Vísir - 30.12.1975, Blaðsíða 24
VÍSIR
Þriðjudagur 30. desember 1975.
Nýársfagnaður
á 3500-3800 kr.
Það kostar litlar 3750 krónur
að fá aðgang að Hótel Sögutil
að fagna nýju ári á nýársdags-
kvöld. Ekki eru menn þó að
sitja nýársfagnaðurinn af sér
þó að ögn sé skemmtunin dýr-
ari en i annan tima ársins þvi
jafnan er uppselt löngu fyrir-
fram og fastagestir eru
margir. Hafa þeir forgangs-
rétt að borðum sinum svo
eftirsóknarvert hlýtur að vera
að komast til þessa fagnaðar.
Fyrir þessar krónur fá
menn auk aðgangs að húsinu
fjögurra rétta kvöldverð.
Ótilhlýðilegt þykir að renna
þessum mat niður með vini á
hversdagsverði svo álagn-
ingarprósentan er hækkuð um
5% i tilefni dagsins.
Heldur er ódýrara að fara á
Hótel Borg, þar sem Hjálpar-
sjóður skáta heldur sinn
nýársfagnað. Varla tekur þvi
þó að minnast á mismuninn,
hann er ekki nema 250 krónur.
Veitingahúsið Glæsibær og
Ctsýn halda sameiginlegan
nýársfagnað i Glæsibæ, og er
allt með svipuðu sniði og á
hinum tveimur stöðunum. Þar
kostar miðinn 3800 krónur, og
er allt uppselt að undantekn-
um örfáurn ósóttum pöntunum
sem seldar verða i dag.
Skem mtiatriði verða að
venju i Glæsibæ. Að þessu
sinni skemmtir Joni Adams,
bresk söngkona, ásamt hljóm-
sveit Hermans Vedgewijs.
— VS
Öskrandi stór-
hríð á Húsavík
Öskrandi stórhrið skall á hér
á Húsavík i nótt, og slitnuöu
tveir bátar frá bryggju i óveðr-
inu. Ekki var að sjá að þeir
væru mikið skemmdir i morg-
un, en veðrið var þó þannig, að
cnn var erfitt að kanna það ná-
kvæmlega.
t morgun var svo komið að ill-
fært var um Húsavik og alls
ekki fært fyrir fólksbila.
Snemma i morgun fór t.d. lög-
reglumaður, sem reyndar er
eigandi annars bátsins, á lög-
reglubilnum. Hann komst um
100 metra, en þá drap billinn á
sér i snjókófinu.
Bátur lögreglumannsins er 7
tonn, en hinn sem slitnaði frá er
2 1/2 tonn. Ekki var vitað um
önnur óhöpp i morgun, en menn
unnu við Brúarfoss i alla nótt
þrátt fyrir veðrið.
Búist er við að eitthvaö dragi
úr veðri i dag á Húsavik.
—EA
Skotfœri ó Suðurlandi
en blindbylur
fyrir norðan
og vestan ........
Agætis færð var um Suður-
land i morgun, en hinsvegar
blindbylur fyrir noröan. —
Það er öllum bílum fært um
Suðurlandsundirlendi allt frá
Höfn i Hornafirði og til
Reykjavikur og reyndar Borg-
arfjarðar, sagði Hjörieifur
Olafsson vegaeftirlitsmaður
við Visi i morgun.
— Hinsvegar er blindbylur
frá Borgarfjarðardölum og
um allt Vestur og Norðurland.
Þaö var ætlunin að aðstoða
bila á þessum slóðum i dag, en
ég veit ekki hvað verður. Við
ætlum að biða fram að hádegi
ogsjá hvernig ástandið verður
þá. Ef þaðekki batnar er við-
búið að það verði hætt við að
ryðja vegi fram til annars
janúar. Ég vil ráðleggja fólki
að fylgjast með fréttum i út-
varpi um ástand vega. Við
munum koma upplýsingum á
framfæri þar. —ÓT.
4 MENN GRUNAÐIR UM MORÐ:
Hofa ekki jótoð verknaðinn
Einn hinna grunuðu skólabróðir þess horfna
„Þaö er ekki hægt að
segja að þeir hafi ekk-
ert viðurkennt, en þetta
gengur hægt og rólega,
játning á verkinu ligg-
ur ekki fyrir”, sagði
örn Höskuldsson aðal-
fulltrúi hjá Sakadómi
Ileykjavikur i morgun.
