Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1937, Page 1
JfHoraMwMaðsÍíts
43. tölublað. Sunnudaginn 7. nóvember 1937. XII. árgangur.
Hi .AÐBÆJARSKIPIÐ
Vil Kertemindefjörðinn á Norð-
urfjóni er fagurt um að litast.
Landið er þar víða ekki eins
flatt og sumstaðar annarsstaðar í
Danmörku, en þar skiftas't á hól-
ar og lautir, akrar gulir og græn-
ir skógar, og inn í þessa frjó-
sömu fegurð skerst fjörðurinn.
I bænum Kerteminde býr mað-
rr, sem margir kannast við lieima
á Islandi, málarinn Jóhannes Lar-
sen, einn af helstu listamönnum
okkar Norðurlandabúa. Hann hef-
ir tvívegis ferðast á íslandi og
teiknað margar myndir í útgáfu
Dana af íslendingasögunum.
Ef þjer megið vera að því að
koma yfir á Fjón, þá skal jeg
sýna yður eyjuna, sagði hann við
mig um daginn, er við hittumst
í Höfn — og jeg þakkaði fyrir
gott boð og fór. Við ferðuðumst
svo um Fjón í nokkra daga, skoð-
uðum borgir og bæi, listasöfn og
forngripasöfn, og síðast en ekki
síst guðs grænu náttúru, sem er
óvenjulega græn og frjósöm þar,
borið saman við aðra hluta Dan-
merkur.
Margt ber þarna merkilegt fyr-
ir augu ferðamannsins bæði nýtt
og gamalt, því Danir eiga sögu,
sem nær um tíu þúsund ár aft-
ur í tímann. Svo gömul eru hin
fyrstu spor, sem fundist hafa eft-
ir menn á þessum slóðum. Hjer
mun jeg þó ekki reyna að segja
frá nema einu af því, sem fyrir
augu bar, fjórða og síðasta dag-
inn, sem jeg dvaldi á Fjóni: vík-
A FJONI.
Skipið í glerhöllinni,
Eftir
RagnarÁsgeirsson
ingaskipinu. í Ladby við Kerte-
minde-f jörð.
Skammt frá firðinum er hóll
einn allmikill, en þó ekki neitt
að. ráði frábrugðinn öðrum hól-
um við fjörðinn. Þó hann sje að
vísu ekki hár, er samt víðsýnt af
honum í allar áttir yfir sveitina
og fjörðinn.
Lyfsali einn frá Odense, Ilel-
weg Mikkelsen, sem hefir lagt
stund á fornfræði í hjáverkuny,
þar sem það er til sýnis.
fjekst við rannsóknir þarna og
gróf upp nokkrar grafir frá vík-
ingaöldinn fast við hólinn 1933 og
1934. Við áframhaldandi rann-
sóknir í hólnum rakst hann á
nokkra járnnagla sem lágu í röð-
um sem fjarlægðust þegar innar
dró í hólinn, og hann þóttist und-
ir eins viss um, að þarna væri um
skip að ræða; enda þótt fornfræð-
ingar danskir hjeldu því fram,
að siður sá að heygja menn í
skipi hefði aldrei tíðkast í Dan-
mörku,
Við nánari rannsókn kom svo
í ljós, að lyfsalinn hafði rjett fyr-
ir sjer; hóllinn var ekki náttúru-
smíði, heldur orpinn haugur, þar
sem vænta mátti að mikill höfð-
ingi væri heygður ásamt miklum