Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 9
LBSBÓK M0RGUNBLABSIN8 111 BRÆÐRAFJELAG FRÍKIRKJU- SAFNAÐARINS f HAFNARFIRÐI D ræðrafjelag Fríkirkjusafnað- ■“* arins í Hafnarfirði er stofn- að 27. sept. 1930. Eflaust mætti margt segja um það á þessum timamótum safnaðarins. svo þýð- ingarmikið hefir starf þess verið og á sjer, að minni hyggju, fáar hliðstæður. En hjer verður að- eins stiklað á stærstu atriðunum. Árið 1930, 20. sept. hjeldu nokkrir karlmenn úr Fríkirkju- söfnuðinum fund !með sjer í htísi K. F. U. M. i Hafnarfirði. Fund- arefni var að leita álits viðstaddra um stofnun fjelags karlmanna í söfnuðinum, sem kallast gæti Bræðrafjelag, í þeim tilgangi að styðja og styrkja safnaðarlífið bæði í andlegu og efnalegu tilliti. einkum þó að því er fjárhag snerti, fyrst og fremst þó í þeirri mynd að koma upp húsi til íbúð- ar fyrir prest safnaðarins. Var máli þessu vel tekið af fundar- mönnum. Kosnir voru 5 menn í nefnd, þeir: Jóhannes J. Reykdal, verksmiðjueigandi, Guðmundur Einarsson, trjesmíðameistari, Finn bogi J. Arndal, sýsluskrifari, Þór- arinn Böðvarsson, útgerðarmaður og ólafur Böðvarsson, bókari. Áttu þessir menn að undirbúa stofnun fjelagsins, semja lög fyr- ir það og stefnuskrá. Var svo Bræðrafjelagið (skammst.: B. F. H.) stofnað eins og fyr segir, 27. sept. 1930 með 23 mönnum. Stofn- fundurinn var haldinn í húsi K. F. U. M. Voru þá samþykt lög fyrir það, er nefndin hafði samið. Voru þau að mestu sniðin eftir bendingum og tillögum, sem komu fram í ræðu Guðmundar trje- siníðam. Einarasonar, er hann hjelt á undirbúningsfundinum 20. sept. Einnig var samþykt reglu- gerð um byggingu og rekstur prestsseturslniss. 1 stjórn fjelagsins voru kosnir þeir: Guðmundur Einarsson, Þór- arinn Böðvarsson og Finnbogi J. Arndal. Þá var á fundinum kjörinn heiðursfjelagi þess Jón Þórðarson, formaður safnaðarstjórnar, sem um undanfarin ár hafði verið öfl- ugasta stoð Fríkirkjusafnaðarins. Á næsta fundi, 28. okt. 1930 gengu 13 menn í fjelagið. Nú eru i því 67 menn. Á aðalfundi 8. jan. 1935 var prestur safnaðarins, sira Jón Auðuns, kosinn heiðursfjelagi. Strax eftir stofnun B. F. II. var hafinn undirbúningur að byggingu prestsseturshússins og það bygt á næsta sumri. Rjettu ári eftir að fjelagið var stofnað, «ða 28. sept. 1931, afhenti stjórn B. F. H. stjórn Fríkirkjusafnaðarins húsið til fullra afnota presti safnaðarins, án nokkurs endurgjalds eða leigu. Þó skyldi notandi greiða vatns- skatt, holræsagjald og rafmagn. Húsið var einlyft, með porti og risi og kjallara, bygt úr járn- bentri steinsteypu, vandað að öll- um frágangi. Uppdrátt að húsinu gerði Guðmundur Einarsson trje- smíðameistari og það bygt undir umsjón hans af Guðjóni Am- grímssyni, húsasmíðameistara. Margir safnaðarmenn unnu við undirbúning og byggingu hússins og lánuðu vinnu sína, en aðrir ljetu af hendi efni og önnur fram- lög, er námu samtals nálægt kr. 5000.00. Var það fje lánað v&xta- laust. Má af þessu sjá, að ekki var látið sitja við orðin tóm, heldur hafið raunhæft starf, sem hefir borið giftudrjúgan ávöxt, því að það hefir orðið söfnuðinum í heild til ömetanlegs gagns. Eins og gefur að skilja, hefir alt starf B. F. H. kostað fjelagana margan snúning, sem ekki hefir verið talinn eftir. Hafa þeir marg- ir int af hendi mikið og fórnfúst starf í þágu fjelagsins. Hefir það aðallega verið í því fólgið að afla fjelaginu tekna til þess að standa straum af allmiklum lánum, er taka varð í sambandi \úð hús- bygginguna, auk ,þess, er fjelag- arnir Iögðu fram. Tekna hefir ver- ið aflað á ýmsan hátt, svo sem með ársgjöldum og frjálsum framlögum fjelagsmanna, sem hjá mörgum þeirra hafa ekki verið skorin við nögl, hlutaveltum, happdrætti, útiskemtunum og öðr- um samkomum. Samstarf við kvenfjelag safnað- arins hefir ávalt verið um fjögur síðiasttöldu atriðin og ágóða þá skift að jöfnu milli fjelaganna. Þar að auki hefir safnaðarstjórn- in verið í samstarfi og þá helst um hlutaveltur. Hefir þá safnað- arsjóður borið jafnt úr býtum sem fjelögin hvort um sig. Samstarf Frh. á bls. 124. Stjórn Bræðrafjelagsins 1943. Talið frá vinstri: Kristinn J. Magnússon málarameistari. Loftur * Bjarnason útgerðarmaður. Símon Kristjánssor hafnsögumaður.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.