Sem kunnugt er hafa
fjórir ungir menn verið
úrskurðaðir i gæslu-
varðhald grunaðir um
að hafa valdið hvarfi
Guðmundar Einars-
sonar sem siöast sást
27. janúar 1974.
Ekki er vitað til þess að þessir
ljórir umræddu menn hafi verið
kunningjar Guðmundar eða
þekkt hann nokkuð, að þvi
undanskildu að einn af þeim
sem eru i gæsluvarðhaldinu var
með honum i skóla.
örn sagði að ekkert væri hægt
að segja um málið að svo stöddu
annað en að rannsókn málsins
heldur að sjálfsögðu áfram, og
má segja að yfirheyrslur fari
fram á hverjum degi.
Tveir mannanna voru úr-
skurðaður i allt að 90 daga
gæsluvarðhald. Einn var úr-
skurðaður i 45 daga gæsluvarð-
hald, og loks var einn úrskurð-
aður i 30 daga gæsluvarðhald
þann 12. desember sl. sem þátt-
takandi i svikunum út úr Pósti
og sima. Búast má við að sá úr-
skurður verði endurskoðaður.
Tveir mannanna eru vanaaf-
brotamenn, en einn hefur ekki
komið mikið við sögu lögregl-
unnar áður. Allir eru mennirnir
Reykvikingar.
örn sagði að ekkert væri hægt
að gefa upp um ástæður fyrir
hvarfi Guðmundar, en hann
hvarf aðfaranótt sunnudagsins
27. janúar 1974. Var hann þá á
gangi i Hafnarfirði ásamt öðr-
um pilti. —EA
Hann lenti inni í
húsagarði eftir á-
reksturinn.
Bílarnir voru illa farnir, en
sem betur fer urðu litil
meiðsli á fólki. Ljósm.:
Lenti í
húsagarði
eftir
órekstur!
Tveir bilar lentu harka-
lega saman í Kópavoginum
í gærkvöldi á stað sem
kalla má hálfgerðan
„vandræðastað”. Segja
má að árekstur sé þar svo
til daglega.
Annar billinn kom eftir Borgar-
holtsbrautinni, en hinn Urðar-
brautinni. Hálka var, en liklega
hefur henni þó ekki einni verið um
að kenna að illa fór.
Það var ekki að sökum að
spyrja að bilarnir lentu saman,
og hafnaði annar þeirra i húsa-
garði rétt hjá. Bilarnir skemmd-
ust mikið. Sem betur fer urðu litil
meiðsli á ökumönnum, sem voru
einir i bilum sinum. Annar var þó
fluttur á slysadeild.
—EA
DREGIÐ í JÓLAGETRAUN VÍSIS:
16 úra stúlka sú heppna
Kvennaárið minnti rækilega ó
að það var ekki cnn liðið þegar
dregið var i jólagetraun Visis i
gær. Sextán ára stúlka, Asa
Halldórsdóttir, til hcimilis aö
Mávablíð 41 i Reykjavík, var sú
hcppna.
Hún tók á móti verðlaunun-
um, glæsilegu Nordmende-
hljómtæki i Radióbúðinni á
Klapparstig i gær.
Ása sagðist eiga plötuspilara
fyrir, eif hún sagðist ætla aö
nota Nordmende tækið fram-
vegis. Enda er það öndvegis-
gripur, með útvarpi og segul-
bandi auk plötuspilarans.
Aðspurð sagðist Ása vera
hrifinaf allri tónlist, þótt popp-
tónlist væri að sjálfsögðu i
fyrsta sæti.
Þátttaka i jólagetraun Visis
var mjög góð að þessu sinni.
Nokkur þúsund úrlausnir bár-
ust, og fylltu þær átta stóra
pappakassa. Okkur hefði ekki
enst árið til að telja þær.
—ÓH
fyrstur með
fréttirnar
fyrstur m<
fréttirnc
Anna Marfa Bjarnadóttir (t.h.) frá auglýsingastofu Vlsis af-
hendir hcr Ásu llalldórsdóttur Nordmende hljómtækið scm bún
hreppti i verðlaun i jólagetraun Visis. Ljósm.: JIM.
Edda Andrésdóttir blaðamaður tók að sér að draga I jótagct-
rauninni. Hún settist inn i miöjan úrlausnabunkann og tók eitt
umslagið af handahófi. Ljósin.: BG