ég
fann alltaf til samviskubits við
fyrsta glasið, en éghélt áfram
samt.
Hreinskilnin hreif mig
mest.
Siðasta fylliriið varð hálfs-
mánaðartúr. Ég var hrædd og
mér leið illa og mig langaði til
að ná aftur sambandi við
börnin min og barnabörnin.
Ég hafði stundum minnst á
A.A. samtökin við manninn
minn, en hann hafði enga trú á
þeim.
I þessu siðasta fyllirii minu
ákvað ég að fara og tala við
þennan A.A. mann sem ég
þekkti. Ég gerði það og fór á
næsta A.A. fund með öðrum
alkóhólista þótt maðurinn
minn vildi ekki koma með.
Mér leist strax vel á sam-
tökin, fyrst og fremst vegna
þess hve allir voru hreinskiln-
ir þar. Ég hélt áfram að sækja
fundina, en fyrstu mánuðina
féll ég oft. Þar kom að maður-
inn minn fór lika að sækja
fundi, eftir að hann frétti af
manni þar sem hann þekkti og
hafði álit á!
Nei takk, ég drekk
ekki i dag.
Það hjálpaði mér mikið að
stuttu eftir að ég var byrjuð i
A.A. bað vinkona min mig fyr-
ir tveggja ára gamalt barn sitt
i hálfan mánuð meðan hún
væri erlendis.
Ég sagði henni hvernig ég
væri, og að ég gæti fallið fyrir
freistingunni ef eitthvað bját-
aði á. En hún sagðist treysta
þvi að ég drykki ekki ef ég
væri með litið barn. Það var
ómetanlegt að finna þetta
traust.
Nú orðið langar okkur hjón-
in aldrei i vin, jafnvel þótt við
veitum það sjálf. Hins vegar
finnst mér það mikils virði ef
ég er i boði þar sem vin er
veitt og fólk veit að ég er
alkóhólisti að mér sé boðið
eins og öðrum og að ég geti
sagt: „Nei, takk, ekki i dag.”
Nú erum við búin að fá hús-
varðarstöðu hérna i blokkinni
og við erum búin að fá fjöl-
skylduna aftur. Það var betra
en nokkur happdrættis-
vinningur og það þakka ég
A.A.
Sæki alltaf styrk i
fundina.
Þaðer fleira en að losna við
áfengið sem maður lærir i
A.A. Ég sæki alltaf styrk i
fundina, fundarsóknin hefur
allt að segja. Ef ég slakaði á
veit ég ekki hvað kæmi fyrir.
Á hverjum degi fer ég yfir
reynslusporin 12 og á hverju
kvöldi þakka ég fyrir að hafa
verið ódrukkin.
Ég er ekki hætt að drekka,
slikt þyrði ég aldrei að segja.
En ósk min er sú að ég hafi
alltaf kjark til að vera sú sem
ég er i dag.”
—EB
| Ef þú áttpéld, þá eigum viö allt annað sem þú þarft fyrir gamlárskvöld.
Flugeldar - sólir - blys - gos - tívolíbombur - stjörnu- Reykvíkingar, Flugeldasalan er fjáröflunarleið til
Ijós og margt fleira - allt traustar vörur. tækjakaupa og reksturs hjálparsveitarinnar.
3 gerðir af fjölskyldupökkum. 10% ódýrari. Hjálpið okkur til þess að við getum hjálpað ykkur
1200 kr. 2000 kr. 3000 kr. sem best.
;g< 1 BpqLA < •
1 Wvjr\ |
1 1 B /v/ »1 r 1
|f 3
10 sölustaðir
Skátabúðin Snorrabraut - Volvosalurinn Suðurlands-
braut - Alaska Breiðholti - Við Úlfarsfell Hagamel -
Seglagerðin Ægir Grandagaröi - Austurstræti 12
í Reykjavík:
Hraunbær 102E- Burstafell, Réttarholtsvegi -
Bílaborg Borgartúni 29 - Við verslunina Víöi
Starmýri.