Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Síða 1
15. tölublað. Sunnudagur 18. apríl 1943. XVII. árgangur.
1mMÉMM
Fríkirkj usöfnuðurinn
I HAF.NAKFIRÐI 30 ÁRA
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Asumardaginn fyrsta, næst-
komandi, 22: þ. m. verð-
ur Fríkirkjusöfnuður Hafnar-
fjarðar, Garða- og Bessastaða-
hreppa, eins og hann heitir
fullu nafni, 30 ára.
Þykir hlýða, að minnast að
nokkru starfs hans á umliðnum
árum, við þessi tímamót, og
baráttu þeirrar, er hann hefir
háð fyrir tilveru sinni og fram
þróun, frá upphafi og fram á
þennan dag, sem tvímælalaust
má telja að hafi orðið til menn-
ingarlegrar uppbyggingar fyr-
ir bæjarfjelag Hafnarfjarðar
og verið í mörgu fögur fyrir-
mynd í fjelagslegum átökum
og samstarfi til eflingar and-
legum málum í bygðarlaginu.
Söfnuðurinn var stofnaður
20. apríl 1913. Stofnfundurinn
var haldinn þann dag í Barna-
skólanum í Hafnarfirði. Var
boðað til hans af nokkrum
Hafnfirðingum, sem áhuga
höfðu fyrir því að kirkja yrði
reist í Hafnarfirði. Það mál
hafði að vísu verið rætt og at-
hugað um allmörg ár af sókn-
armönnum Garðasóknar, en af
ýmsum ástæðum, en þó sjer-
staklega vegna fjárhagslegra
vandkvæða, átt erfitt upp-
dráttar fram að þeim tíma.
Til undirbúnings stofnfund-
inum hafði verið leitað undir-
tekta manna um stofnun Frí-
kirkjusafnaðar og höfðu nál.
100 menn tjáð sig fúsa til, að
vera með um stofnun hans. —
Mættu menn þessir flestir á
fundinum og ákváðu að stofna
söfnuðinn. Voru þá þegar sam
þykt lög fyrir hann, sem í gildi
voru óbreytt þar til að þau
voru endursamin og gerðar á
þeim nokkrar breytingar í apríl
1934.
Á stofnfundinum var sam-
þykt, að ráða síra ólaf Ólafs-
son, fríkirkjuprest í Reykjavík
til þess að þjóna söfnuðinum
fyrst um sinn. Hafði hann,
eftir framkomnum tilmælum,
tjáð sig fúsan til að taka þann
starfa að sjer, ef til kæmi.
Samkvæmt lögum safnaðar-
ins skyldi nafn hans vera: Hinn
evangelisk- lútherski fríkirkju-
söfnuður í Hafnarfirði, Garða-
og Bessastaðahreppum.
Enn fremur er svo að orði
komist í 1. gr. laganna: „...
og er fjelagsskapur þeirra
manna og kvenna, sem eiga
sameiginlega þá hugsjón, að
halda uppi guðsþjónustum
(messugerðum) og öðrum
kirkjulegum athöfnum.Og eiga
kirkjuhús með hljóðfæri,
messuskrúðum og öðru tilheyr-