Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1945, Síða 1
8. tölublað. Sunnudagur 25. febrúar 1945 XX árgangur. W*foldarpr«rtwbtf|p Wd
^JJanneó (juLmunJóóon, lœlmir, óLripar um fram tíLaJij^L
i/u\ Iwemávœki, f)ar óem Lann viíl aL riói
HEITAR BORGIR
SÍÐLA VETRAR, fyrir 20 árum,
kom jeg í vitjun að litlum snotrum
híp í Biskupstungunum. Þar hefir
verið búið frá landnámstíð. Bæiinn
var lítil gömul torfbygging með
timburþili. Baðstofan var lijört og
hreinleg og hin vistlegasta, en frost
var úti og hálfkulnuð glóðin í litla
ofninum nægði varla til að draga
\ár sárasta kuldanum. Eldsneyti var
ekki annað til á bænum en sauða-
tað og víst af skornum skamti. Jeg
hafði því skamma stund setið áður
en mjer var orðið hrollkalt. Þegar
jeg hafði lokið erindi mínu varð
mjer gengiö nokkur skref frá bæn-
um. Rjett fyrir framan bæjarhlað-
ið tók við snarbrött brekka 50—100
metra löng, en fyrir neðan hana
breiddi úr sjer sljettlendi, sem var
sveipað gufuhjúp. Þegar nánar var
að gáð sást að sjóðandi vatn vall
þarna upp úr ótal hverum, stórum
og smáum, en á milli þeirra hlykkj-
aði sig heitur lækur. sem rann í
hægðum sínum niður eftir sljett-
lendinu. Upp úr bugðóttum lækn-
um lagði hvítan gufumökk, eins og
til að benda mönnum enn áþreifan-
legra á að þama rynni hitinn á
burt.
En uppi á brekkunni sat heima-
fólkið með frostnbólgnar hendur
við vinnu í kaldri baðstofunni.
Og þannig hafði þetta verið frá
landnámstíð. Ekki einungis á þess-
um bæ, heldur mn land alt.
Þjóðin hefir soltið. Hún hefir
króknað úr kulda og setið í myrkri,
Gata í fyrirmyndar sveitabæ í Englandi.