Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Page 1
 2. tölublað. Sunnudagur 3. febrúar 1946 XXI. árg. li*toUUfpwli»tit»4A OJ Oíaj JJhors, joriœtiita&herra, i L lejni aj 20 a fnncjduipara jmœíi Lanó 19. janúar 1949 I. Enn skeður að kotungur kveður sjer hljóðs — sem kemur oft fyrir í sögum — því var jeg stóðst ekki stillingu ljóðs þó sterkur sje ekki í brögum. Það kvað stundum leynast hjá karlinum heima sem kóngshöllin frægasta hafði ekki að geyma. En vart hef jeg átt þennan gersemis grip nje gróanda ljóðsins í anda. Þó minnist jeg ungur jeg sá hann í svip, er jeg sveif milli draumanna landa. En lággengi annanna læstu mig inni, svo Ijóðið er smærra frá hörpunni minni. \ Hörpustreng skal stilla stefna til þín ljóði, blómum fang þitt fylla — fyrirliðinn góði. Drenglund þín og dáðir dæmin mörgu sanna. Góðu sæði sáðir sól í hjörtu manna. II. Eins má á það minna engin gleymska máir, leituðu þín og þinna þeir, sem voru smáir. Oft varð af að taka eins að fornu og nýju. Báru þeir til baka bjarta von og hlýju. Við þig lánið leiki Ijós í ríku happi, aldrei skálm þín skeiki skilminganna kappi. Þó að brotsjór bylji bátsins fyrir stafni, stærri er sterkur vilji, stýrði í drottins nafni. Hjálmar á Hofi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.