Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1944, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1944, Side 16
136 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Særðir hermenn halda jól á Islandi Hvar. sem þeir eru á hnettinum, gleyma hermennimir ekki jólunum og allra síst þeir, sem særðir eru. — Myndin hjer að ofan er tekin í hermannaskála hjer á Is- landi, sem notaður er sem sjúkrahús. Sjúklingamir hafa skreytt skálann með hjálp hjúkrunarkvennanna. . Smælki Konan (með dagblað fyrir fram- an sig): — Ilugsaðu þjer bara, fyr- ir nokkrum dögum skildu hjón eft- ir 5Q ára hamingjusamt hjónaband. Maðurinn: — Jeg geri ráð fvrir, að maðurinn hafi verið of veik- geðja til þess að halda það út mik- ið lengur. ★ Gesturinn: — Jeg sje að þjór- fje er forboðið hjer. Þjónninn: — Látið þjer það ekki hafa nein áhrif á yður, það voru eplin einnig í garðinum Eden. ★ Kennarinn: — Jonni, hefirðu á móti því að fara til himins? Jonni: — Nei, en mamma sagði mjer, að jeg yrði koma beina leið heim úr skólanum. Kennarinn sagði eitt sinn börn- um í skólanum, að þau skyldu teikna það, sem þarr óskuðu að verða þegar þau væru orðin stór. Börnin byrjuðu þegar á þessu verki og virtist ákafinn mikill. Sum teikn- uðu myndir af hermönnum, önnur af stjórmálamönnum, bílstjórum, flugmönnum, fínum stúlkum o. s. frv. Þau unnu öll af miklum á- kafa nema ein lítil stúlka, sem studdi hönd undir kinn og virtist mjög hugsi. Kennarinn tók eftir þessu, gekk til hennar og sagði: „Veitu þfi ekki, hvað þú vilt verða, þegar þu ert orðin stór, Anna litla? „Jú, jeg veit það“, svaraði stúlk- an, „en jeg veit ekki hvernig jeg á að teikna það. Jeg vil giftast“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.