Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Síða 1
2. tölublað. Sunnudagur 3. febrúar 1946 XXI. árg.
li*toUUfpwli»tit»4A
OJ Oíaj JJhors, joriœtiita&herra, i L lejni aj 20 a
fnncjduipara jmœíi Lanó 19. janúar 1949
I.
Enn skeður að kotungur kveður sjer hljóðs
— sem kemur oft fyrir í sögum —
því var jeg stóðst ekki stillingu ljóðs
þó sterkur sje ekki í brögum.
Það kvað stundum leynast hjá karlinum heima
sem kóngshöllin frægasta hafði ekki að geyma.
En vart hef jeg átt þennan gersemis grip
nje gróanda ljóðsins í anda.
Þó minnist jeg ungur jeg sá hann í svip,
er jeg sveif milli draumanna landa.
En lággengi annanna læstu mig inni,
svo Ijóðið er smærra frá hörpunni minni.
\
Hörpustreng skal stilla
stefna til þín ljóði,
blómum fang þitt fylla —
fyrirliðinn góði.
Drenglund þín og dáðir
dæmin mörgu sanna.
Góðu sæði sáðir
sól í hjörtu manna.
II.
Eins má á það minna
engin gleymska máir,
leituðu þín og þinna
þeir, sem voru smáir.
Oft varð af að taka
eins að fornu og nýju.
Báru þeir til baka
bjarta von og hlýju.
Við þig lánið leiki
Ijós í ríku happi,
aldrei skálm þín skeiki
skilminganna kappi.
Þó að brotsjór bylji
bátsins fyrir stafni,
stærri er sterkur vilji,
stýrði í drottins nafni.
Hjálmar á Hofi.